Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Í ár mun Skagafjörður hýsa Landsmót hestamanna sem fer fram að Hólum í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí.
Í ár mun Skagafjörður hýsa Landsmót hestamanna sem fer fram að Hólum í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí.
Á faglegum nótum 8. júní 2026

Kynbótasýningar vorsins

Höfundur: Þorvaldur Kristjánsson
Þorvaldur Kristjánsson.

Opnað var fyrir skráningar á kynbótasýningar hrossa þriðjudaginn 5. maí og má með sanni segja að skráningar hafi aldrei farið jafnskart af stað. Eftir klukkutíma frá opnun var þegar búið að skrá um 900 hross.

Afar mikil eftirspurn var eftir plássum á kynbótasýningar vorsins og var um metskráningu að ræða. Fyrir fram var búist við aukningu þetta vorið og því 300 plássum bætt við miðað við síðasta Landsmótsvor í sýningaráætlun, en þátttakan fór fram úr björtustu vonum. Staðan varð fljótlega sú að ekkert laust pláss var á kynbótasýningar sunnanlands frá 26. maí til 24. júní. Vegna þessa var sýningu bætt við í Víðidalnum dagana 22. til 24. júní og stökum dögum bætt við á aðrar sýningar og samtals því bætt við 150 plássum. Nú er búið að festa pláss fyrir 1.309 hross. Vorið 2024 voru 1.013 dómar felldir í aðdraganda Landsmóts og árið 2022 voru 983 dómar felldir að vorinu þannig að líklegt er að um fjölgun dóma verði í ár miðað við síðustu Landsmótsvor.

Miklar framfarir hafa verið á síðastliðnum árum í íslenskri hrossarækt sem endurspeglar mikinn metnað og áhuga hjá fjölda hrossaræktenda og sem sést nú á þeirri miklu þátttöku sem verður á sýningum vorsins. Staðan er verðmæt og vegurinn bjartur fram undan.

Listahátíðin Landsmót hestamanna

Líkt og Listahátíð í Reykjavík er Landsmót hestamanna haldið annað hvert ár. Landsmót er magnaður viðburður og verðmæti hans er margslungið. Hvað kynbætur hestsins varðar eru Landsmót mikilvæg mælistika á framfarir í ræktun. Þar gefst fólki tækifæri til að sjá bestu hross hvers tíma í einstaklingssýningum og þau hross sem þarna koma fram eru líklegust til að skapa erfðaframfarir næstu kynslóða. Þá er sýning afkvæmahesta eitt skemmtilegasta og magnaðasta dagskráratriði Landsmóta. Afar verðmætt er fyrir ræktendur að skoða afkvæmahópa þeirra stóðhesta sem hljóta afkvæmaverðlaun á mótinu og fá betri vitneskju um hvernig hestgerðir þeir eru að gefa. Landsmót og það mikla svið sem það er fyrir hrossin skapar líka verðmætan drifkraft inn í ræktunarstarfið sem eykur við metnað ræktenda. Þannig að verðmæti Landsmóta er mikið og ákveðið fjöregg sem við verðum að vernda.

Í aðdraganda Landsmóts verður mér hugsað til þeirrar keppni sem einkenna mótin og þá er gott að hafa í huga að láta aldrei kappið bera fegurðina ofurliði; gleyma aldrei virðingunni fyrir hestinum. Við verðum ávallt að hafa í huga að sönn fegurð getur ekki skapast nema hestinum líði vel, mýkt og gegnumflæði einkenni framgöngu manns og hests og að allt sem við viljum að hesturinn framkvæmi sé á hans forsendum.

Vísindaleg þekking grunnurinn

Vísindaleg þekking á öllu sem viðkemur hestinum verður ávallt að vera grunnurinn að öllu okkar starfi, hvort sem um er að ræða atvinnufólk í greininni eða áhugafólk í hestamennsku. Þarfir hestsins verða alltaf að vera í forgrunni. En svo er það auðvitað listin sem er rauði þráðurinn í öllu okkar starfi. Allt sem við erum í raun að gera með hestinn snýr að lífsfyllingu okkar sem mannvera. Ræktun hestsins snýst að miklu leyti um fegurðarsköpun, reiðmennska á háu stigi er list í sjálfu sér og því er talað um reiðlist. Vegna þessa hef ég ávallt litið á Landsmót hestamanna sem listviðburð í raun; listahátíð. Við erum stödd á viðburði þar sem ólíkar hestgerðir af miklum gæðum leika listir sínar; fegurð hestanna, samspil knapa og hests þegar best tekst til er list í sjálfu sér og allt í umbúnaði mótsins ætti að bera því vitni að um sjónarspil fegurðar sé að ræða.

Í ár mun Skagafjörður hýsa þessa hátíð en Landsmót fer fram að Hólum í Hjaltadal dagana 5. til 11. júlí. Sýningar vorsins og Landsmót hestamanna er sannkallað tilhlökkunarefni og við hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins hlökkum til samstarfsins við hestamenn í vor og ekki síst á mótinu sjálfu.

Höfundur er ráðunautur í hrossarækt hjá RML.

Skylt efni: Hrossarækt

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...