Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Grillréttir, íslenskt nautakjöt og bleikja
Matarkrókurinn 29. júlí 2024

Grillréttir, íslenskt nautakjöt og bleikja

Höfundur: Hafliði Halldórsson

Hásumar á Íslandinu fagra, á góðum degi, sólin skín jafnvel, kannski er ekki hávaðarok, við njótum okkar í tveggja stafa hitatölum, þá er nú gott til að magna upp stemninguna að rífa fram grillið og svellkaldan drykk til að kæla okkar besta fólk.

Grilldrottningar, -kónga og -kvár, hvort sem þau smella grilltöngum í takt við sumarsmellinn í útvarpinu heima eða í útilegunni. Á grillinu í þetta skiptið eru íslensk nautasteik og bleikja. Nánar tiltekið nautahryggvöðvi og heilt bleikjuflak, meðlætið er afskaplega einfalt því við nennum engu veseni núna, við erum bara að njóta sumarsins.

Bleikja er afskaplega góður matfiskur, hvort sem hún er villt eða úr eldi og uppáhalds á grillið. Ég ráðlegg fólki að kaupa ekki marineraðan fisk í búðinni, heldur hrein flök. Fyrir því eru aðallega tvær ástæður, þið viljið ráða bragðinu sjálf, og svo hitt að fiskurinn sem liggur í marineringu og sósum í fiskborðinu er ekki alltaf sá ferskasti í búðinni þann daginn.

Nautahryggvöðvi er oftast borin fram „medium rare“ en smekkur okkar er auðvitað misjafn, til að ná réttri niðurstöðu fyrir ykkar smekk er nauðsyn að nota rafrænan kjarnhitamæli sem er hægt að nálgast víða fyrir litla peninga, bestir eru mælar sem hafa langan vír sem leyfir að stjórnborðið sem er úr plasti sé utan við grillið eða ofninn. Það er óþarfi að kaupa slíka mæla merkta amerísku grillmerki sem kosta alla jafna hálfan handlegg. Heldur t.d. bara það sem finnst í næstu matvöruverslun eða hjá sænsku húsgagnabúðinni í hrauninu í gamla Garðahreppi.

Grilluð bleikja, kryddjurtasósa og salat með sultuðum rauðlauk

1 kg bleikjuflök
Matarolía
Salt
1⁄2 sítróna

Skolið og þerrið flökin vel, penslið með olíu og saltið. Grillið á meðalheitu grilli sem hefur verið hreinsað vel, látið roðið snúa upp. Notið góðan spaða og snúið flakinu og klárið eldun með roðið niður. Penslið sítrónuna og grillið með fiskinum, kreistið safann yfir fiskinn eftir eldun.

Sultaður rauðlaukur

1 rauðlaukur
1 dl eplaedik
1 dl vatn
100 g sykur

Blandið ediki,vatni og sykri í pott og hitið að suðu, sneiðið laukinn þunnt. Hellið heitum vökvanum yfir og látið standa. Athugið að hér er tilvalið að margfalda magnið, sultaður laukur geymist vikum saman í kæli og passar vel með mörgu.

Kryddjurtasósa

Hnefafylli fersk steinselja
Hnefafylli ferskur graslaukur
1 hvítlauksrif
2 dl matarolía
Salt
1⁄2 sítróna

Saxið fínt jurtir og hvítlauk, eða maukið með olíunni í blandara, smakkið til með sítrónusafa og salti.

Ferskt salat með sultuðum rauðlauk

Gott salat
Smátómatar
Fræ og eða hnetur
Sultaður rauðlaukur
Blandið eftir smekk.

