Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Hér má sjá Harry Styles á forsíðu Vouge árið 2020, Luisa Capetillo í jakkafötum, ein fyrst kvenna í Púertó Ríkó í kringum 1920 og svo módel íklætt kynlausri hönnun Alectra Rothschild á tískuviku Kaupmannahafnar nýverið.
Hér má sjá Harry Styles á forsíðu Vouge árið 2020, Luisa Capetillo í jakkafötum, ein fyrst kvenna í Púertó Ríkó í kringum 1920 og svo módel íklætt kynlausri hönnun Alectra Rothschild á tískuviku Kaupmannahafnar nýverið.
Á faglegum nótum 2. september 2022

Kynjalaus tíska 2022

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Tískuiðnaðurinn er í stöðugri þróun eftir því sem samfélagið breytist.

Þegar við lítum eins og hundrað ár aftur í tímann á sögu fatnaðar, var hlutverk hans mun aðgreindara er kom að kynjunum. Í stuttu máli var gert ráð fyrir að konur klæddust kjólum, karlar buxum og lítið verið að leika sér með þær hugmyndir vegna væntinga samfélagsins. Þeir sem fóru yfir strikið voru oftar en ekki litnir hornauga, en þó varð línan sveigjanlegri eftir því sem árin liðu.

Í kringum 1990 mátti sjá konur í herðabreiðum jakkafötum sitja valdsmannslega í hægindastólum á auglýsingasíðum tískublaðanna á meðan viðmælendur þeirra, karlmennirnir, hnipruðu sig saman í fósturstellingu í sófanum. Þarna var kynhlutverkunum svissað. Það sem er svo einmitt hæstmóðins í dag kallast kynlaus tíska. Hannaður er fatnaður og fylgihlutir sem gera helst ekki greinarmun á karl- og kvenlegum líkamlegum einkennum og tjá kynvitund sem ekki er tvískipt.
– Þá í flokk karla eða kvenna.

Fyrstu skrefin

Kynlaus tíska hóf vegferð sína þegar konum fannst klæðnaður þeirra takmarka frammistöðu þeirra og daglegar athafnir. Hreyfingin náði miklum vinsældum þegar kvenkyns aðgerðarsinnar komu fram og fóru að klæðast karlmannsfötum.

Besta dæmið er Luisa Capetillo, áköf kvenréttindakona og fyrsta konan í Púertó Ríkó til að klæðast karlmannsjakkafötum og bindi á almannafæri fyrir rétt rúmum hundrað árum.

Hugarástand ætti ekki endilega að vera kynbundið

„Hugmyndin um að fatnaður sem tjáning á persónuleika okkar tilheyri einu kyni eða öðru er sú félagslega uppbygging sem þarf að taka í sundur“, segir Nick Paget, sérfræðingur hjá World Global Style Network (WGSN), alþjóðlegu fyrirtæki sem greinir verslunarhegðun neytenda og bætir við að „fatnaður undir hatti flæðigerva (e. Gender fluid) – kynvitund sem breytist eða er fljótandi, getur verið hvaða fatnaður sem er, ef fólk staldraði við og velti því fyrir sér.“

Áhrifamiklir stjórnendur tískuviku Bandaríkjanna bættu svo nýlega við opinberum „*kynsegin (non-binary)“ flokki á dögum tískuvikunnar margfrægu – New York Fashion Week. Þá í stað þess að hafa einungis hefðbundna flokka fatnaðar ætluðum konum eða körlum. (Kynsegin er regnhlífarhugtak fyrir kynvitundir sem falla utan einungis karl- eða kvenkyns.)

Carolina Stevenson, yfirmaður menningar- og sögufræða við London College of Fashion, tekur undir. „Ef samfélagið er ekki lengur skipulagt í kringum kynjatvískiptingu, þurfum við ekki lengur þessa sérstæðu flokka í tísku.“

Enda er kynjatvíhyggja (e. binary gender) í raun hefðbundin og úreld hugmynd um kyn sem takmarkar möguleikana við karl og konu og ætti í raun ekki að hafa það vald til að takmarka tjáningu tískunnar.

Fatahönnuðir í dag

Á tískuviku Kaupmannahafnar nýverið var að sama skapi mikil áhersla lögð á það að fatnaðurinn væri fremur tjáning á persónuleika heldur en það félagslega viðhorf að tilheyra einu kyni ofar öðru.

Að venju gengu módel meistaranema Konunglegu dönsku akademíunnar niður pallana en útskriftarsýningar þeirra eru þekktar fyrir öflugan og ferskan sköpunarkraft í þéttsetinni dagskrá.

Var áberandi mikill áhugi fyrir hönnun Alectra Rothschild með línuna Masculin, en hönnunin var kynnt sem „Ástarbréf til trans samfélagsins“. Fatnaðinum má lýsa á þann hátt að henta þeirri manneskju er við öll finnum innra með okkur – hver sem hún er – og frelsið til að klæðast því sem hugurinn girnist.

When Harry met Harris

Einn heitasti hönnuðurinn með þá stefnu í huga er Harris Reed. Vill sá sérstaklega berjast fyrir viðurkenningu á flæði kynjanna með verkum sínum og hefur meðal annars fengið lof sem maðurinn á bak við einn best klædda mann heimsins. Harry Styles heitir sá, sem sjálfur segist kjósa að klæða sig eftir skapi og eigin geðþótta, hvort sem það er í blúndur eða leðurjakka. Í desember fyrir tveimur árum vakti forsíðumynd af honum mikla athygli, þá klæddum af Harris Reed í ballkjól fyrir forsíðu tímaritsins Vouge. Að berjast fyrir víðtækari og viðurkenndari heimi virðist vera í huga allra og 2022 er svo sannarlega ár kynlausrar tísku.

* Kynsegin (e. non-binary) Regnhlífarhugtak fyrir kynvitundir sem falla utan einungis karl- eða kvenkyns.

Skylt efni: tískan

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...