Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Liturinn sem einkennir jólastjörnuna er ekki sjálfur blómliturinn, heldur eru það svokölluð háblöð sem fá á sig þessa áberandi liti til að auka sýnileika blómanna.
Liturinn sem einkennir jólastjörnuna er ekki sjálfur blómliturinn, heldur eru það svokölluð háblöð sem fá á sig þessa áberandi liti til að auka sýnileika blómanna.
Á faglegum nótum 12. nóvember 2019

Jólastjörnur þola illa kulda

Höfundur: Ingólfur Guðnason fagbrautarstjóri garðyrkjuframleiðslu, LbkÍ
Misjafnt er hversu mikla áherslu landsmenn leggja á jólaundirbúninginn og hvenær þykir mátulegt að hefja hann. Sumir vilja helst byrja sem fyrst, meðan aðrir vilja sem minnst af honum vita þar til langt er liðið á aðventu. Blómabændur eru hins vegar komnir í jólaskap strax í júlí, þegar ræktun jólastjörnunnar hefst.
 
Jólastjarnan (Euphor­bia pulcherr­ima), sem vex villt í skóglendi Mexíkó og víðar í Mið-Ameríku, er ræktuð í gróðurhúsum í um 5 mánuði áður en hún fer að sjást í verslunum seint á haustin. Plönturnar eru ræktaðar af litlum græðlingum sem settir eru í potta í byrjun júlí. Þegar vöxturinn er kominn á gott ról þurfa plönturnar sérstaka meðhöndlun í gróðrarstöðinni svo þær verði fallega litaðar á réttum tíma.
 
Jólastjörnurnar eru svokallaðar skammdegisplöntur, þær hefja blómmyndun þegar dagurinn er stuttur. Í upphafi ræktunar vaxa plönturnar og dafna í gróðurhúsunun meðan dagurinn er enn lengri en nóttin. Frá því í september þurfa ræktendurnir síðan að myrkva plönturnar í um það bil 14 klukkustundir á hverjum sólarhring með því að hylja þær með svörtum dúk allt þar til náttúruleg daglengd er orðin nægilega stutt til að blómmyndun haldist óröskuð. Við þessa daglengdarmeðhöndlun hætta plönturnar að mynda ný laufblöð en taka í staðinn að þroska blóm. Notuð er vaxtarlýsing og sérhæfð vaxtarstýring til að halda plöntunum þéttum, ferskum og fallegum. 
 
Blómin smá en efstu laufblöðin í áberandi litum
 
Upprunalegi litur jólastjörnunnar og sá algengasti í ræktun er eldrauður, en með kynbótum hefur tekist að fá fram fleiri liti, hvíta, mismunandi bleika og jafnvel gular og flekkóttar plöntur. Liturinn sem einkennir jólastjörnuna er ekki sjálfur blómliturinn, heldur eru það svokölluð háblöð sem fá á sig þessa áberandi liti til að auka sýnileika blómanna fyrir skordýr og kólibrífugla sem sækja næringu í blómin og bera um leið frjókorn milli þeirra. Blómin sjálf eru lítil og gul á litinn þegar þau þroskast. Sterkur litur háblaðanna er því auglýsing um að hér sé þroskuð blóm að finna. Í heimahúsum helst litur háblaðanna fram eftir vetri.
 
Viðkvæmt blóm
 
Meðhöndlun jólastjörnu er einföld ef nokkrum grunnleiðbeiningum er fylgt. Hún þolir ekki kulda og það þarf að hafa í huga allt frá því plantan er sótt í blómabúðina. Hitastig undir 15°C getur valdið skaða. Þegar heim er komið er plantan sett á bjartan stað þar sem hún nýtur sín vel, fjarri dragsúgi og hitasveiflum. Ekki er þörf á umpottun. Fylgjast þarf með vökvun en ekki ætti að vökva hana meira en svo að allt umframvatn nái að renna undan pottinum. Notað er volgt vatn þegar vökvað er.
 
Jólastjarna er ekki baneitruð!
 
Þótt engar rannsóknir bendi til þess að jólastjarna valdi bráðum eituráhrifum er rétt að forðast að mjólkursafi sem seytlar úr sárum sem kunna að koma á plöntuna, komist í snertingu við húð eða slímhúð því það getur valdið ertingu. Til að raunveruleg eitur­áhrif komi í ljós þarf að innbyrða ansi margar jólastjörnur í heilu lagi en hún ku vera vond á bragðið.  
 
Ingólfur Guðnason
fagbrautarstjóri garðyrkjuframleiðslu, LbkÍ Reykjum, Ölfusi.
Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...