Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Hin skítugu leyndarmál jarðefnaeldsneytis
Mynd / chris leboutillier-unsplash
Skoðun 30. nóvember 2021

Hin skítugu leyndarmál jarðefnaeldsneytis

Höfundur: Sigurður Ingi Friðleifsson.

Í þessu blaði hafa komið innlegg í gegnum tíðina um einhver meint og skítug leyndarmál lausna í umhverfismálum. Þar hefur t.d. verið bent á ýmsa vankanta varðandi bæði rafbílarafhlöður og vindmyllur. Mikil þróun er reyndar í gangi í tengslum við bæði endurvinnslu rafhlaðna og vindmylluspaða, þannig að þetta horfir sem betur fer til betri vegar.

Hafa ber þó í huga að enn er ekkert að frétta varðandi endurvinnslu á jarðefnaeldsneyti og að því ég best veit, hefur ekki enn tekist að endurvinna brennt jarðefnaeldsneyti, þrátt fyrir rúmlega hundrað ára sögu. Það er mikilvægt að benda á ýmsa vankanta sem fylgja nýjum orkulausnum en það er líka gott að muna að notkun jarðefnaeldsneytis er alltaf mun verri. Það er því kannski við hæfi að rifja aðeins upp hin skítugu leyndarmál jarðefnaeldsneytis til að gæta samræmis í umræðunni.

Jarðefnaeldsneyti er óendurnýjanlegt
Sigurður Ingi Friðleifsson.

Kol og olía eru ekki endurnýjanleg auðlind og bruni þeirra því ósjálfbær í sinni tærustu mynd. Bruninn er einskiptis aðgerð. Við erum sem sagt að tæma auðlind og þannig ræna henni frá næstu kynslóðum. Það má líkja jarðefnaeldsneytisauðlindinni við risastóran bankareikning sem hefur þann galla að hann er algerlega vaxtalaus og það verður aldrei lagt inn á hann. Það þarf engan fjármálasnilling til að átta sig á að gegndarlausar úttektir, úr jafn aumum bankareikningi, munu á endanum koma okkur í vandræði.

Heilsuvandamál

Bruni jarðefnaeldsneytis veldur mjög heilsuspillandi mengun. Þetta er alvöru mál sem allt of lítið er fjallað um. Í nýlegri rannsókn frá Harvard háskóla er áætlað að bruni jarðefnaeldsneytis valdi ótímabærum dauða yfir 8 milljón jarðarbúa á ári hverju. Miklu fleiri verða svo fyrir óþarfa heilsubresti þó að bruninn komi þeim kannski ekki algerlega í gröfina. Hafa ber þetta í huga þegar talað er gegn innleiðingu á hreinni orku.

Ójöfn skipting auðlinda

Eitt af vandamálum jarðefnaeldsneytis er að auðlindin skiptist svo sannarlega ekki jafnt á milli jarðarbúa. Þessi staðreynd hefur valdið miklum óróa í gegnum tíðina og stundum hafa stríð, með tilheyrandi mannfalli, hreinlega snúist um olíuauðlindir. Raforka á rafbíla er að mestu framleidd í hverju landi fyrir sig og því mun minni hætta á alvarlegum átökum.

Losun við framleiðslu og flutning

Eitt af skítugu leyndarmálum olí­unnar er sú staðreynd að olía verður ekki til á bensínstöðvum. Það þarf að bora eftir olíu erlendis, flytja hana í olíuhreinsistöðvar, dæla á skip, flytja til landsins, koma henni á flutningabíla, keyra hana á stöðvarnar og dæla síðan í geymslutanka. Allt þetta bras kallar á orkunotkun og losun gróðurhúsalofttegunda. Bruni eldsneytis í bílnum þínum segir því ekki alla söguna þegar kemur að losun gróður­húsalofttegunda og hluti losunar sem bíllinn þinn veldur verður til erlendis. Þó svo að sú losun lendi í loftslagsbókhaldi annarra landa þá er hún á þinni ábyrgð og skilar sér í sameiginlegan lofthjúp okkar heimsborgaranna. Sama á við um rafbíla en öll framleiðsla raforkunnar á sér stað hér á landi og íslensk raforka losar þar að auki nánast ekkert.

Mengun jarðvegs, sjávar og vatns

Olía getur lekið og mengað vistkerfi. Einn lítri af olíu getur eyðilagt milljón lítra af drykkjarvatni. Ótal stór olíuslys hafa orðið í gegnum tíðina en minni lekar geta líka skemmt verulega eins og nýlegt dæmi frá Hofsósi sýnir. Þar var íbúðarhús dæmt óíbúðarhæft eftir leka frá nærliggjandi olíutanki. Eitthvað minna er t.d. um slíka leka frá hraðhleðslustöðvum.

Olía er eldfim

Það vita flestir að olía er eldfim en oft gleymist hversu alvarleg slys verða stundum við olíuflutninga, sérstaklega í þróunarlöndunum. Nú nýverið lést 131 í slíku slysi í Síerra Leóne en 85 létust í svipuðu slysi í Tansaníu árið 2019 og fimmtíu í Kongó árið 2018. Flutningur á raforku veldur sjaldnast slíkum slysum.
Jarðefnaeldsneyti hefur lengi verið lykilþáttur í efnahags uppbyggingu þjóða síðustu hundrað ár enda lengi vel nánast eini orkukosturinn í boði. Nú eru hins vegar breyttir tímar með fjölbreyttum grænum orkulausnum. Margt þarf vissulega að bæta þegar kemur að grænum lausnum og sem betur fer er verið að vinna að því. Við hljótum þó að vera sammála um að þessar lausnir eru að lágmarki talsvert skárri kostur en ósjálfbær bruni jarðefnaeldsneytis.

Sigurður Ingi Friðleifsson,
framkvæmdastjóri Orkuseturs

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...