Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Kubota M6-132 er traktor sem gerir allt, en þó með minni lúxus en í sumum tilfellum. Appelsínuguli einkennislitur Kubota er áberandi og þekkist tegundin úr mikilli fjarlægð.
Kubota M6-132 er traktor sem gerir allt, en þó með minni lúxus en í sumum tilfellum. Appelsínuguli einkennislitur Kubota er áberandi og þekkist tegundin úr mikilli fjarlægð.
Mynd / Ástvaldur Lárusson
Líf og starf 7. nóvember 2023

Japanskur jálkur

Höfundur: Ástvaldur Lárusson

Kubota dráttarvélar hafa getið sér gott orðspor hér á landi, enda á hagstæðu verði og áreiðanlegar. Þær hafa þó aldrei verið þekktar fyrir að bjóða upp á mikinn lúxus því stefna framleiðandans er að gera hlutina einfalda og þar með færri atriði sem geta bilað.

Að utan er þessi vél nútímaleg og mjög svipuð flestum hefðbundnum traktorum. Helsti munurinn er að þessi er appelsínugulur, ekki grænn, rauður eða blár. Ámoksturstækin og felgurnar eru í sama lit. Dekkin virðast minni en á mörgum traktorum í þessum stærðarflokki – sérstaklega framdekkin. Annað sem vekur athygli er að ökumannshúsið er staðsett nokkuð framarlega og er afturrúðan nánast í línu við afturöxulinn. Óvíst hvort þetta hafi nokkur áhrif önnur en að útsýnið að dráttarkróknum getur verið skert.

Fyrstu viðbrögð þegar stigið er um borð er að allt er hrátt og einfalt. Sést það til að mynda á því að hægra megin við sætið eru fjórar mekanískar stjórnstangir fyrir vökvaúrtökin, í staðinn fyrir hátæknilegar rafmagnsstýringar. Þetta er einfalt og gott kerfi sem bilar seint og er ódýrt að laga ef eitthvað fer aflaga. Það er hvorki hægt að segja að innréttingin sé falleg eða ljót, enda er þetta bara traktor þar sem allt snýst um að vera praktískt og endingargott við mikla vinnu.

Fjaðrar prýðilega
Húsið er nokkuð framarlega miðað við afturdekkin.

Ökumannshúsið er á gormafjöðrun á meðan framhásingin er á vökvafjöðrun. Þótt fjöðrun hússins gæti talist frumstæð í samanburði við þær vélar

sem eru með loftpúðafjöðrun, þá ræður hún býsna vel við ójafnt undirlag, hvort sem brunað er eftir þjóðvegi eða akri. Ökumannssætið er af þýsku bergi brotið – frá framleiðandanum Grammer, sem þykir gera gæðavörur. Það er með loftpúðafjöðrun og fjaðrar bæði upp og niður, sem og fram og aftur. Ekki er hægt að segja annað en að Kubota M6 sé vel fjaðrandi og almennt þægilegur traktor.

Útsýnið úr ökumannshúsinu er til sóma. Ámoksturstækin sjást þó þau séu í neðstu stöðu – ekki þar sem nefið er svo lágt, heldur er það svo mjótt. Þá er þakgluggi til að ökumaðurinn sjái í tækin í hæstu stöðu. Húsið er sérstaklega rúmgott og kemst bóndi í fullri stærð vel fyrir í farþegasætinu.
Hljóðeinangrunin er nokkuð góð og í þjóðvegaakstri undir litlu álagi þarf rétt aðeins að hækka róminn til að ræða við farþegann sér við hlið. Hægt er að þakka gírkassanum að vissu leyti fyrir þennan eiginleika, enda er hæsti gírinn mjög hár og snýst vélin á lágum snúningum þegar þeyst er um á hámarkshraða, sem eru fjörutíu kílómetrar á klukkustund.

