Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 mánaða.
Leiðrétting dreifikostnaðar raforku í dreifbýli
Mynd / Úr safni
Fréttir 16. apríl 2026

Leiðrétting dreifikostnaðar raforku í dreifbýli

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

– Gera má ráð fyrir að reikningur ylræktarbænda lækki

Með fyrirhuguðum breytingum á reglugerð um framkvæmd raforkulaga má gera ráð fyrir að rafmagnskostnaður fyrirtækja í dreifbýli geti lækkað talsvert.

Í gildandi reglum eru skilyrði fyrir samþykkt sérstakrar dreifbýlisgjaldskrár sem dreifiveitum er heimilt að sækja um til Raforkueftirlitsins á svæðum þar sem kostnaður vegna dreifingar er sannanlega hærri en í þéttbýli. Til að ákveða hvaða svæði teljast til dreifbýlis hefur hingað til verið horft til talna frá Hagstofu Íslands um íbúafjölda og fjarlægðir milli húsa. Á þessum svæðum hafa fyrirtæki, og garðyrkjubændur í ylrækt til dæmis, þurft að greiða hærri dreifikostnað raforku, jafnvel þótt raunverulegur kostnaður við að dreifa rafmagni til þeirra sé ekki endilega hærri en í þéttbýlinu.

Krafa um að sýna fram á kostnaðarauka

Með breytingunni er lagt til að horfið verði frá föstum tölulegum viðmiðum, en í staðinn verði tekin upp krafa um að dreifiveitur sýni fram á sannanlegan kostnaðarauka ef þær vilja beita dreifbýlisgjaldskrá.

Axel Sæland, formaður garðyrkjudeildar Bændasamtaka Íslands, segir að eins og málið blasi við honum muni dreifiveitur þurfa að rökstyðja ástæðu þess að nota eigi dreifbýlistaxta en ekki almennan taxta á hverjum stað fyrir sig.

Lækkun á dreifikostnaði

Hann telur að þetta muni breyta stöðu ylræktarinnar, þar sem sumir þeirra noti raforku á við heilu bæjarfélögin og með einn tengipunkt sem gerir þá að ákaflega heppilegum viðskiptavinum.

Því megi gera ráð fyrir því að margir ylræktarbændur í dreifbýli færist á almennan taxta, sem ætti að þýða lækkun á dreifikostnaði fyrir viðkomandi bændur.  

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...