Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Hilmir Freyr Heimisson, Íslandsmeistari í skák 2026.
Hilmir Freyr Heimisson, Íslandsmeistari í skák 2026.
Mynd / Tómas Tandri
Líf og starf 9. júní 2026

Hilmir Íslandsmeistari í skák

Höfundur: Gauti Páll Jónsson

Hilmir Freyr Heimisson varð á dögunum Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn. Hilmir er vel að sigrinum kominn. Hann er tveimur árum yngri en greinarhöfundur og það hefur verið gaman, en stundum erfitt, að fylgjast með skákferli hans. Stuttur ferillinn hefur einkennst af miklum sveiflum. En á sama tíma og sveiflurnar geta verið langt niður, þá geta þær líka verið upp í hæstu hæðir. Í landsliðsflokki tefldu tíu skákmenn við hverja aðra og náði Hilmir heilum átta vinningum úr skákunum níu. Þetta hefði undir venjulegum kringumstæðum dugað fyrir stórmeistaraáfanga, en því miður voru meðalstig andstæðinga of lág. Það dugði ekki fráfarandi Íslandsmeistara, Vigni Vatnari Stefánssyni, að fá 7½  vinning sem undirstrikar hve góður árangur Hilmis var. Vignir var sá eini sem vann Hilmi, en gerði hins vegar þrjú jafntefli. Stórmeistarinn og þrettánfaldi Íslandsmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson fékk 3. sætið með 6½ vinning. 

Teflt var við frábærar aðstæður í nýjum sal í íþróttahúsinu Miðgarði í Garðabæ. Þar er einnig Taflfélag Garðabæjar til húsa. Salurinn var prufukeyrður í vor þegar Kragamótið í skólaskák var haldið, og þá kom í ljós að hljóðvist var frábært. Í hliðarsal bakvið gler hefði verið hægt að öskra, og skákmenn fyndu ekkert fyrir því! Eldhúskrókur, sjónvarp og sófi í horninu þar sem gestir gátu fylgst með skákunum beint, allt til alls. 

 Greinarhöfundur er ánægður með Skákþing Íslands en sá fyrir sér enn stærri skákhátíð, í sal sem þessum. Áhugasamir geta kynnt sér hugmynd um nýjan meistaraflokk, sem færi fram helst samhliða landsliðsflokki að ári, fái tillagan brautargengi á aðalfundi Skáksambandsins. Það á allt eftir að koma í ljós, og áhugasamir geta kynnt sér málið og aðrar tillögur, á skák.is! Á sunnudaginn hefst áskorendaflokkur Skákþings Íslands, en tvö efstu sætin úr mótinu gefa rétt til þátttöku í landsliðsflokki að ári. Mótið verður í haldið í Taflfélagi Reykjavíkur og teflt verður dag eftir dag í heila viku, og hefjast skákirnar á virkum dögum klukkan 18:30. Búast má við Gevalia kaffi ásamt g-mjólk, og hvítum dúkum á borðum. Það er virðingarvert að komast í sjálfan landsliðsflokk, og ég hvet skákmenn til að láta á það reyna, miði er möguleiki!

Ef lesendur Bændablaðsins luma á áhugaverðum skákum geta þeir haft samband.

Umsjón: Gauti Páll Jónsson

gauti.pj[hjá]hotmail.com

Skylt efni: Skák | Hugaríþrottir

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...

Geymdu korn í jarðgöngum
Fréttir 22. október 2026

Geymdu korn í jarðgöngum

Bændur í Suður-Þingeyjarsýslu brugðu á það ráð að keyra vagna með nýþresktu bygg...

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð
Fréttir 22. október 2026

Samtök sveitarfélaga í landbúnaði stofnuð

Formaður stjórnar SLS var kjörinn Jón Björn Hákonarson, sveitarstjóri í Eyjafjar...

Ágangur álfta töluverður
Fréttir 22. október 2026

Ágangur álfta töluverður

Íslenskir kornbændur glíma við sívaxandi álag vegna ágangs álfta sem setjast á a...

Álftir valda tjóni árlega
Fréttir 22. október 2026

Álftir valda tjóni árlega

Álftir herjar á akra og valda kornbændum tjóni ár hvert. Bændur segja ástandið v...