Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Landbúnaður á krossgötum
Af vettvangi Bændasamtakana 20. október 2023

Landbúnaður á krossgötum

Höfundur: Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasamtaka Íslands

Dagur landbúnaðarins var haldinn nú öðru sinni, dagana 13. og 14. október sl., í samstarfi við Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Búnaðarsamband Eyjafjarðar.

Gunnar Þorgeirsson
formaður Bændasamtaka Íslands

Á föstudeginum var blásið til málþings í Hofi á Akureyri undir yfirskriftinni Landbúnaður á krossgötum, þar sem farið var yfir tækifæri og áskoranir í landbúnaði. Á laugardeginum héldu skógarbændur málþing og bændur í Eyjafirði og á Suðurlandi buðu heim á hlað og kynntu gestum og gangandi starfsemi sína. Málþingin voru afar vel sótt og vil ég þakka öllum sem gáfu sér tíma frá bústörfunum og mættu á staðinn og eins þeim sem fylgdust með í beinu streymi á Facebook síðu Bændasamtakanna. Sérstakar þakkir fara til þeirra sem skipulögðu málþingið, héldu erindi og til bændanna á Þórustöðum og Sölvastöðum í Eyjafjarðarsveit, á Garðshorni og Syðri-Bægisá í Hörgársveit og á Vesturholti í Þykkvabæ og Espiflöt í Reykholti. Það er í mínum huga eftir þessa reynslu að við munum festa þennan viðburð í sessi í samstarfi við bændur og hagaðila í landbúnaði.

Á málþinginu í Hofi kom ítrekað fram, bæði í kynningu starfsmanns BÍ og hjá þátttakendum í pallborðsumræðum, um mikilvægi þess að merkja íslenska framleiðslu þannig að neytendur hafi skýrt val um hvað er innlend framleiðsla og hvað eru innfluttar afurðir. Þess vegna hafa Bændasamtökin talað fyrir því að tekið verði í notkun upprunamerkið Íslenskt staðfest, sem staðfest er í úttekt af vottunarstofu og er ætlað að tryggja neytendum skýlausan rétt á upplýsingum um uppruna og innihald matvæla. Á Norðurlöndunum hefur landbúnaðarframleiðsla rækilega náð að festa sig í undirmeðvitund frændþjóða okkar. Í Svíþjóð hefur verið notast við upprunamerkið Från Sverige í yfir tuttugu ár, sem notuð er á nánast alla matvöru sem búin er til úr sænskum hráefnum. Þannig er það greypt í vitund sænskra neytenda að með því að velja sænska framleiðslu eru þeir ekki eingöngu að leitast eftir vörum frá sænskum bændum heldur einnig heilnæmum og öruggum mat. Hljómar kunnuglega? Í Noregi nota framleiðendur matvæla þar upprunamerkið Nyt Norge sem á það sammerkt með sænska upprunamerkinu að vera vel greypt í undirmeðvitund og kauphegðun norskra neytenda og það sem er merkilegt við norska upprunamerkið er að verslunin í Noregi hefur alfarið tekið það upp á sína arma, enda hefur neysla á kjöti og osti sem framleitt er í Noregi nærri því tvöfaldast frá því verslunin tók upprunamerkið í sínar hendur. Það væri virkilega til eftirbreytni og öllum neytendum til mikilla hagsbóta ef meðvitund og áhugi forsvarsmanna fyrirtækja í landbúnaði og verslunarinnar til að taka upp Íslenskt staðfest væri meiri. Því neytendur eiga ekki að þurfa að sætta sig við hvað sem er og verða að geta treyst því að uppruni þess sem þeir kaupa sé staðfestur. Það styrkir okkur í þessu verkefni að ákallið er frá neytendum enda eru íslenskar landbúnaðarvörur í beinni samkeppni við innfluttar vörur.

Á málþinginu var einnig rætt mikið um afkomu bænda og starfsskilyrði landbúnaðarins. Staðan er grafalvarleg og framleiðslan er að dragast saman í þessum rituðu orðum. Þetta er olíuskip sem verður afar erfitt að snúa því þeir fáu bændur sem eftir verða munu ekki svo glatt auka við framleiðsluna sína um það sem markaðurinn kallar eftir. Stjórn Bændasamtakanna hefur því óskað eftir neyðarfundi með ráðherrum fjármála annars vegar og matvæla hins vegar til að fara yfir mögulega aðkomu ríkisins og kalla eftir afstöðu þeirra til að bregðast við alvarlegri stöðu frumframleiðenda vegna versnandi stöðu í rekstrarumhverfi bænda. Það er sama hvar við berum niður í frumframleiðslunni, og þar eru ungir bændur ekki undanskildir þar sem vandi þeirra er gríðarlegur. Ef við stöndum ekki vörð um frumframleiðsluna þá er okkur vandi á höndum, þar sem við endurreisum ekki landbúnað frá grunni ef við glötum niður framleiðslunni á þessum örlagatímum hárra vaxta og hækkana á aðfangakeðjunni til framleiðslunnar. Lögum samkvæmt skulu bændur njóta sambærilegra kjara og aðrar stéttir. Hvað ætla stjórnvöld að gera í því?

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...