Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Jarmað, hneggjað, baulað ...
Mynd / Pexels - Pixabay
Skoðun 16. apríl 2026

Jarmað, hneggjað, baulað ...

Sjálfvirknivæðing og gervigreind hefur breytt störfum í landbúnaði eins og annars staðar í samfélaginu. Framleiðniaukning hefur til að mynda verið mikil á kúabúum eins og sjá má Í viðtali við hjónin í Gunnbjarnarholti á Skeiðum í blaðinu í dag. Þessi þróun mun halda áfram og stigmagnast á næstu árum. Róbótar munu í auknum mæli sinna endurtekningarsömum störfum og gervigreindarlíkön eru auðvitað þegar farin að sinna ýmiss konar greiningarvinnu, forritun, lögfræðivinnu, skrifstofuvinnu og áfram mætti telja. 

Áhrifin af þessu munu þó væntanlega ekki vera aðeins á framleiðni, sem mun aukast, heldur munu störf bæði breytast og hverfa. Störf fólks munu að einhverju leyti snúast um eitthvað annað en þau hafa gert, eins og til dæmis kúabænda sem geta einbeitt sér að velferð kúa sinna á meðan róbótinn sér um að mjólka. En hlýtur  störfum ekki líka að fækka? Hvaða áhrif mun það hafa á þörf fyrir vinnuafl? Og mun fólk vinna styttri vinnudag? 

Gera má ráð fyrir að áhrifin af gervigreindinni séu enn aðeins að litlu leyti komin fram. En ef þau fækka störfum og auka jafnframt framleiðni þá þýðir það ekki aðeins að róttæk breyting verði á vinnumarkaðnum heldur einnig á hinu opinbera, ríkisrekstrinum sjálfum. Líklegt er að sækja þurfi nýjar skatttekjur á sama tíma og störfum fækkar og þjónusta við borgara þarf að aukast. Æ fleira fólk gæti farið fyrr á eftirlaun sem skapar enn meira álag á lífeyriskerfið. Og áhrifin á þjónustu sem hið opinbera veitir er ófyrirséð, til dæmis innan heilbrigðiskerfisins.

Miðað við það hversu hratt gervigreindarlausnir þróast þessa dagana er ljóst að breytingar eru handan við hornið. Þær verða á næstu mánuðum, misserum, árum. Eftir áratug gæti samfélagið verið algerlega breytt, ekki bara vinna fólks heldur daglegt líf, virkni kerfanna sem við höfum byggt upp og þannig mætti áfram telja. Spurningin er hvort við séum búin undir þessar breytingar. 

Í þessu ljósi vekur það óneitanlega talsverða athygli að nýkynnt atvinnustefna ríkisstjórnarinnar segir afar fátt um gervigreindina og áhrif hennar á störf fólks næstu tíu árin, vinnumarkaðinn yfirleitt og hvað þá kerfi hins opinbera og efnahaginn. Á bak við þessa atvinnustefnu virðist ekki vera teljanleg greining á þessum nýja veruleika sem blasir við okkur öllum. Ein af 35 aðgerðum sem taldar eru upp í áætlun sem fylgir atvinnustefnunni snýr beinlínis að gervigreindinni og þar er lögð áhersla á að auka framleiðni, verðmætasköpun og betri opinbera þjónustu. Leggja á 1,1 milljarð króna í uppbyggingu reikniinnviða og vélbúnaðar. 

Vonandi eru einhverjir innan í hinu opinbera kerfi að vinna einhvers konar greiningu á því hvernig gervigreind muni breyta samfélagi okkar á næstu mánuðum og misserum. Það er ekki bara spurning um framleiðniaukningu og alþjóðlega samkeppnisstöðu landsins heldur einnig um þróun samfélagsgerðarinnar sjálfrar. 

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórss...

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...