Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Verðlaunahafi Landstólpans  2026 fyrir miðið, Gísli Einarsson á milli Andra Þórs Árnasonar og Helgu Harðardóttur.
Verðlaunahafi Landstólpans 2026 fyrir miðið, Gísli Einarsson á milli Andra Þórs Árnasonar og Helgu Harðardóttur.
Mynd / Byggðastofnun
Fréttir 15. júní 2026

Landstólpinn veittur

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Landstólpinn, samfélagsviðurkenning Byggðastofnunar, var afhent á ársfundi stofnunarinnar nýverið, en henni er ætlað að varpa ljósi á það öfluga, fjölbreytta og skapandi starf sem unnið er í landsbyggðunum.

Við valið er leitað að aðilum eða verkefnum sem hafa eflt samstöðu íbúa, aukið virkni þeirra eða dregið upp jákvæða og sterka mynd af mannlífi úti á landi.

Í ár bárust Byggðastofnun alls 27 tilnefningar sextán ólíkra aðila og verkefna sem mörg hver hefðu sómt sér afar vel sem verðlaunahafar. Það var þó Gísli Einarsson sem hreppti hnossið, en hann hefur um langa hríð verið ötull drifkraftur í því að efla samfélagið, jafnt í eigin nærumhverfi sem á landsvísu.

Gísli ber þó nokkra titla; dagskrárgerðarmaður, uppistandari, samfélagsrýnir, blaðamaður, fararstjóri og rithöfundur en með fjölbreyttum og litríkum ferli sínum hefur hann markvisst stuðlað að jákvæðri ímynd landsbyggðarinnar. Gísli á að baki farsælan feril í fjölmiðlum; hann stofnaði héraðsfréttablaðið Skessuhorn árið 1998 og hefur um árabil starfað sem frétta- og dagskrárgerðarmaður hjá RÚV. Í sjónvarpsþáttunum Út og suður (2003–2007) og síðar Landanum (frá 2010) hefur hann ferðast á milli byggðarlaga til að segja sögur af fólki, menningu og atvinnulífi.

Það er skemmtileg tilviljun að fyrsta viðtal Gísla í Út og suður var einmitt við Jón Jónsson þjóðfræðing, sem var fyrsti handhafi Landstólpans á sínum tíma, árið 2011.

Að sögn Gísla fólst mikill skóli í gerð þessara þátta. Hann bendir á að það sé mikilvægt að sögur úr öllum landshlutum fái pláss í fjölmiðlum. Markmið hans hafi aldrei verið að sýna fólk úti á landi sem einhverja „kynlega kvisti“ heldur þvert á móti að sýna „venjulegt fólk að gera óvenjulega hluti“ og sanna að landsbyggðarfólk sé ekkert furðulegra en aðrir.

Með þessari faglegu nálgun hefur umfjöllun Gísla sýnt fram á öflugt atvinnulíf, ríka menningu og heilmikla nýsköpun um allt land. Hann kveðst sjálfur stoltastur af því að sýna fram á að nýsköpun sé jafn sjálfsögð í litlu þorpi og hún er á höfuðborgarsvæðinu, enda sé öflugt fólk alls staðar.

Auk viðurkenningarinnar hlýtur Gísli eina milljón króna í verðlaunafé ásamt sérstöku listaverki. Í ár er það olíumálverk eftir myndlistarkonuna Hjördísi Alexandersdóttur frá Þorlákshöfn. Hjördís sækir innblástur sinn meðal annars í íslenska náttúru, blóm og fugla, og hafa verk hennar ratað víða um heim eftir fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis.

Vonast Byggðastofnun til þess að viðurkenningin verði öðrum hvatning til að leggja lóð á vogarskálarnar þegar kemur að því að vekja athygli á blómlegum byggðum landsins.

Skylt efni: Byggðastofnun | Landstólpi

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...