Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar
Mynd / Úr safni
Fréttir 24. apríl 2026

Hótanir í garð starfsmanna Matvælastofnunnar

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Í tilkynningu frá Matvælastofnun kemur fram að starfsfólk þess hafi orðið fyrir óvenjulega miklu áreiti, hótunum og ærumeiðingum upp á síðkastið. Stofuninn kallar eftir samvinnu við almenning um að sýna starfsfólki sínu virðingu þegar það sinnir störfum sínum, sem eru oft á tíðum krefjandi.

Dæmi séu um að starfsfólk sé nafngreint á samfélagsmiðlum og jafnvel í einstaka fjölmiðlum og fái ógnandi skilaboð um nætur. Áreitið gangi það langt að starfsfólk upplifi sig ekki öruggt á eigin heimili, hafi sett upp öryggiskerfi og óttist um börn sín. Svo langt sé gegnið í áreitinu að aðrir fjölskyldumeðlimir starfsfólks stofnunarinnar fái óviðeigandi og ógnandi skilaboð.

Matvælastofnun áréttar að stofunin láti ekki undan slíkum þrýstingi en jafnframt séu svona hótanir gagnvart starfsfólki teknar mjög alvarlega og umsvifalaust kærðar til lögreglu.

Bundinn þagnarskyldu

Hlutverk Matvælastofnunnar er að gæta að dýravelferð, dýraheilsu og matvælaöryggi. Segir jafnframt í tilkynningunni að lög um velferð dýra og afleiddar reglugerðir leggi ríka áherslu á herðar umráðamanna dýra að tryggja fullnægjandi aðbúnað og umhirðu dýra og Matvælastofnun beri að tryggja að farið sé eftir því. Almenningur geti treyst því að þegar stofnunin grípi til þvingunarúrræða, líkt og vörslusviptingu dýra, sé það ekki gert af léttúð og önnur úrræði, dagsektir og úrbótafrestir, hafi verið fullnýtt án árangurs.

Matvælastofnun er bundin þagnarskyldu og getur því ekki rætt einstök málefni á opinberum vettvangi. Þetta orsaki einhliða og jafnvel villandi umræðu, segir í tilkynningunni. Dæmi séu um að umfjallanir um afskipti stofnunarinnar af einstaka málum séu slitin úr samhengi og jafnvel sett fram ósannindi.

Kvartanir þurfi að fara réttan farveg

Bent er á að séu aðilar ósammála stjórnsýsluákvörðunum Matvælastofnunnar hafi þeir skýr úrræði til að leita réttar síns. Þannig séu ákvarðanir stofununarinnar kæranlegar til Atvinnuvegaráðuneytisins og hægt að bera mál undir umboðsmann Alþingis eða leita til dómstóla.

Persónulegar árásir á starfsfólk Matvælastofnunnar muni ekki hafa áhrif á framgang mála né verði slík háttsemi til þess að dregið verði úr kröfum um að lögum og reglugerðum um dýravelferð sé fylgt.

Skylt efni: Matvælastofnun | Mast | hotanir

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...