Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 3 ára.
Hamborgari
Matarkrókurinn 16. ágúst 2023

Hamborgari

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Góður hamborgari á allar sínar vinsældir skilið, en er samt auðvitað bara hamborgari hversu mikið sem góðir auglýsingamenn vilja telja okkur trú um að einhverjir hafi klofið atómið yfir steiktum borgara.

Að elda hamborgara tengist ekkert geimvísindum, og allir ættu að klóra sig fram úr því verkefni með bravör. Hamborgarinn er einmitt vinsæll á sumrin vegna þess hversu einfalt og fljótlegt er að hrista hann fram úr erminni fyrir fjölda fólks heima, í útilegunni eða í sumarbústaðnum.

Persónulega finnst mér skemmtilegast að poppa borgarann ögn upp með heimagerðum góðum sósum og meðlæti og síðast en ekki síst að sleppa kryddblöndunni sem heitir hamborgarakrydd og nota bara gott salt og nýmulinn svartan pipar. Það er auðvitað ekkert að því að nota svona bleika sósu úr brúsa. En það er líka mjög auðvelt að gera eigið majones með skemmtilegu bragði. Eða einfaldlega að taka gott majones úr búðinni og krydda eftir eigin smekk. Svo má líka nota alls kyns súrsað grænmeti sem brýtur upp bragð og áferð. Klassískur borgari er gerður úr góðu nautakjöti og þarf að innihalda a.m.k. 20% fitu sem gefur bragð og mýkt. Borgarana má auðvitað gera frá grunni með því að hakka hráefnið og forma í góð buff, en víða má líka finna góða hamborgara. Lesið bara vel smáa letrið, því íslenskar umbúðir, fánalitir o.fl. er engin trygging fyrir íslenskum uppruna kjötsins. Við byrjum á því að gera majones, sem við síðan deilum í tvær sósur, aðra á hamborgarann, og hina til að dýfa kartöflunum í. Við gerum svo franskar kartöflur frá grunni og síðast en ekki síst steikjum við borgarann og berum fram ásamt hefðbundnu meðlæti og súrsuðum gúrkum.

Majones uppskrift

  • 2 eggjarauður
  • 1 tsk. salt
  • 2 msk. sítrónusafi
  • 1 msk. hvítvínsedik
  • 1⁄2 lítri olía

Þeytið eggjarauður með salti þar til eru orðnar léttar og ljósar, pískið sítrónusafa og ediki saman við þar til þykknar, pískið síðast olíunni saman við í mjórri bunu. Má gera í skál með handpísk, í hrærivél eða með töfrasprota. Grunnuppskriftina má svo krydda til og frá, teygja og toga.

Jalapeno majones

  • 3 msk. súrsað jalapeno
  • 3 dl majones
  • Salt

Saxið fínt eða maukið jalapeno og blandið saman við majonesið, smakkið til með salti.

Chipotle sósa fyrir franskar kartöflur

  • 1 msk. chipotle mauk ( Chipotle er reyktur chilipipar)
  • 2 dl majones
  • 1 dl grísk jógúrt
  • Sítrónusafi
  • Salt

Blandið saman í skál og smakkið til með sítrónusafa og salti.

Súrsaðar gúrkur

  • 2 dl eplaedik
  • 150 g sykur
  • 2 dl vatn
  • 1 tsk. salt
  • 2 tsk. fennelfræ
  • 1 tsk. kóríanderfræ

Setjið allt nema gúrkur í pott og látið suðuna koma upp, skerið gúrkur í jafnstórar sneiðar eða bita eftir smekk og setjið í tandurhreina krukku eða annað ílát með loftþéttu loki. Hellið heitum vökvanum yfir og lokið.

Tilbúið eftir 2 klst. en getur geymst vikum og mánuðum saman í kæli. Sama uppskrift gildir jafnvel fyrir annað súrsað eins og lauk, smátómata, sveppi, hvönn, skessujurt o.s.frv.

Steikarfranskar

  • 3-4 bökunarkartöflur
  • Olía
  • Salt

Steikarfranskar eru alla jafna gróf- skornar og taka því lengri tíma í eldun en þær sem við sjáum oftast á skyndibitastöðum. Auðveldlega er þó hægt að keypt tilbúnar kartöflur, og líka nota ofninn frekar en að djúpsteikja. Fyrir þá sem vilja prófa að gera franskar frá grunni má endilega fylgja leiðbeiningunum. Athugið að franskar kartöflur eru alltaf tvísteiktar, Skerið kartöflurnar í um 1x1 cm strimla og setjið í kalt vatn. Látið liggja í vatninu í a.m.k. klukkustund. Skolið vel tvívegis í miklu vatni og þerrið á viskastykki. Hitið olíu í djúpsteikingarpotti í 130 °C og steikið kartöflurnar í 5–6 mínútur. Setjið til hliðar og steikið síðan aftur rétt áður en hamborgarinn fer á pönnuna. Nú í 180 °C heitri olíu þar til þær verða gullinbrúnar, takið úr pottinum, saltið vel og berið fram.

Hamborgari með jalapeno majonesi, sultuðum gúrkum, steikarfrönskum og chipotle sósu

  • 4 stk. 120 g hamborgarar
  • Ostur í sneiðum, Cheddar-ostur hentar best.
  • Hamborgarabrauð
  • Salatblöð
  • Tómatar í sneiðum
  • Agúrkur í sneiðum
  • Sneiddur laukur
  • Salt og nýmulinn pipar
  • Steikarfranskar

Saltið borgarana og steikið eða grillið, snúið þeim við þegar kjötsafinn myndar polla á yfirborðinu, piprið og setjið ostinn á. Hitið brauðin og berið fram með nýsteiktum kartöflunum, grænmeti, sósum og súrsuðum gúrkum.

Verði ykkur að góðu!

Skylt efni: Hamborgari

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...