Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Fiskeldisnemar á fóðurpramma Arctic fish á Patreksfirði.
Fiskeldisnemar á fóðurpramma Arctic fish á Patreksfirði.
Líf og starf 3. júní 2022

Kynntu sér fiskeldið á sunnanverðum Vestfjörðum

Höfundur: Ástríður Einarsdóttir, verkefnastjóri við fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum

Nemendur í diplómanámi í fiskeldi við Háskólann á Hólum voru á faraldsfæti á dögunum og kynntu sér fiskeldið á sunnanverðum Vestfjörðum.

Nám í fiskeldi er byggt upp af tíu námskeiðum sem kennd eru í fjarnámi, hvert á fætur öðru, yfir tvær annir, auk 12 vikna verknáms á þriðju önn. Í hverju námskeiði er gert ráð fyrir 3-4 daga staðbundinni lotu sem að jafnaði fer fram í Verinu á Sauðárkróki. Þar hittast nemendur og kennarar, efla tengsl og takast á við viðfangsefni sem betur fer á að kljást við á staðnum en gegnum veraldarvefinn.

Að þessu sinni fór þó staðlotan ekki fram heima í héraði heldur vestur á fjörðum.

Þrettán manna hópur á vegum Háskólans á Hólum, nemendur í námskeiðinu Eldisbúnaði ásamt starfsfólki skólans, hafði bækistöð á Patreksfirði um nokkurra daga skeið á meðan ýmsum verkefnum var sinnt í nálægum byggðum.

Matreiðslumaður og veiðikló í fiskeldisnámi – glaðhlakkalegur með fenginn.

Í heimsókn hjá Arctic Fish

Lengst dvaldi hópurinn í seiðaeldis­stöð Arctic Fish í Norðurbotni í Tálknafirði þar sem þau spreyttu sig á vatnsgæðamælingum, seltu­þols­prófum og mælingum á blóðplasma, um leið og tækifæri gafst til að kynnast náið starfsemi stöðvarinnar. Farið var út í kvíar og fóðurpramma fyrirtækisins á Patreksfirði. Bækistöðvar Arnarlax á Bíldudal voru heimsóttar þar sem starfsemi fyrirtækisins var kynnt. Seiðaeldisstöð Arnarlax á Gileyri var skoðuð og einnig sláturhúsið á Bíldudal. Að lokum var staldrað við í bleikjueldinu hjá Tungusilungi í Tálknafirði.

Að sögn Ólafs Sigurgeirssonar lektors gefst með þessum heimsóknum ákaflega kærkomið tækifæri til að komast nær við­fangs­efninu og sjá og skilja hvernig fjölbreytt starfsemi tengd fiskeldi gengur fyrir sig. Efni námskeiðsins sem staðarlotan heyrir undir er að talsverðu leyti um endurnýtingu á vatni í fiskeldi og rekstur endurnýtingarkerfa. Seiðaeldisstöðin í Norðurbotni er fullkomnasta endurnýtingarstöðin á Íslandi og hentar ákaflega vel til að fræðast um slík kerfi. Þar er vítt til veggja og góðar aðstæður til að vinna námstengd verkefni í slíkri heimsókn. Við tekur svo að þróa slíkar verklegar lotur enn frekar í samstarfi við iðnaðinn.

Aðili að Evrópusamstarfs­verkefninu Bridges

Háskólinn á Hólum er, ásamt fleiri skólastofnunum og fiskeldis­fyrirtækjum á Íslandi, aðili að Evrópusamstarfsverkefninu Bridges. Nafn verkefnisins stendur fyrir Blue Region Initiative for Developing Growth, Employability and Skills in The Farming of fin-fish og er verkefnið styrkt af Erasmus, menntaáætlun Evrópusambandsins.

Markmið verkefnisins er, í stuttu máli, að stuðla að því að menntastofnanir á sviði fiskeldis muni gegna lykilhlutverki sem nokkurs konar miðstöðvar þekkingar, færni, nýsköpunar og frumkvöðlastarfsemi á heimsmælikvarða.

Stærsti styrkur Erasmus til slíks verklefnis á Norðurlöndum

Styrkurinn sem fékkst til verkefnisins er sá stærsti sem Erasmus hefur veitt til þessa skólastigs á Norðurlöndunum og meðal stærstu styrkja sem veittir hafa verið innan þess hluta menntaáætlunarinnar sem kallast Centers of Vocational Excellence, og mætti útleggja á íslensku sem Miðstöðvar framúrskarandi starfsnáms. Verkefnið er til fjögurra ára, hófst í nóvember árið 2020 og lýkur árið 2024.

