Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Útskriftarnemar frá Landbúnaðarháskóla Íslands að vori 2026.
Útskriftarnemar frá Landbúnaðarháskóla Íslands að vori 2026.
Mynd / James Einar Becker
Fréttir 8. júní 2026

Hátíðleg brautskráning hjá Landbúnaðarháskóla Íslands

Höfundur: Katrín Lilja Jónsdóttir

Fjöldi nemenda brautskráðist frá Landbúnaðarháskóla Íslands 5. júní síðastliðinn. Veittar voru viðurkenningar fyrir góðan námsárángur og flestar viðurkenningar hlaut Rökkvi Hljómur Kristjánsson, sem útskrifaðist með einkunnina 9,41 úr búfræði. Alls útskrifuðust 19 nemendur úr búfræði, 24 nemendur luku BS-prófi í mismunandi greinum, 23 nemendur luki meistaranámi og 3 kláruðu doktorsnám. 

Í tilefni dagsins sagði Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor Landbúnaðarháskóla Íslands:

„Í dag fögnum við mikilvægum tímamótum í lífi brautskráðra nemenda okkar. Þau ganga héðan með þekkingu, reynslu og eigin viskubrunn til að takast á við ný verkefni, ný tækifæri og nýja ábyrgð. Við hjá Landbúnaðarháskóla Íslands erum stolt af samfylgdinni og óskum þeim innilega til hamingju með áfangann. Megi þau ávallt vera glöð, forvitin og ganga hugrökk til verka.“

Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, rektor LBHÍ.

Hér að neðan má sjá yfirlit yfir útskrifaða nemendur af mismunandi námsbrautum og þær viðurkenningar sem veittar voru fyrir framúrskarandi námsárangur og störf í þágu skólans.

 

Búfræði

Af búfræðibraut útskrifuðust 19 nemendur. 

Verðlaunahafar:

  • Góður árangur í hagfræðigreinum (allar greinar): Hugrún Lilja Pétursdóttir (Gefandi: Búnaðarsamtök Vesturlands)
  • Góður árangur í bútæknigreinum: Rökkvi Hljómur Kristjánsson (Gefandi: Lífland)
  • Góður árangur í búfjárræktargreinum: Rökkvi Hljómur Kristjánsson (Gefandi: RML)
  • Góður árangur í námsdvöl: Rökkvi Hljómur Kristjánsson (Gefandi: Minningarsjóður Hjartar Snorrasonar og Ragnheiðar Torfadóttur)
  • Frábær árangur á búfræðiprófi (einkunn 9,41): Rökkvi Hljómur Kristjánsson (Gefandi: Bændasamtök Íslands)

 

Grunnnám (B.S. próf)

Fjölmargir nemendur luku B.S. prófi á ólíkum fræðasviðum skólans.

  • Búvísindi BS: 6 nemendur
  • Hestafræði BS: 2 nemendur
  • Landslagsarkitektúr BS: 13 nemendur
  • Skógfræði BS: 3 nemendur

Brautarviðurkenningar í grunnnámi:

  • Góður árangur á B.S. prófi á Búvísindabraut: Atli Björn Atlason (Gefandi: Bændasamtök Íslands)
  • Góður árangur á B.S. prófi á Hestafræðibraut: Saga Björk Jónsdóttir (Gefandi: Kaupfélag Borgfirðinga)
  • Góður árangur á B.S. prófi í Landslagsarkitektúr: Agnes Björk Stefánsdóttir og Ólöf Dagmar Guðmundsdóttir (Gefandi: Félag íslenskra landslagsarkitekta)
  • Góður árangur á B.S. prófi í Náttúru- og umhverfisfræði: Guðlaug I Tinna Grétarsdóttir (fjarverandi) (Gefandi: Hið íslenska náttúrufræðifélag)
  • Góður árangur á B.S. prófi í Skógfræði: Bolli Pálmason (Gefandi: Skógræktarfélag Reykjavíkur)

 

Heildarviðurkenningar LbhÍ á B.S. prófi:

  • Frábær árangur fyrir B.S. lokaverkefni (einkunn 9,5): Hermann Haukur Aspar (búvísindi) og Bolli Pálmason (skógfræði)
  • Frábær árangur á B.S. prófi við LbhÍ (einkunn 9,15): Guðlaug I Tinna Grétarsdóttir (náttúru- og umhverfisfræði, fjarverandi)

Framhaldsnám (Meistara- og doktorsnám)

Öflugur hópur lauk framhaldsnámi á háskólastigi við athöfnina.

Skipulagsfræði (Meistaranám): 9 nemendur

  • Verðlaun fyrir góðan árangur á M.S. prófi í skipulagsfræðum: Magdalena Maria Mokrzan(Gefandi: Skipulagsfræðingafélag Íslands)

Annað meistaranám: 14 nemendur

Doktorsnám (Ph.D.): 3 nemendur brautskráðust:

Félags- og kynningarmál

Einnig voru veitt sérstök verðlaun fyrir framlag til skólasamfélagsins. Hugrún Lilja Pétursdóttir hlaut verðugt klapp og viðurkenningu fyrir vel unnin störf í þágu félags-, kynningar- og framfaramála skólans á skólaárinu 2025-2026.

Að lokum var veittur styrkur úr Framfarasjóði Ingibjargar Guðmundsdóttur og Þorvaldar Guðmundssonar í Síld og fisk. Styrkþegi ársins er Sunna Þórarinsdóttir, sem hlýtur 300 þúsund króna styrk vegna meistaranáms síns í búvísindum. 

Skylt efni: LbhÍ | Brautskráning

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands
Fréttir 19. október 2026

Ljósmyndakeppni hjá Skógræktarfélagi Íslands

Skógræktarfélag Íslands efnir til ljósmyndakeppni undir þemanu „Skógurinn að vet...

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...