Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 8 mánaða.
Kristján Ingimarsson, formaður Snorrasjóðs, afhendir hér Hafrúnu Alexíu gjafabréf upp á 500.000 krónur úr sjóðnum.
Kristján Ingimarsson, formaður Snorrasjóðs, afhendir hér Hafrúnu Alexíu gjafabréf upp á 500.000 krónur úr sjóðnum.
Mynd / Gauti Jóhannesson
Fréttir 20. janúar 2026

Hjúkrunarfræðinemi hlaut 500.000 króna styrk úr Snorrasjóði

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Hinn 29. desember fór fram úthlutun í Múlaþingi úr svonefndum Snorrasjóði en þetta var í sjötta sinn, sem styrkur er veittur úr sjóðnum.

Sjóðurinn var stofnaður árið 2019 að frumkvæði Gunnþóru Gísladóttur frá Papey til minningar um Snorra Gíslason, bróður hennar, en tilgangur sjóðsins er að styrkja ungt fólk úr Djúpavogshreppi til náms. Úr sjóðnum eru veittar 500.000 krónur einum nemanda einu sinni á ári. Að þessu sinni var það Hafrún Alexía Ægisdóttir, sem hlaut námsstyrkinn en hún stundar nám í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Hafrún er vel að styrknum komin og er alveg ákveðin í að snúa til baka eftir nám til Djúpavogs.

Hagleiksmaðurinn Snorri

Fyrir þá sem ekki þekkja til þá fæddist Snorri Gíslason frá Papey 4. ágúst 1915. Hann var mikill hagleiksmaður og byrjaði snemma að smíða ýmsa muni svo sem húsgögn og ýmislegt smálegt. Snorri fékkst lengi vel við að smíða líkön af bátum og voru þeir eftirsóttir vegna þess hversu vandaðir þeir voru. Fínleiki bátanna vakti athygli en allt var handunnið, möstrin mótuð með hefli og sandpappír og voru bátarnir nákvæm eftirmynd af bátum í fullri stærð.

Vindrella, sólarrafhlaða og hleðslustöð rafmagns

Upp úr 1940 tók Snorri til við að setja upp vindrellu í Papey og setti hann svo upp hleðslustöð og lagði rafmagn í húsið. Með þessari framkvæmd varð Papey eitt af fyrstu húsunum á Djúpavogi, sem fékk rafmagn. Snorri fluttist í land árið 1949 þá 34 ára gamall og settist að í húsi sem ber sama nafn og bærinn í Papey, Bjarg.

Seinna meir festi hann sólarrafhlöðu utan á húsið þar sem hann safnaði rafmagni til heimilisnota. Snorra féll sjaldan verk úr hendi og hann var að vinna við endurbætur á húsinu sínu eða smíða skipslíkön fram á síðustu ár. Snorri lést á hjúkrunarheimilinu á Höfn, 29. júní 2014, á nítugasta og níunda aldursári.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...