Eilífðarefni geta borist úr verksmiðjum og í nærliggjandi umhverfi og safnast þar fyrir.
Eilífðarefni geta borist úr verksmiðjum og í nærliggjandi umhverfi og safnast þar fyrir.
Mynd / Ivabalk hjá Pixabay
Utan úr heimi 29. október 2026

Íbúar uggandi vegna starfsemi efnaverksmiðju

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

– Hátt hlutfall pfas-efna í blóðsýnum

Nú er komið í ljós að magn pfas-efna, svokallaðra eilífðarefna, hefur greinst í blóði 70% íbúa í bæ í grennd við Blackpool, í því sem talið er háu magni, yfir 20ng/ml.

Efnaverksmiðja sem framleiðir flúorefni til iðnaðar er staðsett í útjaðri bæjarins. Bæjaryfirvöld hyggjast loka tveimur ræktarlöndum í grennd við verksmiðjuna og ráðleggja íbúum að þvo og afhýða það sem þeir rækta sjálfir.

Nýrnakrabbamein algengari

Fjöldi fólks býr í grennd við efnaverksmiðju AGC í bænum Thornton-Cleveleys, norður af Blackpool á Bretlandi. The Guardian greinir frá niðurstöðunum og þar kemur fram að í blóði sonar eins viðmælanda mældist magnið 111 ng/ml.

Mælingar sýndu að nær 70% þeirra sem blóðsýni voru mæld úr reyndust innihalda aukið magn Pfoa, sem tengt er alvarlegum sjúkdómum, sér í lagi nýrnakrabbameini.

Bresk stjórnvöld létu gera rannsókn á svæðinu. Í niðurstöðum hennar komust rannsakendur að þeirri niðurstöðu að á tveimur svæðum í grennd við Blackpool er tíðni nýrnakrabbameina hærri en almennt er. Tíðni annarra krabbameina reyndist ekki hærri en á landsvísu.

Ítarlegri úttekt var gerð og niðurstöður hennar þær að mögulega væri um tilviljanakenndar sveiflur að ræða og ekki tilefni til frekari rannsókna að svo stöddu.

Áhyggjufullir íbúar

Íbúi segist áhyggjufullur og óttast að mikill skaði sé þegar skeður. Annar sem nýlega lét fjarlægja krabbameinsæxli, sem myndast hafði í baki hennar, og hefur glímt við mikil heilsufarsvandamál, spyr hvernig hægt sé að losna við slík efni úr líkamanum. 436 ng/ml mældust í blóði hennar.

Yfirvöld hafa ráðlagt íbúum í kílómetra radíus við efnaverksmiðjuna að þvo og afhýða það sem þeir rækta í görðunum sínum og neyta ekki eggja úr heimaræktun. Sveitarfélagið hefur áætlanir um að loka tveimur ræktunarsvæðum, þar sem íbúar hafa ræktað grænmeti nálægt verksmiðjunni, af heilsufarsástæðum.

Íbúi sem hefur ræktað í matjurtagörðunum undanfarin fimm ár fékk afhent bréf um að gildi Pfoa-efnis í rauðrófum sem hann ræktaði hefði mælst hæst af öllu því sem var mælt.

Mælingar hafi ekki spádómsgildi

Talsmaður AGC Chemicals Europe segir í viðtali við The Guardian að þau séu meðvituð um blóðrannsóknir íbúanna en niðurstöðum hafi ekki verið deilt með þeim. Hann leggur áherslu á að bresk stjórnvöld segi mælingar á eilífðarefnum með blóðsýnatökum ekki hafa spádómsgildi um framtíðarheilsu og geti stundum valdið óþarfa áhyggjum.

Fyrirtækið framleiðir flúorefni sem eru notuð í bílaiðnaði, flug- og geimferðriðnaði, olíu- og gasiðnaði.

Pfas-efni eru þúsundir tilbúinna efnasambanda, gjarnan kölluð eilífðarefni, þar sem þau brotna hægt eða ekki niður og safnast upp í lífverum og umhverfi. Á Bretlandi eru engin öryggisviðmið um magn Pfas-efna í blóði. Í Bandaríkjunum er viðmiðið 20ng/ml. Hollenska lýðheilsu- og umhverfisstofnunin reiknaði sambærilegt gildi út frá öryggisviðmiðum Matvælaöryggisstofnunar Evrópu. Reiknað viðmið þeirra er 6,9 ng/ml. Mælt gildi yfir hámarksviðmiðum þýðir ekki að viðkomandi verði örugglega veikur. Pfas-efni finnast víðar en í matvælum, svo sem í byggingarefnum, fötum, raftækjum og snyrtivörum. Slík efni mælast í blóði nær allra. Evrópskar rannsóknir hafa þó sýnt að þau fari minnkandi og séu svæðisbundin, svo sem hollensk rannsókn frá 2025. 

Skylt efni: Bretlandseyjar | pfas

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...