Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 ára.
Fréttir 8. nóvember 2018
Höfundur: smh
Haustfundum Landssambands kúabænda (LK) lauk fyrir síðustu helgi, en þeir stóðu yfir frá 8.–26. október. Fyrir kúabændum liggur fljótlega á næsta ári að ákveða hvort áframhaldandi kvótakerfi verður við lýði og því fór mestur tími í að ræða það málefni.
Fjórtán fundir voru haldnir víðs vegar um landið og voru þeir vel sóttir, en talið er að um 380 manns hafi alls mætt á þessa fundi. Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri LK, segir að umræðuefni fundanna hafi verið staða verkefna innan greinarinnar. Rædd voru málefni sem varða framleiðslu og sölu á mjólk og nautakjöti, sviptingar í tollaumhverfi, hráakjötsmálið svokallað, efnahalla í mjólkurframleiðslunni og fleira.
Þá voru stefnumótanir sambandsins í mjólkur- og nautakjötsframleiðslu kynntar til umræðu, en formlegar stefnumótanir um framtíðarskipulag verða gefnar út síðar í haust. Sköpuðust góðar umræður um málefnin, að sögn Margrétar.
Mest rætt um framtíð kvótakerfisins
„Mesta umræðan var um komandi atkvæðagreiðslu meðal mjólkurframleiðenda um kvótakerfið í mjólkurframleiðslu og endurskoðun búvörusamninga á næsta ári. Það er ljóst að umtalsverðar breytingar þarf að gera á núgildandi búvörusamningi ef meirihluti kúabænda kýs áframhaldandi kvótakerfi í mjólkurframleiðslu. Fari atkvæðagreiðslan svo að bændur vilji falla frá kvótakerfinu, þá verður endurskoðunin mun minni í sniðum,“ segir Margrét.
Greiningarvinna um áhrif mismunandi leiða
Margrét segir að nú sé í gangi greiningarvinna til að leiða í ljós hvað það hefur í för með sér að kjósa kvótakerfið áfram eða leggja það af. „Til þess að bændur geti tekið upplýsta ákvörðun um atkvæði sitt verður kynnt betur fyrir bændum hvað felst í því ef kvótinn verður áfram annars vegar og ef hann verður kosinn í burtu hins vegar.
Liður í þeim undirbúningi er greining á mögulegum leiðum til að eiga viðskipti með mjólkurkvóta og líklegum kostum og göllum hverrar fyrir sig, bæði út frá hagfræðilegu og samfélagslegu sjónarhorni. Hafa LK og Bændasamtök Íslands (BÍ) samið við Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Akureyri um að vinna þá greiningu og gert er ráð fyrir að þeirri vinnu ljúki í lok nóvembermánaðar. Í framhaldinu mun LK ásamt BÍ vinna úr niðurstöðunum, kynna vel fyrir bændum og teikna upp það kerfi sem gæti tekið við.
Eins er þónokkur vinna fram undan vegna hráakjötsmálsins en LK, líkt og önnur búgreinafélög, munu starfa náið með BÍ í því risastóra hagsmunamáli fyrir landbúnað á Íslandi,“ segir Margrét.
Fréttir 28. október 2026
Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...
Fréttir 28. október 2026
Verðhækkun um 2,5% tryggð
Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...
Fréttir 28. október 2026
Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...
Fréttir 27. október 2026
Sjálfbær þróun með sólarorku
Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...
Fréttir 27. október 2026
Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...
Fréttir 27. október 2026
Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...
Fréttir 27. október 2026
Áform um matvælakjarna og votlendissetur
Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...
Fréttir 26. október 2026
Skinka úr íslensku svínakjöti
Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...
27. október 2026
Bíða sem Hundtyrkir við Hamarsá
28. október 2026
„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
29. október 2026
Sebrafolald í fóstur hjá hryssu
27. október 2026
Breyttust í byggingastjóra á einni nóttu
28. október 2026
