Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 13. október 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Íslenskur landbúnaður hefur um langt árabil glímt við þá þversögn að geta framleitt meira af eigin fóðri en samt reitt sig að stórum hluta á innflutt aðföng. Reglulega minna alþjóðlegar sveiflur okkur á þessa stöðu þegar verð á korni, áburði og flutningum hækkar skyndilega vegna atburða sem eiga sér stað þúsundir kílómetra frá íslenskum sveitabæjum. Þá vaknar spurningin: Hvers vegna framleiðum við ekki meira sjálf?

Svarið hefur ekki aðeins falist í veðráttunni eða ræktunarskilyrðum. Ekki síður hefur skortur á innviðum staðið í vegi fyrir framþróun. Kornrækt verður ekki öflug atvinnugrein nema til staðar séu þurrkunarstöðvar, geymslur og skipulagður markaður. Það er einmitt á þessu sviði sem nú eru að verða jákvæðar breytingar.

Uppbygging Kornskemmunnar í Eyjafirði er skýrt dæmi um það. Þar hafa bændur sameinast um að byggja upp aðstöðu sem tekur við korni til þurrkunar, geymslu og sölu. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Eftirspurnin er svo mikil að rekstraraðilar tala í blaðinu í dag um að þeir hafi tæplega undan. Slík orð heyrast ekki oft þegar rætt er um nýjar greinar í íslenskum landbúnaði.

Það sem ekki síður vekur athygli er að þetta er framtak bænda sjálfra. Þeir hafa ekki setið hjá og beðið eftir því að aðrir leysi vandann. Þeir hafa fjárfest, tekið áhættu og byggt upp þá innviði sem nauðsynlegir eru til að íslensk kornrækt geti vaxið. Þeir hafa þar með lagt grunn að nýjum möguleikum fyrir bændur á öllu svæðinu.

Svipuð aðstaða er að verða til á Austurlandi. Þar hafa kornbændur á Héraði stofnað félag og eru að byggja nýja þurrkstöð í Fellabæ. Með þeirri uppbyggingu styrkjast innviðir kornræktar enn frekar og fleiri framleiðendur fá tækifæri til að taka þátt í markaði sem fram að þessu hefur verið sundurlaus og oft bundinn við eigin notkun á hverjum bæ.

Þetta er mikilvægt vegna þess að kornrækt snýst ekki aðeins um ákveðna plöntu í akri. Hún snýst um nýtingu lands, aukna verðmætasköpun og möguleika bænda til að framleiða meira af þeim aðföngum sem þeir sjálfir þurfa. Þegar bóndi getur ræktað hluta af eigin kjarnfóðri verður reksturinn stöðugri og síður háður ófyrirsjáanlegum sveiflum á alþjóðamörkuðum.

Þarna glittir einnig í stærra samfélagslegt verkefni. Á undanförnum árum hefur oft verið rætt um fæðuöryggi þjóðarinnar. Sú umræða verður stundum flókin en í raun er fæðuöryggi það að geta framleitt sem mest af nauðsynlegum matvælum og aðföngum innanlands þegar á reynir. Hvert tonn af íslensku korni sem kemur í stað innflutnings er framlag til þess markmiðs.

Auðvitað verður Ísland seint stórveldi í kornrækt. Það er heldur ekki markmiðið. Markmiðið er að nýta þau svæði og þau skilyrði sem við höfum á skynsamlegan hátt. Reynslan úr Eyjafirði, af Austurlandi og fleiri kornræktarsvæðum sýnir að möguleikarnir eru meiri en margir gerðu sér grein fyrir fyrir fáeinum árum.

Þess vegna er uppbygging kornsamlaga og þurrkstöðva meðal áhugaverðustu nýjunga í íslenskum landbúnaði um þessar mundir. Þar eru bændur að leggja grunn að atvinnugrein sem getur styrkt rekstur búanna, aukið nýtingu lands og bætt fæðuöryggi þjóðarinnar. Það er ekki sjálfgefið að slík tækifæri skapist. En þegar þau blasa við ber að grípa þau. Bændur fyrir norðan og austan hafa sýnt að það er hægt.

Skylt efni: kornrækt | jarmið

Skreiðarhjallur í Torino
Fréttir 13. október 2026

Skreiðarhjallur í Torino

„Við höfðum mikið að segja, tókum okkar pláss og vöktum gríðarlega athygli,“ seg...

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu
Fréttir 13. október 2026

Meiri lægðagangur í NV-Evrópu

Halldór Björnsson, fagstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofu Íslands segir of...

Koma öðrum flokki ekki í verð
Fréttir 13. október 2026

Koma öðrum flokki ekki í verð

Gulræturnar eru á leið á markað en sökum tíðarfars verður hlutfall annars flokks...

Djúp lægð nálgast landið
Fréttir 12. október 2026

Djúp lægð nálgast landið

Einar Sveinbjörnsson, veðurfræðingur hjá Bliku, varar við djúpri lægð sem nálgas...

Ráðleggingar frá grasalækninum
Fréttir 12. október 2026

Ráðleggingar frá grasalækninum

Fjölmargar jurtir hafa lækningamátt og hafa verið notaðar í þúsundir ára. Í flen...

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...

https://bestun.airserve.net/banner_bundles/de3e87e0d8dde67f98882b3ac12f8b2f