Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Árið 2016 var farið í stutta tilraunaveiði í júlí og var töluvert af laxi komið í ánna. Meðfylgjandi mynd er af  Páli Ólafssyni frá þeirri ferð.
Árið 2016 var farið í stutta tilraunaveiði í júlí og var töluvert af laxi komið í ánna. Meðfylgjandi mynd er af Páli Ólafssyni frá þeirri ferð.
Mynd / Gunnar Bender
Í deiglunni 15. júní 2017

Opnað á ný í Selá í Álftafirði

Höfundur: Gunnar Bender
Selá í Álftafirði hefur verið lokuð fyrir stangveiði núna í þrjú ár, en verður aðeins opnuð núna í sumar fyrir veiðimenn. Við heyrðum aðeins í Páli Ólafssyni, einum af leigutökum árinnar, fyrir nokkrum dögum. 
 
,,Við tókum við leigunni á Selá árið 2013, eftir nokkur mögur ár á undan,“ segir Páll Ólafsson.
„Strax fyrsta árið sáum við að staðan á ánni var ekki góð og fengum við á staðinn fiskifræðing að nafni Bjarni Jónsson til þess að seiðamæla og skoða í hvaða ástandi áin var. Eftir að hann hafði rannsakað ána var okkur ljóst að áin bæri góð hrygningarskilyrði en hún væri viðkvæm og þyrfti að hjálpa henni af stað aftur þannig að hún yrði ákjósanlegur staður fyrir veiðimenn í framtíðinni.“
 
Ákveðið að friða ána í nokkur ár
 
„Eftir að hafa fengið þessa úttekt frá Bjarna var ákveðið ásamt bændum í sveitinni að friða ána næstu 3–4 árin og leyfa náttúrunni að sjá um sína.  Við hófum því að grafa seiði með hjálp Bjarna og sumarið 2016 sáum við loksins að hvíldin hafði borið árangur enda voru komnir laxar á nær helming veiðistaða. Í júlí í fyrra kíktum við í stutta tilraunaveiði, veiddum einn og hálfan dag. Við lönduðum 9 löxum upp í 87 cm og því var ákveðið að hefja tilraunarveiðar sumarið 2017.“
 
Einn skemmtilegasti bardagi við fisk sem ég hef upplifað
 
Mér er í fersku minni þegar ég og makkerinn minn fórum upp í gljúfrið í þessari ferð og hann sagði við mig að það væri allt fullt af laxi við stein sem er staðsettur neðar í gljúfrinu. Hann hafi veitt einn lax þar fyrr um morguninn en hann hafi aldrei séð einn einasta fisk þar áður en þessi tók. Ég ákvað því að kíkja á þennan stein og kanna aðstæður en eftir að hafa skimað eftir löxum í nokkrar mínútur og ekki séð bein í ánni spurði ég hvort við ættum ekki frekar að kíkja á aðra staði neðar og kanna aðstæður. Félaginn var samt 100% að það væri lax þarna og bað mig um að kasta „upstream“ og láta fluguna slá niður í steininn. Auðvitað ákvað ég að prófa og kastaði „frances“ upp í strauminn og lét hana fara niður fyrir mig þannig að hún myndi sleikja steininn og í fyrsta kasti fann ég að það var rifið í fluguna. 
 
Þá tók við einn skemmtilegasti bardagi við fisk sem ég hef upplifað því fiskurinn hafði nóg pláss en ég varð að láta mér lynda að standa á sama stað allan tímann þar sem ekki var hægt að færa sig fet. 
Eftir 20 mínútur landaði ég líka þessum gullfallega laxi sem reyndist vera 86 cm. Eftir að þessi lax tók sáum við um 10 laxa synda undan steininum og sannaði það því þá sögusagnir um að þó svo að maður sjái ekki lax verður maður að láta á það reyna.
 
Sumarið 2017 höfum við því ákveðið að selja 6–8 helgar með því fyrirkomulagi að aðeins er veitt frá fimmtudegi til sunnudags og verður áin því hvíld í 3–4 daga á milli holla,“ sagði Páll enn fremur.
Það verður gaman að sjá hvernig veiðin gengur í sumar í ánni, áin er falleg og sérstaklega uppi í gljúfri.“
Megináherslan að tryggja Íslandi sem mest ákvörðunarvald
Fréttaskýring 28. ágúst 2026

Megináherslan að tryggja Íslandi sem mest ákvörðunarvald

Mikið hefur verið rætt um áhrif ESB aðildar á landbúnað en samkvæmt skýrslu Bænd...

Sterk rök fyrir sérlausnum fyrir landbúnað
Fréttaskýring 28. ágúst 2026

Sterk rök fyrir sérlausnum fyrir landbúnað

Davíð Þór Björgvinsson er lögmaður á Thales lögfræðiþjónustu og fyrrverandi dóma...

Sérstaða Íslands slík að taka verði tillit til hennar
Fréttaskýring 28. ágúst 2026

Sérstaða Íslands slík að taka verði tillit til hennar

Margrét Einarsdóttir, prófessor við lagadeild Háskólans í Reykjavík, er ein af þ...

Hver á hvað við ESB-aðild?
Fréttaskýring 28. ágúst 2026

Hver á hvað við ESB-aðild?

Eignarhald auðlinda og ákvörðunarvald yfir þeim hefur verið til umræðu í tengslu...

Greiðslumarkið og ESB
Fréttaskýring 27. ágúst 2026

Greiðslumarkið og ESB

Umræða um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu hefur einkum snúist um toll...

„Við hvað eru menn hræddir?“
Fréttaskýring 14. ágúst 2026

„Við hvað eru menn hræddir?“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra bregst hér við nokkrum spurning...

Aðild fæli í sér víðtækar breytingar fyrir landbúnaðinn
Fréttaskýring 14. ágúst 2026

Aðild fæli í sér víðtækar breytingar fyrir landbúnaðinn

Möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu myndi fela í sér mun víðtækari breytin...

Innbrot í eldisbú alvarleg þróun
Fréttaskýring 14. ágúst 2026

Innbrot í eldisbú alvarleg þróun

Brotist hefur verið inn í þrjú eldisbú síðan í maí; svínabú Stjörnugríss í Brimn...