Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins
Mynd / kró
Fréttir 13. ágúst 2026

Langvarandi tjón á síðasta minkabúi landsins

Höfundur: Karólína Rós Ólafsdóttir
Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús.

Dalsbú í Mosfellsdal er síðasta minkabú landsins. Aðfaranótt 29. júlí var brotist inn á búið og dýrum hleypt út úr búrum svo mörg þúsund minkar léku lausum hala.

Mikill viðbúnaður var í sveitinni til að koma í veg fyrir að dýrin kæmust út fyrir öryggisgirðingu búsins og í nærumhverfið. Lögregla vann að aðgerðunum ásamt Matvælastofnun, sveitarfélaginu, starfsmönnum Dalsbús og minkaskyttum.

Áfall fyrir minka og menn

Ásgeir Pétursson, eigandi Dalsbús og eini minkabóndinn á Íslandi, lærði loðdýrarækt í Noregi og hefur unnið við búgreinina í áratugi. Hann segir atburðinn hafa verið mikið áfall fyrir sig jafnt sem dýrin. „Það eru enn einhver dýranna að deyja eftir innbrotið, úr streitu eða vegna áverka eftir allan hamaganginn,“ segir Ásgeir. Þó tekist hafi að ná miklum fjölda dýra er enn ekki ljóst hversu margir minkar komust út í umhverfið. „Við komum mörgum aftur inn í búr en það voru líka mörg dýr sem dóu eða þurfti að aflífa. Bæði voru unghögnar sem við fundum dauða á gólfinu, eflaust úr hjartastoppi, og svo voru minkaskytturnar hér á fullu,“ segir Ásgeir, en þau dýr sem sluppu út fyrir öryggisgirðingar geta ekki komið aftur inn á búið vegna smitvarna. „Við erum núna með fimm fiskikör af dauðum mink, við erum ekki búnir að telja en það eru líklegast þrjú til fjögur hundruð dýr.“

Minkar sem þekkjast ekki eiga ekki auðvelt með að vera saman í búri og geta verið árásargjarnir. Þessi minkur var bitinn illa í skottið og er með ljótt sár.
Tveir hvítir minkar saman í búri á Dalsbúi, síðasta minkabúi landsins.

Innbrotið vel skipulagt

Ásgeir hefur ekki lent í innbroti áður en segir að allt frá því að hann var í námi 1970 hafi aðrir loðdýrabændur varað hann við að svona gæti gerst. „Þetta var greinilega vel skipulagt,“ segir Ásgeir. „Þetta voru fagmenn sem unnu hratt. Þeir koma ofan að efsta húsinu og spenna upp fjögurra metra bílskúrshurð og hefjast svo handa. Þeir voru örugglega tveir á hverjum gangi, það eru þrjú hundurð búr hvorum megin við ganginn og hvert einasta var opnað, líklegast opnuð alltaf tvö í einu.“ Ásgeir metur að þetta hafi tekið tiltölulega stuttan tíma og hver gangur hafi tekið um fimmtán til tuttugu mínútur. „Þetta er hundrað metra langt hús og þarna eru 2500 búr. Hvert einasta var opnað og þau skilin eftir opin. Þeir vissu hvað þeir voru að gera.“ Öllum minkum var sleppt úr fjórum húsum. „Þeir fara ekki í neðsta húsið sem er ekki nema 500 metrum frá húsinu þar sem starfsmaður býr og þeir hafa ekki viljað vekja hann. Minkum var heldur ekki sleppt úr neðri hlið næstneðsta hússins en allt annað opnuðu þeir.“

„Hér voru 10.000 minkar á gólfunum og það var mikið verk,“ segir Ásgeir. Hann er þakklátur þeim sem komu og veittu honum aðstoð en bændur frá suðurlandi sem eru hættir loðdýrarækt komu honum til aðstoðar sem og fjölmargir nágrannar og kunningjar.

