Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 mánaða.
Hámarka heilsufar kúa með bættum þægindum
Mynd / Aðendar
Á faglegum nótum 20. apríl 2026

Hámarka heilsufar kúa með bættum þægindum

Höfundur: Elin Nolsöe Grethardsdóttir.

Dagana 23. og 24. var árlega nautgriparæktar ráðstefnan, Kvægkongres, haldin í Herning í Danmörku eins og fram hefur komið á hér á síðum Bændablaðsins. Þar var saman komin nokkur fjöldi manns með sameiginlegan áhuga á öllu því er viðkemur nautgriparækt, hvort sem það varðaði fóðrun, rekstur búa, heimsmarkaðsstaða, velferð gripa, uppeldi, sjúkdómar – hægt var að finna fyrirlestra við allra hæfi.

Undirrituð valdi fyrirlestra eftir áhugasviði og voru því fyrirlestrar um fóðrun, mjaltir, sjúkdóma og velferð kúa og kálfa meðal annars fyrir valinu.

Nigel B. Cook, dýralæknir og fyrirlesari við háskólann í Wisconsins-Madison, var með fróðlegt erindi um hversu mikilvægt það er að hugsa um velferð gripa í fjósum og hvað við getum gert til að bæta þægindin.

Erlendar rannsóknir sýna að algengasta ástæða fyrir stuttri endingu kúa er nytin, næst algengast er júgurheilbrigði, svo frjósemi, fótamein og slys – skapgerðin var óalgengasta ástæða þess að kúm væri lógað, annað en við þekkjum hérlendis þar sem skapgerðin sé heldur ofar á listanum.

Erlendis er oft stefnt að því að kýr nái 5 mjaltaskeiðum eða að 20% endurnýjun eigi sér stað á þeim aldri. Þó er ekki hægt að setja samansem merki á milli þess og heilsufars. Til eru bú þar sem velferðin er í hávegum höfð og framleiðslan er frábær, en endurnýjunarhlutfallið sé talsvert undir 20% árlega og til eru bú með hærri árlegu endurnýjunarhlutfalli en samt er velferðin og heilsufarið frábært. Þetta fer eftir bústjórn og áherslum á hverju búi fyrir sig.

Myndir / Nigel B. Cook.

Hvíld er lykilatriði fyrir því að kýr nái að lifa vel og lengi og haldi heilsu. Ef kýr mættu velja á milli þess að fá át-tíma eða hvíldar-tíma, þá myndu þær velja hvíldina. Kýr þurfa að hvíla í amk 12 klst á sólarhring, ef sá tími minnkar um tvo tíma, það er að segja að þær fá 10 klst hvíld í stað 12 klst hvíldar, þá sést það á auknum fótameinum og lægri nyt. Minnka þarf heildartímann sem fer í mjaltir eins og kostur er, best er ef hægt er að halda mjaltatímanum, með öllu, í að hámarki þremur klukkustundum á sólarhring.

Mikilvægt er að passa að básarnir sem kýrnar liggja í eru nógu breiðir, mjúkir og ekki mikið af óþarfa rörum og járni allt í kring. Fremst í básunum, framan við kýrnar, er stundum svokallaður “koddi”, hann má ekki vera hærri en 10 cm. Nigel B. Cook vildi meina að þessi koddi væri sjaldnast notaður til að hvíla höfuðið á, oft er hann hærri en 10 cm og því til vandræða þegar kýrnar standa upp í básunum. Önnur myndin sýnir hvernig “koddinn” er fyrir kúnni þegar hún stendur upp í básnum. Á seinni myndinni sjáum við hvernig kýr eiga að geta staðið upp – með engin rör eða háa kodda fyrir framan sig.

Hart undirlag er líka til vandræða, sér í lagi fyrir þær kýr sem eiga við fótamein að stríða. Ef undirlagið er hart þá er mótstaðan mikil, en ef undirlagið er mjúkt, þá gefur það eftir og kýrnar eiga auðveldar með að standa upp og sömuleiðis að leggjast án þess að finna mikið til, sjá mynd.

Nigel B. Cook sýndi fram á rannsókn þar sem 141 Bandarísk bú tóku þátt, í rannsókninni var skoðað hversu margar klukkustundir á sólarhring kýrnar hvíldu og hvernig básar voru í fjósunum. Þar kom í ljós að í fjósum með vatnsmottum í básum hvíldu kýrnar að meðaltali í 9,7 klst/sólarhring, en í fjósum með sandi í básunum hvíldu kýrnar í 11,7 klst/sólarhring – sem er nokkurn vegin eins og best verður á kosið. Þrjár aðrar básategundir voru skoðaðar og þær voru allar á svipuðum stað, sjá mynd.

Nigel sýndi fram á fleiri rannsóknir með sömu niðurstöðum, þar sem kýr á vatnsmottum væru með áberandi verstu tilfellin af fótameini og sandurinn kæmi best út, þurrkuð mykja kom líka vel út hvað fótamein varðar, en frumutalan var stundum vandamál í þeim fjósum – sennilega vegna þess að mykjan var ekki nógu þurr.

Í lokin set ég inn tvær myndir úr fyrirlestrinum, önnur myndin sýnir mælingar á járnavirki í bás, eins og við viljum hafa það. Þetta er miðað við kýr sem eru um 680kg þungar, líklega mætti lækka þessar tölur eitthvað ef miða á við meðalstærð íslenskra kúa, en BS ritgerð Þorbjargar Helgu Konráðsdóttur frá árinu 2010 segir að kýrnar voru þá 429 kg að meðaltali, mögulega hefur sú tala eitthvað breyst á þeim 16 árum sem senn eru liðin.

Caption

Hin myndin sýnir hvernig útsýnið á að vera þegar við stöndum framan við bás og horfum á kúna. Ef járnavirkið er eins og myndin sýnir, þá tryggjum við okkur að kýrnar eigi auðvelt með að leggjast og standa upp. Einnig sjáum við að kýrin kemur hvergi við járnin, það segir okkur að básinn er nógu breiður.

Höfundur er gæðaráðgjafi Auðhumlu svf.

Skylt efni: Kúabændur | Mjólk | dýravelferð

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...