Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 mánaða.
Hinrik Þór Sigurðsson, verkefnastjóri afreks- og mótamála, Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH, Erlendur Árnason, járningamaður landsliðsins, Guðni Halldórsson, formaður LH, Kristinn Skúlason, formaður landsliðsnefndar, Elvar Þormarsson, Benedikt Ólafsson, Sara Sigurbjörnsdóttir, Teitur Árnason, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson, Glódís Rún Sigurðardóttir, Jóhanna Margrét Snorradóttir, Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir, Páll Bragi Hólmarsson, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Þorgeir Ólafsson, Hans Þór Hilmarsson, Guðmundur Björgvinsson, Ingibergur Árnason, Árni Björn Pálsson, Jón Ársæll Bergmann, Benjamín Sandur Ingólfsson, HeklaHinrik Þór Sigurðsson, verkefnastjóri afreks- og mótamála, Berglind Karlsdóttir, framkvæmdastjóri LH, Erlendur Árnason, járningamaður landsliðsins, Guðni Halldórsson, formaður LH, Kristinn Skúlason, formaður landsliðsnefndar, Elvar Þormarsson, Benedikt Ólafsson, Sara Sigurbjörnsdóttir, Teitur Árnason, Herdís Björg Jóhannsdóttir, Jakob Svavar Sigurðsson, Glódís Rún Sigurðardóttir, Jóhanna Margrét Snorradóttir, Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir, Páll Bragi Hólmarsson, Aðalheiður Anna Guðjónsdóttir, Þorgeir Ólafsson, Hans Þór Hilmarsson, Guðmundur Björgvinsson, Ingibergur Árnason, Árni Björn Pálsson, Jón Ársæll Bergmann, Benjamín Sandur Ingólfsson, Hekla Katharína Kristinsdóttir U21 landsliðsþjálfari og Sigurbjörn Bárðarson landsliðsþjálfari.

Mynd / HF
Fréttir 21. júlí 2023

Hross og knapar til reiðu búnir

Höfundur: Hulda Finnsdóttir

Farsælt keppnispar í hestaíþróttum mun ljúka ferli sínum saman á heimsmeistaramóti sem fram fer í Oirschot í Hollandi dagana 7.–13. ágúst. Jóhanna Margrét Snorradóttir segist ekki finna fyrir aukinni pressu en veit að fram undan er erfið kveðjustund þeirra Bárðar frá Melabergi.

Landsliðsþjálfarar kynntu liðið föstudaginn 14. júlí sl. í sýningarsal Öskju við hátíðlega athöfn. Íslendingar senda frá sér fullskipað lið ásamt þremur ríkjandi heimsmeisturum, Benjamín Sandi Ingólfssyni, Guðmundi Björgvinssyni og Teiti Árnasyni. Mikil ólga hefur verið í kringum landsliðsmálin undanfarin misseri en tveir ríkjandi heimsmeistarar hafa verið settir úr liðinu vegna agabrota.

Jóhanna Margrét Snorradóttir og Bárður frá Melabergi hafa verið í mikilli uppsveiflu í vor og í sumar. Þau urðu þrefaldir Íslandsmeistarar á nýafstöðnu Íslandsmóti og eru miklar væntingar bundnar við árangur þeirra á mótinu. Aðspurð hvort Jóhanna finni fyrir aukinni pressu segir hún það ekki vera. „Ég finn bara fyrir þeirri pressu sem ég set á mig sjálf. Mig langar að gera vel og markmiðið er að standa mig vel og gera betur en á síðasta móti.“

Það var ekkert launungarmál að Jóhanna stefndi á að komast með Bárð á Heimsmeistaramótið og tók hún ákvörðun snemma í vetur að sleppa því að taka þátt í Meistaradeildinni en þau hafa átt farsælan feril í deildinni.

„Það var rétt ákvörðun hjá mér. Hesturinn hefur aldrei verið jafnferskur og í eins miklu stuði á þessum tíma og nú. Mikið álag um veturinn, eins og hefur verið á honum, hefur stundum orðið til þess að hann mætir aðeins þreyttur inn í vorið.“

Þetta er sjötta keppnistímabilið þeirra Jóhönnu Margrétar og Bárðar og kveðjustundin í Hollandi verður eflaust erfið hjá þessu frábæra pari. „Bárður mun fara til Sviss og er ég búin að plana nokkrar helgar næsta haust og vetur að hjálpa nýjum eiganda svo þetta er engin endastöð fyrir okkur. Ég reyni að hugsa ekki mikið um kveðjustundina og einbeiti mér frekar að verkefninu sem er fram undan. Gera okkar allra besta á mótinu og svo kemur að kveðjustund sem verður erfið.“

Bárður frá Melabergi mun fara til Sviss að móti loknu. Jóhanna Margrét mun fylgja honum eftir á nýjum heimaslóðum fyrst um sinn. Mynd: Jón Björnsson

Sterkt landslið

Jóhanna og Bárður munu keppa í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum. Elvar Þormarsson og Fjalladís frá Fornusöndum keppa í gæðingaskeiði, Sara Sigurbjörnsdóttir og Flóki frá Oddhóli í fimmgangi, Þorgeir Ólafsson og Goðasteinn frá Haukagili, Hvítársíðu keppa í fimmgangi, tölti, gæðingaskeiði og samanlögðum fimmgangsgreinum og Páll Bragi Hólmarsson og Vísir frá Kagaðarhóli í fjórgangi og tölti. Á skeiðvængnum verða Ingibergur Árnason á Sólveigu frá Kirkjubæ og Hans Þór Hilmarsson á Jarli frá Þóroddsstöðum.