Tjón til framtíðar

Ásgeir segir tjónið mikið og margþætt. Við innbrotið voru unnar skemmdir á hurðum hússins og einhverjum innanstokksmunum. Búið var að brjóta háfa sem notaðir eru til að fanga mink og rífa net þeirra. Fjárhagslegt tjón hlýst mest af þeim mink sem hefur þurft að aflífa, hefur týnst eða skaddast eftir innbrotið. Tjónið sem Ásgeir segir að sé alvarlegast, og sé í raun altjón, er að stofninn er nú orðinn óþekktur. „Dýrin eru öll óþekkt, þau eru ekki með ættartölur lengur og eru ekki merkt. Við þekkjum þau bara af lit og svo þekkjum við gömlu dýrin en við eigum til dæmis erfitt með að átta okkur á því hvar geldu læðurnar eru innan um hin dýrin.“ Ásgeir útskýrir að þetta sé alvarlegt fyrir ræktunina. „Við getum ekki gengið að dýrunum sem við ættum annars að para næsta vor, við vitum ekki hvaða dýr eru systkini eða mæðgin og við viljum ekki rækta saman dýr með náin tengsl. Það hefur langvarandi afleiðingar að þekkja ekki skyldleikann á búinu.“

Í þeim húsum sem var brotist inn í stóðu búrin opin um morguninn og voru minkar um allt hús, inni og úti, um öll gólf og einhverjir komnir inn í geymslur og upp í hillur.

Í höndum yfirvalda

Mikil vinna er enn fyrir höndum en Ásgeir segir að næstu skref ráðist af ákvörðunum yfirvalda. „Við höldum áfram að hugsa um dýrin en næsta skref er að fá að vita hvort Bændasamtökin og atvinnuvegaráðuneytið komi sér saman um að banna loðdýrarækt, leggja búgreinina af og farga öllu frá mínu búi, eða hvort ráðuneytið og MAST leyfi mér að flytja inn ný dýr frá Noregi til að halda áfram að rækta stofninn næsta vor.“

Þá yrðu högnarnir á Dalsbúi aflífaðir og parað yrði við nýja högna erlendis frá. Ásgeir segist ekki vita hvenær ráðuneytið taki ákvörðun um málið en vill vera bjartsýnn þar sem loðdýraræktin er enn sem komið er bæði viðurkennd búgrein og atvinnugrein og Bændasamtökin hafa veitt honum stuðning.
 
„Ræktunarstarf og velferð dýranna er farin fyrir bí ef ekki verður gripið til einhverra aðgerða,“ segir Margrét Ágústa Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. „Ef ekki tekst að halda ræktuninni áfram blasir við sú staðreynd að búgreinin leggist af hér á landi. Það væri mjög alvarleg niðurstaða og ekki síst þegar litið er til þess að lögmæt atvinnustarfsemi myndi leggjast niður vegna ólögmætra aðgerða af hálfu ofstækissinna. Hvaða fordæmi gæfi slíkt til framtíðar litið? Bara út af því einu saman er augljóst að stjórnvöld þurfi ekki eingöngu að koma að málinu með afgerandi hætti heldur ber þeim beinlínis skylda til þess".
Fréttin hefur verið uppfærð.
Greiðslustaðan afar erfið
Fréttir 25. september 2026

Greiðslustaðan afar erfið

Sala á vörum Ístex hefur verið góð seinni part sumars. Greiðslustaðan er þó enn ...

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu
Fréttir 25. september 2026

Frestar verðhækkunum til að stuðla að lækkun verðbólgu

Sláturfélag Suðurlands frestar verðhækkunum haustsins til þess að koma til móts ...

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði
Fréttir 25. september 2026

Minna fjármagn til loftslagsaðgerða í landbúnaði

Framlag stjórnvalda til innleiðingar loftslagsaðgerða í landbúnaði verður skert ...

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá
Fréttir 24. september 2026

Heildarendurskoðun á lögum á dagskrá

Atvinnuvegaráðuneytið hefur kynnt áform um heildarendurskoðun á lögum um velferð...

Heildaruppskera í slöku meðallagi
Fréttir 21. september 2026

Heildaruppskera í slöku meðallagi

Nú líður að lokum ræktunartímabils útiræktaðs grænmetis og útlit fyrir að uppske...

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi
Fréttir 21. september 2026

Hagnaður nam 583 milljónum króna á fyrri árshelmingi

Hagnaður samstæðu Sláturfélags Suðurlands nam 583 milljónum króna á fyrri árshel...

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður
Fréttir 18. september 2026

Hrafnhildur Inga er sveitalistamaður

Á fjölmennri kjötsúpuhátíð á Hvolsvelli síðustu helgina í ágúst var boðið upp á ...

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn
Fréttir 17. september 2026

Tíundi Bændamarkaðurinn hafinn

Bændamarkaður Krónunnar hófst föstudaginn 28. ágúst í öllum verslunum um land al...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f