Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Hvers virði eru loforð ríkisins?
Mynd / Úr safni
Skoðun 9. mars 2026

Hvers virði eru loforð ríkisins?

Höfundur: Guðný Lára Guðrúnardóttir
Guðný Lára Guðrúnardóttir

Hvað eru samþykktar samgönguáætlanir mikils virði ef þær standast aðeins þar til pólitískir vindar breytast?

Fjarðarheiðargöng voru ekki tilfallandi hugmynd. Þau voru niðurstaða áratugalangrar vinnu, faglegra greininga og víðtækrar pólitískrar sáttar. Þau voru skilgreind sem næsta jarðgangaverkefni Íslands. Undirbúningi var lokið. Göngin eru tilbúin til útboðs.

Samt er nú lagt til að þau víki.

Þetta er ekki tæknileg forgangsfærsla, heldur stefnumarkandi ákvörðun með víðtæk áhrif. Þetta er ákvörðun sem hefur raunverulegar afleiðingar fyrir öryggi fólks, heilbrigðisþjónustu og framtíð heils samfélags.

Fjarðarheiði er fjallvegur í yfir 600 metra hæð. Hún lokast oft tugum daga á ári. Þar hafa orðið alvarleg slys. Þar hefur fólk misst lífið. Þetta er ekki óvænt áhætta. Þetta er raunveruleiki sem hefur ítrekað sýnt sig, með alvarlegum afleiðingum.

Samt er íbúum sagt að bíða áfram.

Bíða þrátt fyrir að engar nýjar faglegar forsendur hafi komið fram. Bíða þrátt fyrir að göngin séu tilbúin. Bíða þrátt fyrir að sameining sveitarfélaga og uppbygging þjónustu hafi byggst á því að örugg heilsárstenging kæmi til.

Samgönguáætlanir eiga að vera traust langtímaverkfæri sem samfélög, fyrirtæki og opinberar stofnanir geta byggt ákvarðanir sínar á. Þær eiga að byggja á faglegu mati, öryggissjónarmiðum og heildarhagsmunum. Ekki skammtímapólitík eða breytilegum áherslum ráðherra hverju sinni. Þegar stórar, fullundirbúnar innviðaframkvæmdir geta horfið af borðinu án nýrra raka er ekki aðeins verið að fresta verkefni, heldur raska grundvelli trausts, fyrirsjáanleika og ábyrgðar í stjórnsýslunni. Langtímahugsun er orðin að skiptimynt og samfélögum er sagt að aðlagast óstöðugleikanum.

Þá verðum við öll að staldra við: ef slíkar ákvarðanir eru ekki stöðugar, ef öryggi fólks og framtíð samfélaga getur sveiflast með pólitískum vindum, pólitískum stormviðrum. Hvað getum við þá raunverulega treyst á í opinberri stefnumótun?

Þetta er ekki aðeins samgöngumál. Þetta snýst um hvort fólk geti treyst því sem ríkið lofar og gert langtímaplön. Þetta er ábyrgðarmál.

Spurningin sem við verðum að spyrja er einföld:

Viljum við í alvöru búa við stjórnsýslu þar sem faglega undirbyggðar ákvarðanir um öryggi fólks geta sveiflast með pólitískum vindum?

Fjarðarheiðargöng eru ekki sérhagsmunamál. Þau eru öryggisverkefni. Þau eru heilbrigðismál. Þau eru byggðastefna í framkvæmd.

Að fresta þeim er meðvituð ákvörðun um að viðhalda hættu sem hægt er að afnema.

Það er ákvörðun sem á skilið miklu meiri umræðu en einfalt færsluatriði í nýrri áætlun.

Höfundur er sveitarstjórnarfulltrúi í Múlaþingi en fyrst og fremst íbúi í Seyðisfirði.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...