Eitt af meginmarkmiðum verkefnisins er að stuðla að auknum tengslum starfsmenntunar við iðnaðinn, meðal annars með kortlagningu þekkingar, hæfni og þarfa, sem aftur stuðlar að auknum gæðum og skilvirkni starfsnámsins. Í því samhengi er unnið að endurskoðun og frekari uppbyggingu verknáms við fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum. Náms- og skoðunarferð nemenda deildarinnar var liður í þeirri uppbyggingu og mæltist vel fyrir af nemendum, starfsfólki og gestgjöfum. Fyrirtækin á Vestfjörðum fá kærar þakkir fyrir móttökurnar og hjálpsemina.

Fiskeldi er í gífurlegum vexti hér á landi þessi misserin og þörf fyrir fólk með þekkingu á sviðinu hefur því aldrei verið meiri. Tækniþróunin er hröð og kröfur um gæði og sjálfbærni í matvælaframleiðslu eykst í takt við tíðarandann. Háskólinn á Hólum leggur metnað sinn í að fylgja þessari þróun.

Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum er alþjóðleg miðstöð rannsókna og kennslu í sjávar- og vatnalíffræði, fiskeldi og fiskalíffræði.

Deildin stuðlar að faglegri uppbyggingu fiskeldis í anda sjálfbærrar þróunar og kemur víða að þróunarstarfi á sínum fræðasviðum.Deildin á í formlegu samstarfi um kennslu og rannsóknir við fjölda háskóla og rannsóknastofnana bæði hérlendis og erlendis. Nemendur taka virkan þátt í fjölbreyttum rannsóknar- og þróunarverkefnum sem sérfræðingar deildarinnar vinna að og fá þannig að kynnast af eigin raun nýjungum og verklagi.

Leitað að ytri sníkjudýrum á laxaseiðum.

Fjölbreytt nám tengt fiskeldi

Fiskeldis- og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum býður upp á fjöl­breytt nám tengt fiskeldi, nýtingu auðlinda og sjávar- og vatnalíffræði. Auk þess leiðbeina sérfræðingar deildarinnar fjöl­mörgum doktorsnemum, sem skráðir eru við aðra háskóla, og leið­beina fjölda erlendra nemenda í tímabundnu rannsóknaverknámi. Í námi og kennslu við fiskeldis- og fiskalíffræðideild er lögð áhersla á mikil og góð tengsl við atvinnulífið, sem og aðrar mennta- og fræðslustofnanir hérlendis og erlendis, og jafnframt á öfluga tengingu náms og rannsókna. Umsóknarfrestur um nám við Háskólann á Hólum er til 5. júní.

Ástríður Einarsdóttir
verkefnastjóri við fiskeldis-
og fiskalíffræðideild Háskólans á Hólum

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur
Fréttir 16. janúar 2026

Greiðir tæplega helming skuldar við bændur

Vegna rekstrarvanda á undanförnum misserum náði Ístex ekki að standa í skilum vi...

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni
Fréttir 16. janúar 2026

Ingólfur sæmdur fálkaorðunni

Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, sæmdi fjórtán Íslendinga heiðursmerki hinnar...

Mata fær langmest af kjötkvóta
Fréttir 16. janúar 2026

Mata fær langmest af kjötkvóta

Búið er að úthluta tollkvótum fyrir landbúnaðarvörur frá Evrópusambandinu fyrir ...

2025 hlýjast frá upphafi mælinga
Fréttir 16. janúar 2026

2025 hlýjast frá upphafi mælinga

Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga samkvæmt upplýsingum f...

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa
Fréttir 16. janúar 2026

Dæmdur fyrir vanrækslu nautgripa

Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi nautgripabónda til sex mánaða skilorðsbundi...

Hvað á klukkan að vera?
Fréttir 15. janúar 2026

Hvað á klukkan að vera?

Nú eru í gangi tveir undirskriftalistar á island.is þar sem annars vegar er bari...

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður
Fréttir 15. janúar 2026

Undanþáguheimildir til sameininga felldar niður

Drög að frumvarpi um breytingu á búvörulögum hafa verið birt á vef Alþingis. Í þ...

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló
Fréttir 15. janúar 2026

Tap af nautaeldi nam 19 krónum á hvert framleitt kíló

Enn er nokkurt rekstrartap af nautaeldi á Íslandi og samkvæmt rekstraryfirliti R...