Miklar vonir eru bundnar við U21 landsliðið en óhætt að segja að aldrei hafi verið sendur áður jafnöflugur hópur. Í hópnum eru þau Benedikt Ólafsson á Leiru-Björk frá Naustum en þau eru þrefaldir Íslandsmeistarar í gæðingaskeiði, Glódís Rún Sigurðardóttir og Salka frá Efri-Brú, Íslandsmeistarar, sem hlutu 7,60 í fimmgangi, Herdís Björg Jóhannsdóttir og Kvarði frá Pulu sem hafa farið yfir 8,00 í tölti, Jón Ársæll Bergmann og Frár frá Sandhóli, sem eru Íslandsmeistarar í tölti, fjórgangi og samanlögðum fjórgangsgreinum og að lokum Sigríður Ingibjörg Einarsdóttir á öskufljótri Ylfu frá Miðengi.

Að auki verða kynbótahross í öllum flokkum. Ársól frá Sauðanesi verður sýnd af Aðalheiði Önnu Guðjónsdóttur í flokki 5 vetra hryssna, Hrönn frá Fákshólum verður sýnd af Jakobi Svavari Sigurðssyni í flokki 6 vetra hryssna og í elsta flokki hryssna sýnir Árni Björn Pálsson Kötlu frá Hemlu II. Hann sýnir jafnframt Geisla frá Árbæ í flokki 6 vetra stóðhesta. Höfði frá Bergi verður sýndur í flokki 5 vetra stóðhesta af Þorgeiri Ólafssyni og í elsta flokki stóðhesta er það Hersir frá Húsavík, sýndur af Teiti Árnasyni. 

Enn að átta sig

Ingibergur Árnason

Ingibergur Árnason var valinn í lands- lið Íslands korter í kynningu, en hann og Sólveig frá Kirkjubæ eru eitt alfljótasta parið á heimsvísu í skeiðgreinunum og hafa verið um árabil.

„Ég fékk að vita af þessu klukkan ellefu í morgun svo ég er kannski aðeins að átta mig enn þá á þessu en ég er spenntur fyrir verkefninu,” sagði Ingibergur við blaðamann eftir kynningu landsliðsins.

Það sem er skemmtilegt við val Ingibergs og Sólveigar er að Ingibergur er áhugamaður úr hestamanna- félaginu Sörla sem stundar útreiðar af kappi en er ekki atvinnumaður í faginu. Hann hefur verið duglegur að keppa í skeiði og náð eftirtektarverðum árangri.

„Markmiðið mitt er alltaf að gera eins vel og ég get. Það er auka bónus að fá þetta tækifæri. Þetta er samt ekki auðveld ákvörðun. Þú þarft auðvitað að selja hrossið og getur ekki haldið áfram með það. Sólveig á mörg ár eftir og mér finnst hún ekki hafa toppað sig enn. Þetta verður erfitt en tækifæri sem
maður grípur.”

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum
Fréttir 26. apríl 2024

Afurðahæsta sauðfjárbúið í níu skipti á síðustu tíu árum

Gýgjarhólskot í Biskupstungum var útnefnt ræktunarbú síðasta árs á fagfundi sauð...

Sumarkomunni fagnað
Fréttir 25. apríl 2024

Sumarkomunni fagnað

Að venju verður opið hús í Garðyrkjuskólanum á Reykjum á sumardaginn fyrsta, fim...

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd
Fréttir 24. apríl 2024

Burðarhjálp: Leiðbeiningarmyndbönd

Síðan 2019 geta bændur og aðstoðarfólk notað fjölda leiðbeiningarmyndbanda, sem ...

Afurðamestu sauðfjárbúin
Fréttir 24. apríl 2024

Afurðamestu sauðfjárbúin

Í niðurstöðum skýrsluhalds í sauðfjárrækt fyrir síðasta ár, sem eru birtar hér í...

SS segir of flókið að upprunamerkja
Fréttir 24. apríl 2024

SS segir of flókið að upprunamerkja

Sláturfélag Suðurlands (SS) sér ekki hag í að upprunamerkja svínakjöt frá Korngr...

Hraðhlaðið við Galdrasafnið
Fréttir 23. apríl 2024

Hraðhlaðið við Galdrasafnið

Orkubú Vestfjarða hefur sett upp nýja 400 kW hraðhleðslustöð við Galdrasafnið á ...

Hámarksmagn minnkað í matvælum
Fréttir 23. apríl 2024

Hámarksmagn minnkað í matvælum

Innan skamms taka gildi breytingar á reglugerð þar sem leyfilegt hámarksmagn nít...

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland
Fréttir 22. apríl 2024

Greiða götu viðskiptasambanda við Indland

Bæði þjónustu- og vöruviðskipti við Indland munu að öllum líkindum aukast á næst...