Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Latex-hönnun Oliviers Rousteing og Richard Quinn.
Latex-hönnun Oliviers Rousteing og Richard Quinn.
Á faglegum nótum 12. október 2022

Latex fyrir alla

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Efnið latex er í huga margra tengt kynlífi, smokkar koma þar sterkir inn, en einnig sem efni fatnaðar af djörfum toga, til að mynda þeirra er stunda eilítið ögrandi kynlíf.

Færri gera sér e.t.v. grein fyrir því að efnið latex, ef lífrænt er – er á afar háu vistfræðilegu plani. Æ fleiri tískuhönnuðir eru að vakna til
vitundar er kemur að þessum sjálfbæra valkosti í stað efna sem kennd eru við dýrahúðir eða óvistvæna framleiðslu- aðferð – því jú, Latex er náttúrulegt, endurnýjanlegt efni sem unnið er úr gúmmítrénu (habea brasillensis). Þar sem trén eru ekki felld við uppskeru er framleiðsla þess sjálfbær og kolefnisneikvæð.

 Dæmi um hvernig latexi er tappað af tré.
Hvítt og klístrað náttúruundur

Orðið latex er samheiti yfir klístraða, mjólkurhvíta vökvann sem margar plöntur og tré framleiða til að verja sig gegn skaðvöldum, sbr. þegar börkur latexberandi plöntu skemmist, myndast latex sem svo storknar til að innsigla örið á meðan börkurinn vex aftur. Latexkvoðu er safnað með því að skera burt þunnt lag af berki gúmmítrésins þannig að sárið vísi niður á við og myndi eins konar trekt. Þar undir er skál eða einhvers konar söfnunarílát sem latexið leggst í. Í besta falli má fá allt að tveimur tonnum af þurru latexi á hektara. Efnið latex er því náttúrulegt að uppruna. Hins vegar, meðan á framleiðsluferlinu stendur, er stundum bætt við blönduna ýmsum aukaefnum úr dýraríkinu. Það er þó hægt að vera án þeirra og því best að athuga með vörumerkið þegar varan er keypt.

The Hits, Balmain - Gaultier

Tískuveldi á borð við Balmain og Jean Paul Gaultier státa meðal annars af fatnaði unnum úr latex – þökk sé einum aðalhönnuði Balmain, Olivier Rousteing, sem brenndi upp tískupallana haustið 2020 þar sem hann kynnti latexfatnað í bland við kasjúal.

Á tískuviku Parísarborgar svo nýverið, við kynningu hausts/vetrar 2022-23 kom í ljós að gestahönnuður Jean Paul Gaultier í ár var einmitt Olivier Rousteing.

Hefur samstarf veldis Gaultier við aðra hönnuði eignast fastan sess í tískuvikunni, en sú ákvörðun var tekin árið 2020, er Jean Paul sjálfur settist í helgan stein. Vakti haustlínan undir stjórn Oliviers – sem nefnd var The Hits – mikla athygli, en auk latexáhrifa, voru smáatriði við saumaskap fatnaðarins einkenni Balmain.

Madonna íklædd hönnun JPG árið 1992 og útfærsla Olivier Rousteing 30 árum síðar.

Áhuga vakti að sjálfur Gaultier kaus að koma ekki að samstarfinu á neinn hátt, heldur er að sýningunni kom sat hann þar á fremsta bekk og létu fréttamiðlar hafa eftir sér að þessi jöfur tískuveldisins hafi fagnað heil ósköp. Hlaut Olivier mikið lof fyrir sýninguna, en gríðarlega ógnvekjandi verkefni er að
vera gestahönnuður hins mikla meistara Gaultier.

Tók Olivier skemmtilegt tvist á tískuna, en hann, eins og nafn sýningarinnar gefur til kynna, tók þekktustu hönnun Gaultier og gerði að sinni. Þar má meðal annars telja korsett og „keilulaga“ brjóstahaldara eins og söngkonan Madonna gerði fræga um árið – og reyndar mátti þarna líka sjá annað dæmi fatnaðar er hún bar með stolti 30 árum áður.

Þó þarna væri um staðlaða og sterka hönnun að ræða voru tvímælalaus áhrif Oliviers sýnileg. Til dæmis ef latexið er sérstaklega tekið fyrir – í buxnadragt úr brúnu latexi, gegnsæjum efri part kjóla og korselett úr latexi þar sem karlmannslíkami var fyrirmyndin þó um kvendragt væri að ræða.

Gaman er að geta þess að Jean Paul Gaultier er einn fyrstu er ögruðu með tvíræðri línu milli kynja í fatahönnun sinni.

Eitt hið heitasta nú í ár

Þykir efnið latex sem sagt eitt það heitasta nú í sumar og með haustinu og er Versace meðal þeirra tískuvelda sem láta ekki sitt eftir liggja. Christopher Kane þykir djarfur í þessum efnum svo og sérstaklega breski hönnuðurinn Richard Quinn.

Vilja sumir meina að til móts við þá tísku er fjallað var um hér fyrir nokkru undir heitinu „Barbicore“ megi hér finna „Fetishcore“. Eitt er víst að latex er, ef vel er að staðið, gæðaefni og jafnvel eitthvað sem almúginn ætti að
kynna sér betur.

Skylt efni: latex

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...