Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Skoðun 29. maí 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Á Ítalíu hafa þau mafíuna. Við höfum kynnst henni í gegnum Al Pacino og Robert De Niro. Í Noregi höfum við NorgesGruppen, Rema og Coop. Enginn hefur gert bíómyndir um þau.

Svona hefst grein eftir norska pistlahöfundinn Monu Stenseth í Telemarksavisa (ta.no). Pistillinn fjallar um þrjú stærstu fyrirtækin á norska dagvörumarkaðnum sem nefnd eru hér að ofan.

Stenseth segir að starfsemi þeirra sé að sjálfsögðu ekki alveg sambærileg. „Mafían stundar skipulagða glæpastarfssemi handan laga og reglna. En norski dagvörumarkaðurinn fær beinlínis leyfi til að starfa eins og hann gerir.“ Stenseth er þetta gjörsamlega óskiljanlegt. „Við erum eitt ríkasta land í heimi en höfum matarmarkað sem virðist með þeim fátæklegustu.“

Stenseth heldur því nefnilega fram að keðjurnar, sem nefndar voru hér að ofan, séu í raun þrjár hliðar á sama kerfinu. Munurinn liggi einkum í grunnlit vörumerkis búðanna.

Hún nefnir í greininni þrjár ástæður fyrir því að hún versli heldur í nánast hvaða öðru landi sem er. Í fyrsta lagi innfluttir ávextir og grænmeti sem boðið er upp á í þessum búðum sem flogið hefur verið plastpökkuðum langt að. Í öðru lagi villandi orðalag á vörumerkingum sem ganga umfram allt út á að nýta glufur í reglugerðum um það hvað megi kalla ýmsa hluti í matvælaiðnaði. Og í þriðja lagi eigin vörumerki búðakeðjanna eins og First Price, Eldorado, Prima, Coop og Änglamark. Matvörur undir þessum merkjum framleiða búðirnar sjálfar og eru þar með í samkeppni við sjálfstæða matvælaframleiðendur. Á sama tíma ráða búðirnar auðvitað hilluplássinu.

Um öll þessi þrjú atriði hefur Stenseth ýmislegt misjafnt að segja. Gæði matarins séu æði misjöfn í þessum búðakeðjum og verðið alls ekki eins lágt og fólki sé talin trú um.

Hún lýsir búðamafíunni sem fákeppnisfyrirkomulagi. Fyrirtækin þrjú séu með 96-97% dagvörumarkaðarins í Noregi. NorgesGruppen er með um 43,5%, Coop um 29% og Rema 1000 um 24%.

Þetta þýði í raun að nær allur matur sem Norðmenn kaupi fari í gegnum þrjú fyrirtæki. Þessi fyrirtæki ráða raunar ekki aðeins verslununum heldur einnig dreifingunni, heildsölunni, vörulagerunum, flutningunum, sem sagt leiðunum sem maturinn fer áður en hann endar í hillum verslananna. Fram hjá þessu kerfi þurfi litlir framleiðendur að komast ef þeir vilji komast inn í búðirnar með vörur sínar.

Afleiðingin er æ verri matvæli. Ofurunninn matur sem nú hafi verið sögð ein helsta ógn við heilsu í vestrænum samfélögum. Og á meðan þessi matur fær æ meira pláss í hillunum verði hagnaður búðakeðjanna æ meiri.

Fólk er hvatt til að velja með veskinu, að versla annars staðar, en Stenseth segir að aðrar búðir séu af afar skornum skammti. Þær séu þrjú til fjögur prósent af markaðnum.

Sá fátæklegi dagvörumarkaður sem Stenseth lýsir í Noregi minnir óþyrmilega á þann íslenska. Við sitjum í sömu súpunni. Því verður að breyta.

Skylt efni: Matvara | jarmið | smasala

Vel sótt Landbúnaðarsýning
Fréttir 12. október 2026

Vel sótt Landbúnaðarsýning

Sýningin Íslenskur Landbúnaður fór fram í Laugardalshöllinni síðustu helgi, 9.-1...

Íslensk klassík með amerískan hatt
Fréttir 12. október 2026

Íslensk klassík með amerískan hatt

Karamellusnúðurinn sem fæst í hverju bakaríi og nær hverri kjörbúð er klassískur...

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði
Fréttir 12. október 2026

Viðarkyndistöð sett upp á Reyðarfirði

Uppsetning nýrrar kyndistöðvar stendur nú yfir á Reyðarfirði. Henni er ætlað að ...

Áform um að reisa hænsnabú
Fréttir 12. október 2026

Áform um að reisa hænsnabú

Matfugl áformar að reisa nýtt hænsnabú á Tindstöðum á Kjalarnesi, annars vegar t...

Átaksverkefni um endurheimt votlendis
Fréttir 9. október 2026

Átaksverkefni um endurheimt votlendis

Átaksverkefni um endurheimt votlendis á ríkisjörðum hófst formlega á föstudaginn...

Orkuver á þaki reiðhallarinnar
Fréttir 9. október 2026

Orkuver á þaki reiðhallarinnar

Á þaki reiðhallarinnar á Lýsuhóli á Snæfellsnesi hefur verið sett upp birtuorkuk...

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá
Fréttir 9. október 2026

Matarveisla, ráðgjöf og margt að sjá

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin í Laugardalshöll dagana 9.–11. október næ...

Allir básar uppbókaðir
Fréttir 9. október 2026

Allir básar uppbókaðir

Landbúnaðarsýningin 2026 verður haldin 9.–11. október í Laugardalshöll. Þetta er...