Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 ára.
Arnór Sindri, einn hljómsveitarmeðlima Gripa, og dansarar úr sýningunni.
Arnór Sindri, einn hljómsveitarmeðlima Gripa, og dansarar úr sýningunni.
Líf&Starf 11. október 2021

Leikfélag Keflavíkur sýnir Fyrsta kossinn

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Eitt öflugasta áhugaleikfélag Íslands fagnar nú 60 ára afmæli um þessar mundir og telur af því tilefni í hundruðustu sýningu sína til þessa. Leikverkið „Fyrsti kossinn“, sem nú er á leið á fjalirnar, er frumsaminn söngleikur sem hefur meðal annars að geyma ýmsar perlur eftir þá Rúnar Júlíusson, Gunnar Þórðarson og Bubba Morthens.

Síðan árið 1997 hefur leikfélagið verið starfandi í húsnæði Reykjanesbæjar að Vesturbraut 17, en þá gaf Karlakór Keflavíkur bænum neðri hæð hússins gegn því loforði að þar skyldi ævinlega fara fram menningarleg starfsemi. Með öruggt þak yfir höfuðið – sem nefnt var Frumleikhúsið – óx Leikfélag Keflavíkur sem aldrei fyrr. Það er nú eitt öflugasta starfandi áhugaleikfélag landsins og stendur félagið að baki rekstri og gróskumiklu starfi innan Frumleikhússins en þar má finna eitthvað fyrir áhugafólk leiklistar á öllum aldri. Talið er að aðstaðan sé ein sú besta á landinu og eru meðlimir nú um 50 talsins auk margra sem eru óskráðir.

Eins og kemur fram á Leiklistarvefnum, vef Bandalags íslenskra leikfélaga, verður söngleikurinn „Fyrsti kossinn“ frumsýndur í Frumleikhúsinu þann 22. október nk. í tilefni sextíu ara afmælis Leikfélags Keflavíkur. Höfundar verksins eru þau Brynja Ýr Júlíusdóttir og Guðlaugur Ómar Guðmundsson, sem bæði hafa leikið og setið í stjórn Leikfélags Keflavíkur í mörg ár. Verkið er, að sögn, samið og sett upp til að heiðra minningu Rúnars heitins Júlíussonar, en eins og flestir vita var Rúnar frábær tónlistarmaður og meðlimur í vinsælustu hljómsveitum landsins á sínum tíma, samdi og gaf út óteljandi lög og rak útgáfufyrirtækið Geimstein sem enn er starfandi.

Verkið hefur að geyma lög og texta eftir Rúnar Júlíusson, Gunnar Þórðarson, Bubba Morthens og fleiri snillinga og fjallar í stuttu máli um líf og ástir hljómsveitarmeðlima í hljómsveitinni Gripum sem reyna að meika það. Lögin eru þekktar perlur sem allir kunna og textinn sem tengir lögin snilldin ein hjá þessu unga fólki. Tónlistarstjórn er í höndum þeirra Smára Guðmundssonar og Björgvins Ívars Baldurssonar sem sjá um allar upptökur, en það verður einnig lifandi tónlist í sýningunni. Leikaravalið var leikstjóranum Karli Ágústi Úlfssyni og danshöfundinum, dóttur Karls, Brynhildi Karlsdóttur, afar erfitt en margir frábærir, hæfileikaríkir einstaklingar mættu í prufur sem fram fóru í ágúst. Í þessari sýningu eru alls 19 á sviði og síðan fullt af góðu fólki á bak við tjöldin.

Lifandi tónlist, söngur og dans einkenna sýninguna, sem eins og áður sagði verður frumsýnd 22. október. Stefnt er að því að áframhaldandi sýningar verði að mestu leyti á fimmtu-, föstu- og sunnudögum að minnsta kosti út nóvember – með fyrirvara um breytingar – og miðasala hefst á tix.is í kringum miðjan október.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...