Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Kirkjuferja
Bóndinn 20. febrúar 2020

Kirkjuferja

Baldur og Sigríður hófu saman búskap á Kirkjuferju árið 2006. Baldur er þar fæddur og uppalinn.
Afi hans og amma fluttu á jörðina árið 1948. 

Baldur tekur við jörðinni af foreldrum sínum. 

Býli:  Kirkjuferja.

Staðsett í sveit:  Ölfus.

Ábúendur: Baldur Guðmundsson og Sigríður Sigfúsdóttir ásamt dætrum sínum fjórum, þeim Vigdísi Þóru, 19 ára, Jónínu, 17 ára, Helgu Guðrúnu, 13 ára og Sigurbjörgu Mörtu, 11 ára.

Fjölskyldustærð (og gæludýra): Við erum sjö í heimili, við sex ásamt einum tilvonandi tengdasyni. Svo eru það hressu hundarnir, þeir Sallý, Týra og Hrappur. Einn köttur sem heitir Mýra.
Stærð jarðar?  130 ha að stærð og þar af er 15 ha tún.

Gerð bús? Blómlegur hobbíbúskapur með kindum og hestum.

Fjöldi búfjár og tegundir? Við erum með 83 kindur og 30 hesta.

Hvernig gengur hefðbundinn vinnu­dagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn vinnudagur hjá okkur í sveitinni gengur þannig vanalega fyrir sig að allir á bænum vakna á virkum dögum um klukkan sjö og borða saman morgunmat. Börnin fara í skólann og aðrir til vinnu utan bús. Þegar líða fer á daginn fara ábúendur að tínast heim og farið er í hesthúsið og fjárhúsið.

Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Skemmtilegast við bústörfin er þegar sauðburður stendur yfir og heyskapur. En leiðinlegast er þegar moka þarf út úr fjárhúsinu.

Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir fimm ár? Færri en betri hross, fleiri kindur en það eru ekki allir sammála í fjölskyldunni með það.

Hvaða skoðun hafið þið á félagsmálum bænda? Félagsmál bænda eru í ágætum málum en afkoma bænda mætti vera betri.

Hvernig mun íslenskum land­búnaði vegna í framtíðinni? Hann mun náttúrlega blómstra, því hráefnið er svo gott sem við erum með.

Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara?  Á útflutningi á ferskum landbúnaðarvörum í gegnum Þorlákshöfn.

Hvað er alltaf til í ísskápnum? Lýsi, mjólk, smjör, piparostur og stundum einn til tveir bjórar.

Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Lambalæri eða hryggur með öllu tilheyrandi, þess má geta að kvöldmatartíminn er samverustund fjölskyldunnar á bænum, því þá borða allir saman og fara yfir daginn og hvað þurfi að gera á búinu.

Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Þegar hrúturinn Hannibal tók sig til og reyndi að rota bóndann á bænum með því að stanga hann beint á hausinn. Það gerðist þegar verið var að rýja, en hrúturinn átti einfaldlega ekki að vera viðstaddur.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...