Grillaður íslenskur nautahryggvöðvi og kartöflur

1 kg nautahryggvöði, 4 steikur
Matarolía
Garðablóðberg
Hvítlaukur
Salt
Nýmulinn svartur pipar
Bökunarkartöflur

Veljið helst fitusprengt naut hvort sem þið grillið eða steikið, hér sem við önnur tilefni er best að leyfa steikinni að ná stofuhita í 1–2 klst. áður en hún er elduð. Takið úr umbúðum, þerrið og marinerið í olíu, með garðablóðbergi og mörðum hvítlauksrifjum. Skerið bökunarkartöflur í sneiðar eða báta, penslið með olíu. Hitið grillið vel og grillið kartöflurnar á báðum hliðum og saltið, færið á eldfastan bakka og klárið eldun á óbeinum hita á grillinu, eða í ofni.

Takið steikina úr marineringunni, saltið ríflega á öllum hliðum og látið standa í 5 mínútur. Grillið á háum hita í upphafi til að fá fallegar rendur í steikina, færið á lægri hita og eldið eftir smekk, fyrir minn smekk tek ég steikina af í 53–45°C kjarnhita, pipra steikina fyrst þá vegna þess að pipar brennur auðveldlega á grilli, og læt steikina hvíla undir álpappír við stofuhita í 15 mínútur áður en ég ber matinn fram.

Grænpipar majo

4 dl gott majones
1 dl grísk jógúrt 
1 msk. grænpipar (niðursoðinn)
1 msk. hunang
Sítrónusafi

Notið niðursoðinn grænpipar, sem er í vatni og fæst ýmist í litlum krukkum eða niðursuðudósum. Saxið fínt helminginn af piparnum og hrærið saman við majones, jógúrt og hunang. Smakkið til með salti og sítrónusafa. Ef þið eigin ferskan graslauk eða vorkauk er tilvalið að bæta honum við til að fríska upp á sósuna.

Steiktir sveppir

Kjörsveppir
Kastaníusveppir
Matarolía
Smjör
Salt

Mér finnst að allir sveppir eigi skilið gott smjörbað áður en þeir eru borðaðir, steikið sveppina á vel heitri pönnu, fyrst með olíu og bætið svo smjöri við og saltið. Best er ef þið getið haft pönnuna á grillinu á meðan þið eldið steikina.

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins
Fréttir 4. júní 2026

Eignarhald á landbúnaðarlandi í Útvarpi Bændablaðsins

Ný skýrsla um eignarhald á landbúnaðarlandi á Íslandi sýnir fram á að meirihluti...

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár
Fréttir 4. júní 2026

Búvörusamningar framlengdir um eitt ár

Búvörusamningar hafa verið framlengdir um eitt ár en þeir hefðu annars runnið út...

Minni heimsins
Fréttir 4. júní 2026

Minni heimsins

UNESCO-dagurinn var haldinn hátíðlegur í byrjun maí, en í ár var fjallað sérstak...

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur
Fréttir 4. júní 2026

Landgræðsluskólinn hefur útskrifað 240 nemendur

Á undanförnum mánuðum hefur GRÓ Þekkingarmiðstöð þróunarsamvinnu staðið fyrir vi...

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi
Fréttir 3. júní 2026

Þungarokkshátíðin Sátan haldin í Stykkishólmi næstu helgi

Þungarokkshátíðin Sátan verður haldin í Stykkihólmi dagna 4.-6. júní. Þetta er í...

Ársskýrsla Brothættra byggða: Góður árangur
Fréttir 3. júní 2026

Ársskýrsla Brothættra byggða: Góður árangur

Í nýútgefinni ársskýrslu Byggðastofnunar yfir verkefnið Brothættar byggðir kemur...

Nota langmest innlend áburðarefni
Fréttir 3. júní 2026

Nota langmest innlend áburðarefni

Verðhækkanir á áburðarverði koma lítið sem ekkert við bændur í lífrænni ræktun.

Erfitt að sætta ólík sjónarmið
Fréttir 3. júní 2026

Erfitt að sætta ólík sjónarmið

Verðmæti efnisins sem Ísteka vinnur úr blóði fylfullra hryssna veltir um tveimur...