Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Starfsfólk við feltvinnu og rannsóknir.
Starfsfólk við feltvinnu og rannsóknir.
Á faglegum nótum 2. október 2023

Hvað er vistkerfisnálgun?

Höfundur: Bryndís Marteinsdóttir, sviðsstjóri á sviði sjálfbærni og loftslags

Í nýlegri stefnu stjórnvalda í landgræðslu og skógrækt, „Land og Líf“, er lögð mikil áhersla á vistkerfisnálgun sem kemur einnig fram í nýlegum landbúnaðar- og matvælastefnum matvælaráðuneytisins.

Að auki er vistkerfisnálgun þungamiðja í alþjóðlegum stefnum og markmiðum um umgengni við auðlindir jarðar.

En hvað þýðir eiginlega vistkerfisnálgun og hvernig tengist sú nálgun starfsemi Landgræðslunnar?

Vistkerfisnálgun er þegar stjórnun á notkun lands, lagar og lifandi auðlinda er samræmd og hvetur til verndunar og sjálfbærrar nýtingar með jafnrétti að leiðarljósi. Vistkerfisnálgun stuðlar þannig að jafnvægi milli verndunar vistkerfa, sjálfbærri nýtingu og jafnri deilingu ágóða. Vistkerfisnálgun leggur áherslu á að þegar við nýtum auðlindir náttúrunnar nýtum við þær á þann hátt að við sköðum ekki náttúruna eða framtíð okkar. Til þess að gera þetta þurfum við að vernda náttúruleg vistkerfi sem enn mega teljast heilleg, nýta auðlindir með sjálfbærum hætti og endurheimta þau vistkerfi sem hafa hnignað.

Þó að hugtakið vistkerfisnálgun sé nýtt af nálinni samræmist það vel þeirri nálgun sem Landgræðslan hefur haft að leiðarljósi í mörg ár. Ef nýleg lög um landgræðslu eru skoðuð sést einnig að þessi nálgun er allsráðandi enda markmið laganna „að vernda, endurheimta og bæta þær auðlindir þjóðarinnar sem fólgnar eru í gróðri og jarðvegi og tryggja sjálfbæra nýtingu lands“.

Landgræðslan hefur allt frá stofnun sinni árið 1907 stundað og stuðlað að endurheimt hnignaðra vistkerfa. Hér áður fyrr var áherslan á að stöðva sandfok og frekari hnignun vistkerfa en í dag hefur áherslan færst meira á endurheimt náttúrulegra vistkerfa, svo sem birkiskóga, votlendis og mólendis. Jafnframt er áhersla á að samþætta þurfi verndun og endurheimt vistkerfa við önnur umhverfismarkmið eins og baráttu gegn loftslagsbreytingum og verndun líffræðilegrar fjölbreytni. Landgræðslan stuðlar að vernd og sjálfbærri nýtingu auðlinda meðal annars með ráðgjöf til landnotenda og almennri fræðslu.

Lykilatriði í vistkerfisnálgun er samráð og þátttökunálganir. Landgræðslan hefur í gegnum árin starfað náið með landnotendum og landeigendum, m.a. í verkefnum eins og Bændur græða landið, Landbótasjóði og í GróLind. Landgræðslan starfar einnig með ríki og sveitarfélögum, veitir ráðgjöf, skrifar umsagnir um skipulagsmál og vinnur við svæðisáætlanir í landgræðslu.

Vöktun og rannsóknir er mikilvægur hluti af vistkerfisnálgun, ef við ætlum að geta stýrt nýtingu á sjálfbæran hátt verðum við að skilja betur þær auðlindir sem við nýtum og fylgjast með hvaða áhrif aðgerðir okkar hafa, hvort sem það er beitarnýting eða uppgræðslur. Þannig lærum við og getum aðlagað aðgerðir okkar eftir því. Rannsóknir og vöktun eru þannig grunnurinn að vönduðum og markvissum vinnubrögðum.

Fimmtudaginn 21. september tekur Landgræðslan þátt í málþingi á vegum matvælaráðuneytisins og Biodice um Vistkerfisnálgun í umgengi við og nýtingu náttúru Íslands. Málþinginu verður streymt beint og hægt verður að hlusta á upptökur eftir á. Ég hvet öll sem hafa tök á að hlusta – til að fræðast meira um þessa nálgun sem við sem nýtum landið ættum að hafa að leiðarljósi.

Skylt efni: Landgræðsla

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...