Hér er flóknum rafmagnsstýringum á vökvasneiðum fórnað í nafni einfaldleika og áreiðanleika. Snertiskjár fyrir nákvæmar stillingar og Iso-Bus.
Skiptingar stífar

Gírkassinn á það til að vera með harðar skiptingar, sérstaklega þegar hann er kaldur. Skiptingarnar verða liprari þegar allt er búið að hitna, en finnur ökumaðurinn samt sem áður vel fyrir hverri gírskiptingu. Gírkassinn er með þrjú drif, sem eru með átta kúplingsfría gíra hvert. Kassinn býður upp á sjálfskiptingu eða að ökumaðurinn skipti sjálfur milli þrepa með því að ýta eða toga í stjórnpinnann fyrir gírana, sem staðsettur er fremst á stjórnborðinu. Þegar gírkassinn er í sjálfskiptingu á hann til að vera seinn að skipta niður þegar álagið eykst upp brekkur og dregur þá niður í vélinni.

Við stýrið er vendigír eins og í flestum traktorum. Einnig er hægt að velja akstursstefnu með takka á stjórnpinnanum fyrir gírana. Hægt er að kveikja á sjálfvirkri kúplingu og er því hægt að nema alveg staðar með því einu að ýta á bremsufetilinn. Þessi sjálfvirka kúpling er þó ekki alveg fumlaus og vilji maður losna við alla rykki er betra að nota gamla góða kúplingsfetilinn í vinnu eins og að safna rúllum. Stjórnpinninn fyrir ámoksturstækin er nokkuð fyrir ofan og til hliðar við stjórnborðið. Því getur verið ankannalegt að beita honum og nær maður ekki að vera alveg slakur með höndina.

Kubota M6-132 er liprari en gengur og gerist. Hún er útbúin svokölluðum Bi-Speed búnaði sem snýr framdrifinu hraðar en afturdrifinu og klórar hún sig í enn þrengri beygju en þegar hún er einungis í afturdrifinu. Mótorinn er 6,1 lítra en fjögurra strokka, þannig að hver stimpill er býsna stór, sem skilar góðu togi.

Mjúkt sæti, fjöðrun á húsi og hljóðeinangrun gera notkun Kubota M6 nokkuð þægilega. Farþegasæti rúmar fullorðna.

Þá er hann 133 hestöfl við flestar aðstæður, en undir álagi losnar um 20 auka hestöfl.

Skjár með ýmsa möguleika

Vélin í þessum prufuakstri var útbúin sjö tommu snertiskjá, sem staðsettur er rétt framan við stjórnborðið. Þetta er aukahlutur sem gefur notandanum möguleika á að nálgast mun meiri stillingar á vélinni en ella. Með skjánum er til að mynda hægt að afmarka gírana sem vélin notar

og velja byrjunargír, en óþarfi er að taka af stað í lægsta gír.

Skjárinn er með Iso-Bus tengi sem fer beint í aukahluti eins og rúllusamstæðu

og áburðardreifara. Þá getur skjárinn tengst við GPS kúlu sem gefur ýmsa möguleika þegar kemur að nákvæmnisbúskap og myndavél til að sjá betur á blinda punkta. Valmyndin er ekki sú nútímalegasta, en þeir sem eru með metnað fyrir að nýta alla eiginleika dráttarvélarinnar ættu að geta ráðið fram úr henni.

Að lokum

Hjá Þór hf. kostar Kubota M6 frá 14.787.000 krónum, en vélin í þessum prufuakstri myndi vera á 16.024.000 krónur miðað við gengi evru 146. Öll verð eru án vsk. Þessi traktor er engin lúxuskerra, en með flestum þeim búnaði sem bændur vantar, eins og Load-Sensing vökvadælu, fjóra hraða á aflúrtaki, frambúnað, skotkrók, loftkælingu o.s.frv. Notkun hennar er blátt áfram og ættu flestir bændur að vera snöggir að tileinka sér alla eiginleika hennar.

Útsýnið fram á við er með sóma.


Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...