Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en mánaðar gamalt.
Halla Sif, eigandi Sólskins grænmetis á Flúðum.
Halla Sif, eigandi Sólskins grænmetis á Flúðum.
Mynd / Aðsend
Fréttir 2. september 2026

Halla Sif meðal 100 kvenhetja

Höfundur: Edda Kristín Sigurjónsdóttir

– Ár kvenna í landbúnaði

Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir, garðyrkjubóndi og eigandi Sólskins grænmetis, hefur verið valin í hóp fyrstu 100 kvenhetja heims í landbúnaði og byggðaþróun af Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO).

Í bréfi framkvæmdastjóra FAO segir að framlag hennar efli matvælaframleiðslu og bæti lífsskilyrði í dreifbýli og undirstriki mikilvægt framlag kvenna í landbúnaði. „Árangur Höllu er Íslandi til sóma,“ segir Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra.

Ár kvenna í landbúnaði

„Mér finnst mjög flott að Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna standi fyrir ári kvenna í landbúnaði. Í mörgum löndum hafa konur til dæmis mun takmarkaðri aðgang að ræktunarlandi, eignarhaldi og fjármagni en við eigum að venjast hér,“ segir Halla. Hún á og rekur Sólskins grænmeti, sem fæst í flestum matvöruverslunum, en einnig í Sólskinsbúðinni á Flúðum.

Heiður er að vera valin í hóp þessara 100 kvenhetja hvaðanæva að úr heiminum. „Val Höllu Sifjar í þennan úrvalshóp kvenna endurspeglar ekki aðeins hennar eigin árangur, heldur einnig þann metnað sem Ísland hefur sýnt í að styðja konur sem leiðtoga, frumkvöðla, atvinnurekendur og bændur,“ segir atvinnuvegaráðherra. „Árangur Höllu er Íslandi til sóma og sannur innblástur fyrir konur og ungt fólk um allan heim.“

Innviðirnir lykilatriði

„Allt sem ég er búin að gera byggir á þeim innviðum sem eru hér á landi,“ segir Halla, sem keypti garðyrkjustöð á meðan hún var enn í námi í Garðyrkjuskólanum á Reykjum og stækkaði fljótlega við sig með kaupum á annarri og sameinaði undir merkjum Sólskins. Hún er alin upp á búi með blandaðan búskap og þekkti því vel til búskapar.

„Í landbúnaði skiptir gríðarlega miklu máli að hafa aðgang að landi, fjármagni og fjölþættum innviðum. Hérna erum við nánast við heimskautsbaug, með grænu orkuna okkar, allt heita vatnið og ferskvatnið sem er sjálfsagður hlutur fyrir okkur, en það verður það kannski ekki alltaf,“ segir Halla. „Við megum vera stolt af því hversu langt við erum komin í heilsársræktun. Á sama tíma er mikilvægt að muna að þessi staða er ekki sjálfgefin.“

Vilji landsmanna mikilvægur

Halla segir markaðsvirði á grænmeti vera búið að rjúka upp erlendis að undanförnu sökum þurrka. „Árstíðabreytingar eru orðnar svo miklar og veðurfarið ýkt. Ræktun er örugglega almennt að fara að færast meira og meira inn í stýrð umhverfi,“ segir hún um ræktun sunnar á hnettinum. „Við erum búin að sýna fram á að við getum ræktað allt árið um kring á Íslandi og við getum ræktað miklu meira. Við þurfum sem samfélag að ákveða hvaða vægi við viljum að innlend matvælaframleiðsla hafi til framtíðar.“

Hún segir áhugavert að umræða um matvælaframleiðslu sé búin að opnast að undanförnu í tengslum við mögulegar aðildarviðræður að ESB. „Það hefði kannski mátt nýta tækifærið betur til að kalla fram hvað við viljum. Maður hefur áhyggjur af því að starfsumhverfið okkar nái ekki að þróast jafn hratt og fyrirtækin í greininni og verði þannig flöskuháls fyrir frekari uppbyggingu og nýsköpun.“

Matvælaframleiðsla snertir á mörgu

„Matvælaframleiðsla snertir á svo mörgu, líka samfélagslegu; byggðaþróun, félagslegum þáttum, umhverfismálum og fleiru. Þetta er dálítið sérstök atvinnugrein hvað það varðar.“ Halla bendir á að málefni landbúnaðarins snerti fleiri ráðuneyti en þess sem formlega fer með málefni þess, atvinnuvegaráðuneytið. Hún nefnir stuðning við led-ljósavæðingu sem dæmi sem kostaður var af loftslagsráðuneytinu.

Aðspurð um hvaða þýðingu það hefur að hafa verið valin í hóp 100 kvenhetja í matvælaframleiðslu og landbúnaði segir Halla: „Þetta fær mann til að stíga til hliðar og skoða stóra samhengið. Aðgangur að tækifærum er ekki jafn og ekki sjálfgefið að konur geti átt og rekið fyrirtæki hvar sem er í heiminum.“

Matvælaráðstefna í Róm í október

Þetta er í fyrsta sinn sem stofnunin velur slíkan afrekshóp en 600 tilnefningar bárust frá 131 landi. Hvatinn að tilnefningum og vali á fyrstu kvenhetjunum er ár kvenna í landbúnaði hjá FAO, en til stendur að valið verði fastur liður.

Boðað er til hátíðahalda kvenhetjunum til heiðurs á Matvælaráðstefnunni World Food Forum í október í Róm. Þar gefst Höllu tækifæri á að hitta hópinn. „Það verður geggjað að fara til Rómar. Það mun ekki gerast dagsdaglega að vera tilnefnd sem kvenhetja. Ég ætla að giska á að þetta sé einskiptis aðgerð,“ segir Halla hlæjandi að lokum.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...