Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Þau Eyjólfur og Lóa hafa á undanförnum tveimur árum verið að færa sig yfir í grænmetisræktun og skógrækt samhliða fjárbúskapnum.
Þau Eyjólfur og Lóa hafa á undanförnum tveimur árum verið að færa sig yfir í grænmetisræktun og skógrækt samhliða fjárbúskapnum.
Mynd / Aðsendar
Bóndinn 28. júní 2024

Góð samvinna

Þau Eyjólfur Ingvi Bjarnason og Guðbjört Lóa Þorgríms- dóttir tóku við búinu Ásgarði í Hvammssveit árið 2017 en Eyjólfur er uppalinn í Ásgarði og hefur verið viðriðinn búskapinn frá því hann var barn. Eyjólfur er 8. kynslóð sömu ættar sem býr á jörðinni frá árinu 1810. Lóa er alin upp á Erpsstöðum í Miðdölum og þegar þau fóru að skjóta sig saman var það alltaf stefnan að fara í búskap saman.

Býli, staðsetning og stærð jarðar? Ásgarður í Hvammssveit (táin á stígvélinu). Jörðin er um 2500 ha, mest fjalllendi en ræktað land er 44 ha.

Ábúendur, fjölskyldustærð (og gæludýra)? Við erum sjö manns sem búum hér og hundurinn Gosi. Eyjólfur og Lóa ásamt dætrum, Eydís Helga (6 ára), Erna Diljá (5 ára) og Salbjörg Magna (7 mánaða). Foreldrar Eyjólfs búa í „ömmu og afa“ húsi á jörðinni.

Fjölskyldan á góðri stund. Á myndina vantar yngsta krílið, hana Salbjörgu Mögnu. Mynd / Steinunn Þorvaldsdóttir

Gerð bús og fjöldi búfjár? Við erum fyrst og fremst með sauðfjárbú með tæplega 400 kindur á fóðrun. Síðan erum við dugleg að fá hugmyndir og prufa alls konar með. Árið 2021 gerðum við samning um skógrækt og höfum verið að planta trjám núna á hverju ári, mismikið milli ára. 2022 prufuðum við útiræktun á grænmeti og höfum verið að bæta í núna á hverju ári, bæði tegundir og magn. Keyptum okkur útplöntunarvél í vor og stefnan er að auka framleiðsluna. Á bænum eru síðan nokkrar hænur og 20 hestar.

Það er í ýmsu að snúast á Ásgarði og næsta víst að systurnar Eydís Helga og Erna Diljá verða aldrei verkefnalausar.

Hvers vegna veljið þið þessa búgrein? Hér hefur alltaf verið sauðfé auk þess sem Eyjólfur er líka forfallinn sauðfjárræktarmaður og var líklega kind í fyrra lífi! Hann man ættir kindanna margar kynslóðir aftur. Við veljum okkur að búa hér og vera með þessar búgreinar því okkur líkar það. En við ætlum líka að sníða stakk eftir vexti og aðlaga búskapinn að okkur og fjölskyldunni. Lóa vinnur í Auðarskóla í Búðardal og Eyjólfur hjá RML. Við sinnum bæði vinnu utan bús og því þurfa öll tannhjól að vinna saman svo allt gangi vel.
Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Hefðbundinn vinnudagur er breytilegur eftir árstíma eins og hjá flestum bændum. Þannig hefðbundinn vinnudagur tekur svolítið mið af því sem er efst á baugi á hverri árstíð samhliða störfum utan bús. En dagarnir geta sumir hverjir orðið langir.

Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Ætli það sé ekki bara það sama og hjá öllum öðrum – skemmtilegt þegar vel gengur og eins þegar öll fjölskyldan er saman að störfum. Aftur á móti er leiðinlegt þegar illa gengur, tæki bila og ekki hægt að gera það sem átti að gera á því augnabliki. En við erum ólík þannig að það sem Eyjólfi finnst leiðinlegt finnst Lóu skemmtilegt, s.s. grjóttínsla. Eyjólfur er aftur á móti á heimavelli að spá í gripi og búrekstrartengda þætti sem Lóu finnst minna skemmtilegt. En þannig vinnast líka verkin vel þegar hægt er að vera í sitthvoru verkefninu og afkasta að við teljum bara ágætlega.

Á bænum er ræktað blómkál, spergilkál, hvítkál og gulrófur sem seld eru beint frá býli.

Hvað er það jákvæða við að vera bóndi? Það er gaman að búa í sveit og vera í tengslum við náttúruna alla daga ársins – það er líka gaman að sjá börnin sín vaxa og dafna í því frelsi sem búseta í dreifbýli býður upp á. Eins er gaman að sjá árangur erfiðis raungerast þegar við prófuðum útiræktun í fyrsta skipti. Þannig má sjá með eigin augum að maður uppsker eins og maður sáir.

Hverjar eru áskoranirnar? Það eru alltaf einhver áskoranir eins og í öllu lífinu bara, við getum víst ekki stjórnað öllu og stundum eru það einhverjir ytri þættir eins og veðurfar og stýrivextir sem hafa áhrif á búskapinn. Einnig er tíminn mikil áskorun þar sem það eru fjölmörg verkefni sem þarf að vinna og önnur sem okkur langar að vinna. En klukkustundirnar eru víst aðeins 24 í hverjum sólarhring.

Hvernig væri hægt er gera búskapinn ykkar hagkvæmari? Það eru fjölmörg tækifæri sem gætu gert búskapinn hagkvæmari – t.d. með aukinni framleiðslu. En mottóið okkar er að reyna að hafa störfin skemmtileg og viðráðanleg í stað þess að verkin verði kvöð og óyfirstígableg í framkvæmd.

Hvernig sjáið þið landbúnað á Íslandi þróast næstu árin? Það eru ótal tækifæri í íslenskum landbúnaði og margt sem við getum gert vel hér á landi. Forsenda þess að það raungerist er að tekjugrunnur landbúnaðar sé réttur og rekstrarhæfi til lengri tíma tryggt. Við teljum að það verði aukning í framleiðslu á grænmeti á Íslandi og mögulega hægt að tryggja íslenskt grænmeti í búðum allt árið.

Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það er þetta með „gullfiskaminnið“ – þau eru alveg nokkur eftirminnilegu atvikin og þykir okkur vænst um samverustundirnar með fjölskyldum og vinum þegar þau koma og aðstoða á háannatímum. Við höfum haft nokkra erlenda verknámsnema síðustu ár. Það er mjög eftirminnilegt þegar einn þeirra í smalamennsku stökk á eftir kind út í á því hún átti ekki að sleppa og varð gegnvotur. Daginn eftir skildi hann ekkert í því af hverju gutlaði í stígvélunum hans.

Bændurnir í Ásgarði taka yfir Instagram Bændablaðsins @baendabladid næstu tvær vikurnar.

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...