Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Sumarhöll Vigdísar Sveinsdóttur og Guðjóns Guðmundssonar í Árósum.
Sumarhöll Vigdísar Sveinsdóttur og Guðjóns Guðmundssonar í Árósum.
Mynd / VH
Líf og starf 19. september 2022

Kotgarðar í Árósum

Höfundur: Vilmundur Hansen

Danir mega eiga það að þeir kunna listina að „hugge sig“. Í Árósum og víðar í Danmörku er að finna það sem er kallað „kolonihave“, grendargarðar eða kotgarðar, eins og ég kýs að kalla nýlenduna mitt í borginni.

Garðarnir eru hugsaðir sem afdrep fyrir fólk sem býr í blokk og hefur ekki aðgang að einkagarði. Hver og einn garður er í einkaeigu og ganga þeir kaupum og sölum en kaupin eru háð skilyrðum sem eiga að koma í veg fyrir að hægt sé að braska með garðana. Félagsskapurinn í kringum kotgarðana kallast Fritidssamfund og verða meðlimir þess að fara eftir sameiginlegum reglum samfélagsins.

Fritid og þétting byggðar

Kotgarðarnir eru í dag 59 og um 400 fermetrar hver og innan lóðamarkanna mega eigendur þeirra reisa 40 fermetra hús og 10 fermetra gróðurhús. Húsin á svæðinu eru nánast öll heilsárshús með öllum nútímaþægindum, þrátt fyrir að reglur kveði á um að ekki megi dvelja í þeim á nóttunni yfir vetrartímann.

Gróðurhúsin mega vera 10 fermetrar að stærð.

Nýlendan á sér nokkuð langa sögu og landið var lengi utan við bæinn og í eigu lestafélagsins DSB. Í seinni heimsstyrjöldinni gátu íbúar Árósa leigt þar matjurtagarða sem með tímanum þróaðist yfir í garða með litlum húsum og svo stærri húsum og meira í átt til staða sem hægt var að „hugge sig“ frá skarkala borgarinnar. Árið 2008 átti DSB undir högg að sækja fjárhagslega og sáu nýlendubúarnir sér leik á borði og keyptu landið.

Með tímanum hefur borgin færst nær kotgörðunum og byggingaverktakar ásælast landið í nafni framfara og fyrir nokkrum árum misstu nokkrir nýlendubúar garðana sína undir veg og blokkir.

Þétting byggðar er svo nauðsynleg í Árósum eins og í Reykjavík að nýjustu blokkirnar eru ekki nema fáa metra frá lóðamörkum sumra kotgarðanna og það sem verra er, að mati nýlendubúa, geta blokkarbúar horft niður í garðana af svölunum.

Svölum sem lofað var að ekki yrðu byggðar á þeirri hlið sem snýr að görðunum.

Útþensla og þétting byggðar er farin að þrengja að kotgörðunum.

Ólíkir garðar

Eitt af því sem gerir kotgarðabyggðina skemmtilega er hversu ólíkir garðarnir eru. Sumir eru verulega skipulagðir og jafnvel skipulagðir eftir ákveðnum garðstíl eins og japanski garðurinn sem er verulega glæsilegur.
Aðrir eru meira villtir og frjálslegri í forminu. Garðurinn þeirra Vigdísar og Guðjóns flokkast undir það sem kallast frjálst form að því leyti að skipulag hans er sjálfsprottið eftir hugmyndum þeirra og nennu og breytist eftir því sem þeim finnst hann fallegastur hverju sinni.

Í ár eru það til dæmis rauð og blá blóm sem eru mest áberandi.

Guðjón Guðmundsson og Vigdís Sveinsdóttir kotgarðsbændur.

Góður staður til að vera á

Hjónin Guðjón Guðmundsson og Vigdís Sveinsdóttir keyptu sér kot í Fritids-nýlendunni árið 2004 og hafa síðan þá byggt við húsið og ræktað kotgarðinn sinn af alúð. Að þeirra sögn er fátt betra en að eyða frítímanum í kotinu og dunda sér í garðinum.

Gaui, eins og Guðjón er yfirleitt kallaður, segist heimsækja nýlenduna á hverjum degi og yfirleitt á hjóli og eyða þar tíma til að hlaða batteríin.

Skylt efni: kotgarðar

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...

Heimsmethafinn Arney
23. júní 2023

Heimsmethafinn Arney

Réttalistinn 2026
2. september 2026

Réttalistinn 2026

Flottasti strumpastrætóinn
12. október 2026

Flottasti strumpastrætóinn

Stjörnuspá vikunnar
8. október 2026

Stjörnuspá vikunnar

Arndís Inga
23. september 2026

Arndís Inga

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f