Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Heimsóknir til bænda á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verða með breyttu sniði í haust vegna kórónuveirunnar.
Heimsóknir til bænda á vegum Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins verða með breyttu sniði í haust vegna kórónuveirunnar.
Fréttir 25. ágúst 2020

Heimsóknir til bænda enn leyfðar

Höfundur: Erla Gunnarsdóttir

Heimsóknir til bænda á vegum RML vegna hauststarfa 2020 verða með breyttu sniði vegna Covid 19. Sóttvarnarteymi RML hefur gefið út leiðbeiningar til starfsmanna og verktaka sem byggja á tilmælum yfirvalda og sóttvarnarlæknis sem eru aðgengilegar á síðunni covid.is

Almennt er ekki mælt gegn því að farið sé í heimsóknir til bænda á vegum RML, sé hægt að halda reglu um fjarlægðamörk eða grímuskyldu þar sem hún á við og hægt er að viðhafa sóttvarnir samkvæmt sóttvarnarreglum. Varðandi komu erlendra aðila á vegum RML til landsins þá þarf það að skoðast í hvert skipti og frá og með 19.ágúst verður ekki heimilt að hleypa inn til landsins nokkrum erlendum aðilum á vegum RML nema í samráði viðbragðsteymi RML. 

Sóttvarnir
Starfsmenn og verktakar á vegum RML skulu nota grímur þar sem ekki er hægt að halda tveggja metra fjarlægð. Mælst er til þess að viðskiptavinir geri slíkt hið sama og í öllu tilfellum verði reglur um fjarlægð og sóttvarnir tryggðar. Sóttvarnarbúnaður verður til staðar í bílum RML.

Í vor voru gefnar út leiðbeiningar um sóttvarnir og landbúnað og eru þær leiðbeiningar aðgengilegar á heimasíðu RML. Starfsmenn og verktakar RML skulu nota rakningarapp (rakning C-19 ) í símanum. Sé rakningarapp ekki virkt í síma þá þurfa að liggja fyrir upplýsingar um hvar viðkomandi var og hverja hann hitti í heimsóknum á vegum RML utan starfsstöðva.  

Starfsmenn og verktakar RML eru jafnframt beðnir að gæta sérstaklega að sóttvörnum og takmarki þátttöku í hvers konar viðburðum eins og kostur er fjóra daga fyrir heimsóknir til bænda og yfir það tímabil sem viðkomandi er að heimsækja bændur.  

Finni starfsmenn eða verktakar RML fyrir mögulegum einkennum Covid 19 eru skýr fyrirmæli um að þeir mæti alls ekki til vinnu og láti vita af hugsanlegu smiti hjá sér eða öðrum sem viðkomandi hefur verið í nánum tengslum við. Lista yfir mögulega einkenni má nálgast hér á síðu landlæknis.

Aðstæður heima á bæjum
Bændur eru beðnir um að tryggja aðstæður heima á bæjum eins og unnt er og gæta þess að ekki séu fleiri við störf en nauðsynlegt er þegar ráðunautar eru við störf sín heima á bæjum.

Mikilvægt er að bændur láti vita strax til RML komi upp smit, grunur um smit eða einkenni hjá heimafólki hvort sem starfsmenn hafi verið á bænum eða eru væntanlegir í heimsókn. Komi upp þær aðstæður að grunur er um smit eða veikindi eða starfsmenn þurfi að fara í sóttkví þá gætu skoðanir eða heimsóknir fallið niður með stuttum fyrirvara.

 

 

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...