Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 ára.
Sígræn tré hafa það fram yfir sumargræn að þau geta hafið ljóstillífun um leið og hiti er orðinn það mikill að þau vakna af dvala.
Sígræn tré hafa það fram yfir sumargræn að þau geta hafið ljóstillífun um leið og hiti er orðinn það mikill að þau vakna af dvala.
Mynd / usgs.gov
Á faglegum nótum 10. október 2022

Gróðurinn í vetrardvala

Höfundur: Vilmundur Hansen

Plöntur beita margvíslegum leiðum til að lifa veturinn af. Einærar plöntur lifa af sem fræ. Séu aðstæður óhagstæðar geta fræ sumra tegunda legið í dvala í jarðveginum í nokkur ár en að jafnaði spíra fræin að vori, vaxa upp og blómstra og mynda fræ sem fellur að hausti.

Gulrætur eru tvíærar plöntur sem lifa fyrsta veturinn af sem forðarót en blómstra og mynda fræ á öðru ári. Mynd / sowtrueseed.com

Tvíærar plöntur safna forða í rótina á fyrra ári og rótin lifir veturinn af. Á öðru ári blómstrar plantan og myndar fræ. Margar tegundir fjölærra plantna og laukjurta beita svipaðri aðferð. Þær vaxa upp að vori, vaxa og dafna yfir sumarið, safna forðanæringu í rótina eða laukinn, sölna að hausti og lifa í dvala neðanjarðar yfir veturinn. Þar sem snjór liggur eins og teppi yfir jarðveginum eru plönturnar vel varðar fyrir umhleypingum og grasbítum sem byggja lífsafkomu sína á þeim yfir veturinn.

Sumar- og sígrænt

Tré og runnar sölna ekki á haustin og þurfa því að beita öðrum ráðum til að lifa veturinn af. Sum tré eru sumargræn en önnur græn allt árið. Lauf sígrænna trjáa nefnist barr, oft langt og mjótt og með vaxhúð sem dregur úr útgufun.

Fyrir lauffall á haustin draga lauftré blaðgrænuna úr blöðunum og senda hana niður í rótina. Mynd / forestryengland.uk/

Fyrir lauffall á haustin draga lauftré blaðgrænuna úr blöðunum og senda hana niður í rótina, rétt eins og hagsýnir heimilishaldarar safna vetrarbirgðum í búrið sitt. Blaðgrænan er byggð upp af efnum sem trén eiga ekki greiðan aðgang að og þurfa að eyða mikilli orku í að framleiða.

Eftir í blöðunum verða efni sem trén hafa minna fyrir að búa til. Efnin sem eftir verða eru gul eða rauð og eru ástæðan fyrir því að haustlitur trjánna er yfirleitt í þeim litum.

Á haustin er að finna í brumi trjáplantna fullþroskaðan vísi að vexti næsta árs. Mynd / wikimedia.org
Fullþroskaður vaxtarvísir

Á haustin er að finna í brumi trjáplantna fullþroskaðan vísi að vexti næsta árs. Vaxtarvísirinn er vel geymdur í bruminu og það ver hann fyrir vetrarkuldanum. Frost að vori, eftir að brumið hefur opnað sig, getur skemmt vaxtarvísinn varanlega.

Til að tré laufgist að vori þarf lofthiti að vera kominn upp fyrir ákveðið lágmark en í öðrum tilfellum þarf daglengd að hafa náð ákveðnum klukkustundafjölda.

Langir hlýindakaflar á veturna geta því vakið ýmsar trjátegundir, einkum frá suðlægari slóðum þar sem vorar fyrr en á Íslandi, af dvala sínum og blekkt tré til að halda að það sé komið vor.

Þegar slíkt gerist eru miklar líkur á frostskemmdum ef það kólnar hratt aftur.

Lítil hætta er á þessu hjá plöntum sem koma frá svæðum sem eru á næstu eða sömu breiddargráðum og Ísland.

Einærar plöntur lifa veturinn af sem fræ sem spíra á vorin. Mynd / morningchores.com
Hægfara kólnun best

Ólíkt dýrafrumum hafa frumur í plöntum svokallaðan frumuvegg sem liggur utan um frumuhimnuna. Veggurinn er stinnur, hann verndar frumuna og kemur að hluta til í staðinn fyrir stoðgrind. Í gegnum frumuvegginn síast vatn og næringarefni. Kólni hratt er hætt við að vökvinn í plöntufrumunni frjósi. Við það eykst rúmmál hans og hætta á að frumuveggurinn rifni en það leiðir til kalskemmda.

Miklu máli skiptir að plöntur kólni það hægt á haustin að vatn nái að komast út úr frumunum í þeim takti sem eðlilegastur er fyrir hverja tegund. Dæmi er um að snögg kólnun niður í mínus 10° Celsíus hafi drepið tré sem annars þola kuldann allt að mínus 90° Celsíus.

Stutt haust valda því að plönturnar ná ekki að mynda eðlilegt frostþol og eru því viðkvæmari en ella.

Laukar eru forðarætur sem lifa veturinn af neðanjarðar. Mynd / bostonbulbswholesale.co.uk
Skjól fyrir vorsólinni

Of mikil útgufun getur einnig verið hættuleg fyrir plönturnar. Á vorin, þegar sólin skín og jörð er frosin, ná plönturnar ekki að bæta sér upp þann vökva sem þær tapa við útgufun og því hætta á ofþornun. Hér á landi þekkist þetta best hjá sígrænum trjám þegar barrið verður brúnt á vorin.

Jurtir á norðurslóðum

Jurtir sem eiga náttúruleg heimkynni á norðurslóðum eða hátt til fjalla eru yfirleitt lágvaxnar og með öflugt rótarkerfi sem getur verið allt að þrisvar sinnum víðfeðmara en sá hluti jurtarinnar sem er ofanjarðar.

Þar sem vaxtartími er stuttur mega plönturnar engan tíma missa og verða að hefja vöxt strax og veður leyfir. Langur sólargangur yfir sumarmánuðina lengir vaxtartímann verulega, enda nýta plönturnar hann til hins ýtrasta. Margar norðlægar tegundir mynda þúfur, eins og lambagras og geldingahnappur, og geta með því móti haldið hærri hita
og nýtt sólarljósið betur.

Ljóstillífun

Sígræn tré hafa það fram yfir sumargræn að þau geta hafið ljóstillífun um leið og hiti er orðinn það mikill að þau vakna af dvala. Talið er að smávaxnar og sígrænar jurtir geti ljóstillífað undir snjó og lengt þannig vaxtartímann.
Nokkrar tegundir trjáa, til dæmis aspir, geta notað blaðgrænu í berki, stofni og greinum til ljóstillífunar þegar aðstæður eru hagstæðar á veturna.

Skylt efni: plöntur | vetrardvali

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...