Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Leiklistarráðstefna í Retz
Menning 21. febrúar 2024

Leiklistarráðstefna í Retz

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Tuttugasta og fimmta ráðstefna IDEA Drama / Theatre in Education verður haldin dagana 22. til 27. mars, í Retz, Austurríki, nú í 50. skipti.

IDEA (International Drama/ Theatre and Education Association) eru samtök einstaklinga og fagfélaga sem styðja og efla leiklist og fræðslu henni tengdri. IDEA er opið svæðisbundnum og alþjóðlegum samtökum sem og öðrum stofnunum, aðilum, tengslanetum, samtökum, menntastofnunum eða einstaklingum sem starfa við leiklist og menntun.

Um ræðir alþjóðlega leiklistarráðstefnu IDEA sem haldin hefur verið árlega nú í 50 ár. Munu fastagestir, sumir sem mætt hafa alveg frá upphafi, standa fyrir uppákomum eða fræða og gleðja gesti með minningum sínum.

Meginviðfangsefni ársins í ár hefur yfirskriftina: Samskipti & umhyggja – hvert barn skiptir máli, staður unga fólksins í heiminum eða Sharing&Caring – every child matters, The Place of Young People in our World á frummálinu. Litið er til þess að sérhver þátttakandi kynnir persónulegt sjónarhorn inn í heim leiklistar með reynslu sinni og menntun – sem á móti gerir ráðstefnuna bæði farsælli og fjölbreyttari.

Farið verður yfir ýmis málefni og línurnar lagðar fyrir næstu fimmtíu árin þar sem þátttakendur eru hvattir til að koma hugmyndum sínum á framfæri með samvinnu og hugmyndaflæði. Vinnustofudagar eru á dagskrá, fyrirlestrar og kynningar – fjölbreytt leikhúslíf er í nánasta umhverfi og að sama skapi er víngerð rík í menningunni og því upplagt að kynna sér hana einnig að einhverju leyti.

Nánari upplýsingar er að finna á vefsíðu BÍL www. leiklist.is eða á síðunni www.ideadrama.org.

Skylt efni: leiklist

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...