Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Trausti Hjálmarsson, formaður Bændasamtaka Íslands
Mynd / Úr safni
Skoðun 16. mars 2026

Hver eru markmiðin?

Höfundur: Trausti Hjálmarsson

Ákveðið hefur verið að bera það undir þjóðina hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið. Áhöld eru um það, eftir því við hvern er talað, hvort um aðildar- eða aðlögunarviðræður er að ræða, hvort undanþágur séu í boði eða ekki, og hvort það sé einhver pakki til að kíkja í. Og þá er fólk ekki einu sinni farið að rífast um það hvort hagsmunum Íslands sé betur borgið utan sambandsins eða ekki!

Ég hef, eins og ég hef oft sagt opinberlega, mínar efasemdir um ágæti Evrópusambandsaðildar fyrir Ísland og fyrir íslenskan landbúnað sérstaklega. Óheft, tollalaus viðskipti með erlendar landbúnaðarvörur eru ekki til þess fallin að styrkja samkeppnisstöðu íslenskra bænda og þá heyrum við það mjög skýrt frá okkar kollegum í Evrópusambandslöndunum að þeir eru ekki að öllu leyti ánægðir með sitt hlutskipti, svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Engu að síður set ég mig ekki upp á móti þessum kosningum í haust. Möguleg aðild Íslands að Evrópusambandinu er stór spurning og eðlilegt að bera hana undir almenning í kosningum. Þá hefur spurningin um hvort halda skuli viðræðunum áfram tekið pláss í umræðunni síðustu þrettán ár, sem betur hefði verið varið í annað. Hvernig sem fer verður gott að klára þessa spurningu.

Að þessu sögðu tel ég athugavert, eins og fjallað er um á öðrum stað í þessu blaði, að samningsmarkmið stjórnvalda verði ekki ákveðin fyrr en að lokinni þessari atkvæðagreiðslu. Sérstaklega er tekið fram í greinargerð með þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðsluna að uppfærð samningsmarkmið verði unnin að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Ég hefði talið hreinlegra, ef til stendur að breyta samningsmarkmiðum Íslands, að greina frá því fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í haust, því það getur hæglega haft áhrif á það hvernig fólk ráðstafar atkvæði sínu.

Hlutverk Bændasamtakanna í þessu máli eins og öðrum er að gæta hagsmuna bænda og íslensks landbúnaðar og við munum gera það af yfirvegun og festu, og væta frekar veginn framundan en að þyrla upp ryki í umræðunni.

Umhverfis- orku- og loftslagsráðherra greindi frá því á Iðnþingi í liðinni viku að hann hyggist leggja fram frumvarp til breytinga á raforkulögum, með það að markmiði að afnema það sem hann kallar „neitunarvald landeigenda gegn þjóðhagslega mikilvægum framkvæmdum.“

Nú hef ég ekki, frekar en flestir, séð drög að slíku frumvarpi, en miðað við orð ráðherra á þinginu er um varhugaverða hugmynd að ræða. „Við ætlum að fella burt kröfuna um að samkomulag hafi náðst eða eignarnám farið fram áður en framkvæmdir hefjast. Við ætlum að afnema þessa kröfu. Við verjum eignarréttindi landeigenda með eignarnámsbótum..." er haft eftir ráðherranum í frétt RÚV.

Það að orkufyrirtæki geti hafist handa við framkvæmdir í óþökk landeigenda og án þess að samkomulag eða eignarnám hafi farið fram er stórhættuleg breyting til hins verra. Ekki verður séð að nauðsynlegt sé að orkufyrirtæki fái ríkari rétt til eignarnáms en Vegagerð ríkisins hefur, svo dæmi sé tekið.

Það að fjarlægja alveg kröfu um samningaviðræður eða formlegt eignarnám er freklegt brot gegn stjórnarskrárvörðum eignarrétti fólks og í raun er ótrúlegt til þess að hugsa að dómstólar muni veita slíkri breytingu blessun sína.

Höfundur er formaður Bændasamtaka Íslands. 

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...