Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Landbúnaðarsýning í október
Fréttir 15. júní 2026

Landbúnaðarsýning í október

Höfundur: Þröstur Helgason

Sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 verður haldin í Laugardalshöllinni dagana 9.-11. október nk. Markmið sýningarinnar er að kynna íslenskan landbúnað og leiða saman fyrirtæki og einstaklinga sem starfa í atvinnugreininni. Einnig að kynna fyrir gestum hreinleika íslenskra landbúnaðarafurða og þá miklu tækni sem nú er til staðar í íslenskum búskap.

Ólafur M. Jóhannesson hjá sýningarfyrirtækinu Ritsýn sf. er framkvæmdastjóri sýningarinnar. „ Þetta er þriðja landbúnaðarsýningin sem við höldum í Laugardalshöllinni. Eins og á fyrri sýningum eru öll sýningarpláss seld og greinilegt að það er mikill þróttur í íslenskum landbúnaði. Íslenskur landbúnaður er í sókn og þar er gróska og nýsköpun. Sýningin mun endurspegla þessa miklu grósku og þá má ekki gleyma því að á óróa- og stríðstímum verður landbúnaður á heimagrund stöðugt mikilvægara öryggistæki.“

Bændur þakka framtakið

Seinasta sýning var haldin 2022 og sló hún öll aðsóknarmet í Höllinni. „Á seinustu sýningu komu margir bændur að máli við mig og þökkuðu fyrir framtakið,“ segir Ólafur. „Var einkar áhugavert að tala við bændur sem komu víða að af landinu. Sjónarhólar margir en allir áttu það sameiginlegt að hafa ástríðu fyrir búskapnum og mikinn metnað fyrir hönd okkar ágæta lands. Bændur finna hversu mikilvægt það er að framleiða afurðir sem eru lausar við mengun úr jarðvegi og þar sem eru hóflegar sýklavarnir. Íslenskir bændur gegna líka miklu hlutverki við fæðuöryggi á viðsjárveðum tíma.“

Ólafur segist hlakka til að opna Íslenskan landbúnað 2026. „Þar munu gestir sjá hversu fullkomin tækni er orðin í landbúnaðinum en þarna verða allir helstu vélasalar landsins og þjónustufyrirtæki. Þá eru líka öflug fyrirtæki er tengjast ferðaþjónustu og húsbyggingum. Matvæla- og afurðafyrirtæki kynna einnig sínar hreinu og gómsætu landbúnaðarafurðir. Það eru mikil forréttindi að búa í okkar hreina og gjöfula landi og sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 endurspeglar þennan veruleika.“

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...