Hvar viltu búa?
Mynd / Rory Hennessey
Skoðun 27. nóvember 2026

Hvar viltu búa?

Höfundur: Eyjólfur Ármannsson
Eyjólfur Ármannsson.

Flestir hafa velt fyrir sér hvar þeir vilja búa. Suma langar að festa rætur í heimabyggð, aðra dreymir um að reyna fyrir sér erlendis og svo eru þau sem vilja söðla um og prófa lífið úti á landi. Hvort það gengur eftir veltur á ósköp hversdagslegum hlutum. Hvort vinnu og húsnæði sé að fá, hversu langt er til læknis og hvort börnin komist á æfingu.

Á dögunum mælti ég á Alþingi fyrir nýrri byggðaáætlun til ársins 2041. Rauði þráðurinn er búsetufrelsi. Að fólk hafi raunverulegt val um búsetu og að byggðir fái að þróast á eigin forsendum. Fyrir fámenna þjóð er þetta stórmál. Ef fólk sem vill breyta til finnur ekkert við sitt hæfi er næsti kostur oft að flytja úr landi.

Boltinn og búðin á horninu

Ég hvet lesendur Bændablaðsins til að kynna sér efni byggðaáætlunar 2027–2041. Áætlunin var mótuð í víðtæku samráði sem hófst með opnum íbúafundum í öllum landshlutum. Í henni eru 44 aðgerðir, þar af 30 nýjar, sem taka á raunverulegum hindrunum í daglegu lífi. Ég nefni hér nokkur dæmi um mikilvægar aðgerðir.

Vegagerðin mun endurskoða hönnunarstaðla fyrir umferðarminni tengivegi svo leggja megi bundið slitlag með einfaldari og ódýrari hætti, sem styttir bið eftir samgöngubótum. Börn í dreifðum byggðum fá ferðastuðning til að sækja íþróttaæfingar svo kostnaður hamli ekki þátttöku, almenningssamgöngur verða efldar og Loftbrúin fest í sessi sem formleg aðgerð.

Sérnámslæknar í heimilislækningum sem flytja vestur á firði eða austur á land fá styrk vegna flutnings og húsnæðis. Við styðjum áfram við verslun í minni byggðarlögum, því ef búðin lokar fer oft fleira með henni, og auðveldum kynslóðaskipti í landbúnaði. Þá rjúfum við markaðsbrest í uppbyggingu íbúðar- og atvinnuhúsnæðis í minni byggðum. Við fjölgum einnig óstaðbundnum ríkisstörfum svo fólk geti sótt um spennandi starf án þess að flytja suður. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu geta þá jafnframt flutt starfið með sér út á land.

Landshlutar leiði þróun

Í samráðinu var kallað eftir auknu vægi heimamanna og skýrari eftirfylgni með aðgerðum. Við bættum því við aðgerð sem eflir landshlutana í að leiða eigin þróun. Jafnframt fylgja nú í fyrsta sinn skýr árangursviðmið hverri aðgerð. Sum sáraeinföld en mikilvæg eins og að byggðarlögum án dagvöruverslunar fjölgi ekki.

Byggðamál eru samvinnuverkefni og verða aldrei leyst í einu ráðuneyti. Þess vegna innleiðum við svokallaða byggðalinsu sem öll ráðuneyti eiga að beita til að greina snemma hvaða áhrif ný lög og ákvarðanir hafa á ólík svæði. Það sem lítur vel út á pappír í Reykjavík getur horft allt öðruvísi við á Patreksfirði eða Þórshöfn, og best er að komast að því áður en ákvörðunin er tekin.

Rúmir níu milljarðar króna renna til byggðamála á næstu fimm árum, þar af tæpir fjórir milljarðar í byggðaáætlun. Hún styður við kröftuga sókn ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni, þar sem við höfum meðal annars stóraukið fé í vegaviðhald og vetrarþjónustu, lækkað dreifikostnað raforku í dreifbýli og hafið uppbyggingu 600 hjúkrunarrýma og fjögurra verknámsskóla.

Styrkur Íslands býr í fjölbreytni byggðanna og fólkinu í landinu. Ég vil að sem flestir geti svarað spurningunni hér að ofan eftir eigin höfði. Hvort sem svarið er Reykjanesbær eða Raufarhöfn, Reykhólahreppur eða Reyðarfjörður. Valið á að vera þitt.

Höfundur er innviðaráðherra

Skylt efni: Byggðamál

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir
Fréttir 27. nóvember 2026

Reiðvegir fyrstu samgönguinnviðirnir

Út er komin í rafrænni útgáfu bókin Reiðvegir Íslands eftir Halldór H. Halldórss...

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs
Fréttir 26. nóvember 2026

Eini háskólinn sem fær lægri krónutölu til reksturs

Landbúnaðarháskóli Íslands (LbhÍ) fær lægra fjármagn frá ríkinu til reksturs en ...

Túrbó-hani, hundrað svín
Fréttir 26. nóvember 2026

Túrbó-hani, hundrað svín

Í kjölfar umfjöllunar um íslenska skinku í síðasta blaði skal sjónum beint að be...

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum
Fréttir 25. nóvember 2026

Bætt fjarskiptaöryggi á fimm stöðum

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra undirritaði nýlega tvo samninga um uppbyggin...

Hvetur alla til að skrá geitur
Fréttir 25. nóvember 2026

Hvetur alla til að skrá geitur

Skráning í skýrsluhaldsforrit geitfjárræktarinnar, Heiðrúnu, er gjaldfrjáls. Hák...

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi
Fréttir 25. nóvember 2026

Vilhjálmur Svanberg átti bestu myndina af mýralífi

Vinningshafar í Myndasam- keppni Mýralífs árið 2026 voru Vilhjálmur Svanberg Arn...

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum
Fréttir 24. nóvember 2026

Íbúum fjölgað um 83 prósent á tíu árum

Íbúar Hörgársveitar eru orðnir fleiri en þúsund í fyrsta sinn. Sveitarfélagið te...

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn
Fréttir 24. nóvember 2026

Helsta verkefnið að rækta félagsauðinn

Sverrir Bollason var kjörinn nýr formaður Skógræktarfélags Íslands (SÍ) á dögunu...