Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Hvers vegna að endurheimta íslenskar mýrar?
Mynd / Teikningar: Fífa Jónsdóttir
Lesendarýni 20. júní 2025

Hvers vegna að endurheimta íslenskar mýrar?

Höfundur: Iðunn Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Landi og skógi

Frá upphafi tuttugustu aldar hefur votlendi minnkað um 64–71% á heimsvísu og um helmingi af íslensku mýrlendi hefur verið raskað af mannavöldum. Það er því ljóst að fyrst og fremst þurfum við að vernda það óraskaða votlendi sem eftir er í heiminum. Í annan stað er forgangsmál að endurheimta allt það votlendi sem enn er talið að hægt sé að bjarga, sama hversu stórt eða lítið það er. Í kjölfar endurheimtar mýra má gera ráð fyrir að lífríki færist til fyrra horfs og því fylgi aukin líffræðileg fjölbreytni og vistkerfisþjónusta.

Mýrar:

  • eru mikilvæg búsvæði plantna, fugla, fiska, smádýra og örvera og því er verndun og endurheimt votlendis mjög mikilvæg út frá sjónarhorni líffræðilegs fjölbreytileika.
  • geyma verulegan hluta kolefnisforða jarðar sem losnar út í andrúmsloft ef mýrinni er raskað.
  • eru mikilvæg búsvæði íslenskra varpfugla en 90% íslenskra varpfugla, farfugla og vetrargesta byggja afkomu sína að einhverju leyti á votlendi.
  • virka sem svampar og tempra rennsli fyrir læki og ár sem er mikilvægt fyrir vatnsbúskap þeirra. Auk þess minnka mýrar hættu á flóðum og jarðvegsrofi.

Líklegt er að votlendi muni gegna mikilvægu hlutverki bæði fyrir nýtingu og verndun lands með hlýnandi loftslagi eins og t.d. aðgengi að vatni í þurrum sumrum. Því er mikilvægt að vernda votlendi og endurheimta raskað votlendi sem ekki er verið að nýta og snúa því aftur í sitt náttúrulega horf.

Grunnforsenda endurheimtar mýra er að hækka grunnvatnshæð upp að yfirborði mýranna og með því endurheimta þá vistkerfisferla sem hefur verið raskað. Hins vegar geta markmið endurheimtar mýra verið fjölþætt:

Endurheimt votlendisplantna
  • Með hækkun á grunnvatnsstöðu ná votlendisplöntur forskoti í samkeppni við þurrlendisplöntur um pláss, vatn og næringarefni.
  • Eftir endurheimt leysast einnig úr læðingi um mýrina næringarefni sem votlendisplöntur eins og starir og klófífa nýta sér. Blómgun eykst og þær vaxa og dafna af mikilli grósku.
Endurheimt fuglalífs
  • Með því að hækka vatnsstöðu mýra eykst smádýralíf og þar með æti fyrir fuglana sem nýta einnig tjarnir til varps og dvalarstaðar á fartíma.
  • Hærri vatnsstaða heldur jarðveginum mjúkum og rökum sem er mikilvægt fyrir þá fugla sem stinga nefinu niður í jörðina í fæðuleit.
  • Mikilvægt er að fuglar hafi greiðan aðgang að vatni til að sulla og snyrta fjaðrirnar til að viðhalda flughæfni.
Endurheimt fiskalífs
  • Með því að fjarlægja manngerða þröskulda, loka skurðum og færa vatn aftur í þurrkaða lækjarfarvegi má endurheimta mikilvæg hrygningar- og uppeldissvæði ferskvatnsfiska. 
  • Ála má oft finna í mýrum en þeir eru á válista yfir tegundir í útrýmingarhættu.
  • Vatnsbúskapur veiðivatna og -áa getur verið jafnari í óröskuðum mýrum í miklum þurrkasumrum.
Endurheimt landslagsheildar599
  • Þegar ruðningar úr uppgreftri skurða eru settir ofan í þá aftur opnast landslagið á ný og verður nær því landslagi sem var fyrir framræslu.
  • Oft verða til litlar tjarnir við endurheimt og mýrin lifnar við að nýju.
Endurheimt loftslags
  • Við hækkun á grunnvatnsstöðu lækkar jarðvegshiti og súrefni hættir að vera aðgengilegt rotverum. Þetta verður til þess að lífrænt efni varðveitist sem mór í stað þess að breytast í gróðurhúsalofttegundir og losna út í andrúmsloftið.

Þann 2. júní er alþjóðlegur dagur mýra og hvetjum við ykkur til að njóta mýranna og öllu því lífi sem þeim fylgir. Hvort sem það er að hlusta á söng vaðfugla, setjast við lækjarbakka og fylgjast með hornsílum eða reka nefið ofan í gróðurinn og læra nöfnin á blómunum. Endurheimt vistkerfa snýst ekki um að leiðrétta mannanna verk heldur að búa til betri heim fyrir komandi kynslóðir.

Skylt efni: endurheimt votlendis

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...