Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Þessi teikning á að sýna tvö af skipum hollenska flotans að koma úr leiðangri til Austur-Indía hlaðin gulli og gersemum. Hægra megin er Het Wapen Van Amsterdam.
Þessi teikning á að sýna tvö af skipum hollenska flotans að koma úr leiðangri til Austur-Indía hlaðin gulli og gersemum. Hægra megin er Het Wapen Van Amsterdam.
Fréttir 17. mars 2022

Heimildarmyndin „Gullskipið“

Höfundur: Hörður Kristjánsson

Sunnudaginn 13. mars frunsýndi RÚV heimildar­myndina ,,Gullskipið“ sem Jón Ársæll Þórðarson og hans fólk hafa unnið að síðastliðin fjögur ár.

Hér var um mesta sjóslys Íslandssögunnar að ræða þegar Het Wapen Van Amsterdam strandaði á Skeiðarársandi árið 1667 og með því um 200 manns. Við gerð myndarinnar hafa fundist margar gamlar filmur frá því að Kristinn Guðbrandsson í Björgun og Bergur á Klaustri leituðu skipsins á síðustu öld, sem nú fyrst líta dagsins ljós.

Þegar og ef skipið finnst verður það líka heimssögulegur viðburður.

Framleiðandi myndarinnar eru þeir Jón Ársæll Þórðarson og Steingrímur  Jón Þórðarson, en þeir félagar hafa unnið saman að kvikmyndum og þáttagerð í rúman aldarfjórðung. Tónlist í myndinni er eftir Þórð Inga Jónsson/Lord Pusswhip.


Líklegur strandstaður Het Wapen Van Amsterdam á Skeiðarársandi á þessu gamla landakorti er talinn á svæðinu sem merkt er með rauðu. 


Um skipið, strandið og leitina
  • Árið 1667 strandaði eitt af glæsilegustu skipum hollenska flotans á eyðilegri sandströnd á Íslandi. Skipið var að koma frá Austur-Indíum hlaðið gulli og gersemum.
  • Stærsti eyðisandur á jörðinni gleypti skipið og allt sem í því var.
  • Aðeins sagan lifði, sagan um Gullskipið.
  • Á seinni hluta 20. aldar reyndu íslenskir ofurhugar með hjálp íslensku ríkisstjórnarinnar og ameríska sjóhersins að finna hollenska Gullskipið og grafa það upp en án árangurs.
  • Gríðarlega erfið­ar aðstæður, jökul­­árnar stóru undan Vatnajökli, stærsta jökli Evrópu, og öldur Norður-Atlants­hafsins láta ekki að sér hæða.
  • Íslenskur frumkvöð­ull, Gísli Gíslason, myndaði alþjóðlegt teymi ofurhuga til að finna og endurheimta það sem hinn mikli sandur tók til sín á óveðursdeginum mikla seint í september árið 1667.
  • Með nýjustu tækni og vís­indum og vissuna um árangur, ætla Gísli og hans menn að gera það sem engum hefur áður tekist. Að endurheimta úr sandinum Het Wapen Van Amsterdam með öllu því sem það hefur að geyma og skrifa um leið merkilegan kafla í sögu siglinga á jörðinni.


Þann 4. september árið 1983, eftir sex mánaða stanslaust bras, komust leitarmenn niður að skipinu sem þeir töldu vera Het Wapen van Amsterdam. Í ljós kom að þetta var togarinn Friedric Albert sem strandaði 1903 og voru vonbrigðin mikil.



Het Wapen van Amsterdam. Mynd af líkani sem Karl Friðrik Ragnarsson í Vík í Mýrdal gerði af skipinu.

Sama sláturhús sektað þrisvar
Fréttir 17. maí 2024

Sama sláturhús sektað þrisvar

Matvælastofnun (MAST) hefur þrisvar sinnum á þessu ári lagt stjórnvaldssekt á sv...

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna
Fréttir 17. maí 2024

KS hagnaðist um 5,5 milljarða króna

Hagnaður Kaupfélags Skagfirðinga af rekstri félagsins á árinu 2023 reyndist rúml...

Vorverkum bænda seinkar
Fréttir 16. maí 2024

Vorverkum bænda seinkar

Veturinn sem leið var sá kaldasti frá vetrinum 1998 til 1999, samkvæmt tíðindum ...

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára
Fréttir 16. maí 2024

Riðuveiki útrýmt innan 20 ára

Landsáætlun um riðuveikilaust Ísland hefur verið sett í samráðsgátt stjórnvalda.

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði
Fréttir 16. maí 2024

Kornþurrkstöð reist í Eyjafirði

Grunnur undir kornþurrkstöð í Eyjafirði er nú að taka á sig mynd í landi Laugala...

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu
Fréttir 16. maí 2024

Mjólkurframleiðendur fá arðgreiðslu

Kúabændur á starfssvæði Auðhumlu mega gera ráð fyrir arðgreiðslu frá samstæðunni...

Vetnisknúin skip í smíðum
Fréttir 15. maí 2024

Vetnisknúin skip í smíðum

Smíði er hafin á tveimur vetnis­ skipum á vegum Samskipa. Áætlað er að þeim verð...

Drómasýki í hrossum
Fréttir 13. maí 2024

Drómasýki í hrossum

Drómasýki er vaxandi vandamál í íslenskri hrossarækt. Til stendur að stofna star...