Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Hann er á!
Mynd / María Gunnarsdóttir
Í deiglunni 22. ágúst 2019

Hann er á!

Höfundur: Gunnar Bender

Það eru margir að veiða, veiði-menn á öllum aldri og fiskurinn vakir, sumir eru verulega ungir en áhugasamir og kasta sjálfir spúninum út í vatnið og draga inn. Hann er á! heyrist í unga veiði-manninum sem verður þriggja ára núna í október. 

En fiskurinn fer af og veiðimaðurinn ungi kastar aftur og aftur en fiskurinn vill ekki taka. Hann vill gera eitthvað annað, hann nær sér í háf og ætlar að ná þeim þannig. En það gengur ekki.

Frændur hans, Helgi Þór og Davíð Már, landa fallegum fiskum,  en þegar hann verður stærri landar hann svona fiskum. Hann er allavega að reyna og það er fyrir mestu.

,,Já, veiðin hefur gengið vel hjá okkur,“ segir Gunnar Blöndal og sýnir okkur svæðið  sem hann hefur upp á að bjóða við Syðstu-Vík við Eyjafjörð, sem hann hefur verið með í fjölda ára og margir fengið þar sína fyrstu fiska. Fiskurinn er fyrir hendi, vænn og fallegur, bara að fá hann til að taka. Það kemur með tíð og tíma. Þegar sumir verða stærri.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...