Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Lesning fyrir heilabilaða
Líf&Starf 4. maí 2022

Lesning fyrir heilabilaða

Höfundur: Finnbogi Hermannsson

Þegar ég setti saman bókina Í húsi afa míns sem kom út fyrir tólf árum, hvarflaði ekki að mér að hennar biði sérstakt hlutverk annað en að vera aldarspegill og skemmtilestur. Það er nefnilega farið að lesa úr bókinni ásamt úr viðbótarsögunni Í fótspor afa míns á hjúkrunarheimilum.

Líffæri okkar endast misjafnlega, þar með talið heilabúið. Annað getur svo bara verið í ágætu lagi. Einhvern veginn æxlaðist svo til að iðjuþjálfar fóru að lesa úr fyrrnefndum bókum fyrir fólk með heilabilun. Og margt af því virkaði sem var í bókunum og áheyrendur kveiktu á ýmsum vinnubrögðum og fyrirbærum sem tíðkast hafði í ungdæmi þeirra, svona um miðja síðustu öld eða ögn fyrr.

Finnborgi Hermannsson.

Afi minn, sem þessar bækur eru kenndar við, var nefnilega nítjándu aldar maður, fæddur 1881.

Foreldrar mínir voru frekar gamlir þegar ég fæddist, að minnsta kosti í samanburði við nútímann, mamma fædd 1913 og pabbi svo snemma sem 1910 og hann var því 35 ára þegar ég sá fyrst dagsins ljós suður á Landspítala.

Satt að segja hélt ég að þetta væri eitthvert bríarí með lestur úr bókum mínum fyrir heilabilaða en svo fylgdi þessu alvöruþungi. Suður í Hafnarfirði hafði verið lesið fyrir heimilisfólk úr Húsi afa míns en skyndilega hvarf bókin og þótti horfa til vandræða. Verkið löngu uppselt en fannst eintak vestur á fjörðum og bukkaði maður upp á einn daginn hér á Bakkaveginum og bað oss um að árita bókina. Hún skyldi fara til systur hans, forstöðukonu/manns fyrir því sama hjúkrunarheimili þaðan sem bókin hvarf. Svona var nú þetta. Ég lét ekki þar við sitja og lét prenta lítið upplag af fyrrnefndum tveimur bókum suður í Hafnarfirði og hafði með mér vestur í aftursætinu nú fyrir páskana. Þær eru til sölu og er Finnbogi þessi kostnaðarmaður eins og þetta hét í gamla daga. Auðvitað er það ánægjulegt að verk manns öðlist það nýja hlutverk að vera hjálpargagn fyrir sjúka og sorgmædda, svo maður sletti aðeins biblíumáli. En læt hér nótt sem nemur og gleðilegt sumar.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...