Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 9 ára.
Góð innanlandssala en krísa í útflutningi
Mynd / Áskell Þórisson
Lesendarýni 11. ágúst 2017

Góð innanlandssala en krísa í útflutningi

Höfundur: Svavar Halldórsson
Sala á kindakjöti innanlands jókst um 5,2% í fyrra eftir nokkur samdráttarár í röð. Það sem af er ári hefur innanlandssalan gengið vel. Samkvæmt tölum Mat­vælastofnunnar jókst sala á kindakjöti á öðrum ársfjórðungi um 16,6% miðað við sama tímabil í fyrra. Ef eingöngu er horft til dilkakjöts var söluaukningin 13,2%. Helsta skýringin er aukin sala til erlendra ferðamanna. Um tveir þriðju hlutar framleiðslunnar eru seldir innanlands og þetta er því lang verðmætasti markaðurinn fyrir íslenskt kindakjöt. 
 
Erlendir ferðamenn
 
Svavar Halldórsson.
Erlendum ferðamönnum á Íslandi hefur fjölgað mikið frá hruni. Til að byrja með hafði þessi fjölgun ekki áhrif á sölu á kindakjöti sem dróst saman flest árin, en eftir að ráðist var í sérstakt markaðsverkefni í til að ná til ferðamannanna hefur staðan breyst. Nú setja um 100 íslenskir veitingastaðir lambakjöt í öndvegi í samstarfi við Icelandic lamb. Öflug verðlaunaherferð á samfélagsmiðlum hefur vakið verðskuldaða athygli og notendur miðlanna hafa séð myndbönd og auglýsingar frá Icelandic lamb um 7,5 milljón sinnum. 
 
Útflutningur
 
Útflutningur á kindakjöti dróst saman um 5,1% í fyrra en þá voru flutt út um 2.800 tonn til 19 landa fyrir tæpa tvo milljarða króna. Þetta var annað samdráttarárið í röð en útflutningurinn dróst saman um 14,4% í hitteðfyrra. Helstu ástæðurnar eru sviptingar á alþjóðlegum mörkuðum sem meðal annars má rekja til Úkraínudeilunnar, lokun Noregsmarkaðar, fall breska pundsins og mikil styrking íslensku krónunnar. Ráðist var í sérstakar aðgerðir í vetur og vor til að bregðast við þessu ástandi og hefur það borið nokkurn árangur. Mikilvægt er að aðgreina þann útflutning sem fer inn á sveiflukennda heimsmarkaði og þann hluta þar sem kjötið er selt sérstaklega sem íslenskt. Slíkir markaðir halda sínu miklu betur við þessar aðstæður en eru enn sem komið er ekki nema brot af heildarútflutningi. Miklar vonir eru bundnar við ýmis ný verkefni í Japan, Evrópu og Bandaríkjunum en það tekur tíma og staðfestu að byggja upp slíka betur borgandi markaði. Eins og staðan er nú treystir greinin mikið á ódýrari afsetningarmarkaði og erfiðleikar þar valda birgðasöfnun. 
 
Birgðir
 
Birgðir í árslok 2016 voru um 6.700 tonn sem var um 7,5% aukning frá áramótunum á undan. Þetta eru um 1.300 tonnum meiri áramótabirgðir en voru fyrir 10 árum. Um mitt þetta ár voru birgðirnar um 2.600 tonn sem er 12,9% meira en á sama tíma í fyrra. Það er því útlit fyrir að birgðir við upphaf sláturtíðar verði 700 til 1.000 tonnum meiri en æskilegt væri. Misjafnt er milli afurðastöðva hversu miklar birgðirnar eru og samsetning þeirra er jafnframt óhagstæð því þær samanstanda að mestu af lærum og frampörtum en jafnvægi er í hryggjum og slögum. 
 
Horfur í haust
 
Forystumenn bænda hafa frá því í vetur átt í viðræðum við stjórnvöld um hvernig bregðast skuli við stöðunni. Erfiðlega hefur gengið að ná samkomulagi um aðgerðir sem taka á vandanum. Viðræðurnar halda þó áfram. Sú undarlega staða blasir því við að þrátt fyrir mikla innanlandssölu og mikinn árangur í markaðssetningu gagnvart erlendum ferðamönnum eru alvarlegar blikur á lofti varðandi afurðaverð haustsins. 
 

Skylt efni: sala á lambakjöti

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn
Fréttir 28. október 2026

Hagrænn ávinningur fyrir búreksturinn

Í sumar var endurnýjaður samningur Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) við ...

Verðhækkun um 2,5% tryggð
Fréttir 28. október 2026

Verðhækkun um 2,5% tryggð

Bændur huga brátt að áburðarmálum næsta ræktunartímabils. Í rúmlega 10 ár hefur ...

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir
Fréttir 28. október 2026

Aukin fjárframlög verða til þróunar verkefnisins Brothættar byggðir

Stjórn Byggðastofnunar hefur ákveðið að auka fjárframlög til verkefnisins Brothæ...

Sjálfbær þróun með sólarorku
Fréttir 27. október 2026

Sjálfbær þróun með sólarorku

Eins og frá var greint í síðasta tölublaði Bændablaðsins er stærsta birtuorkuver...

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar
Fréttir 27. október 2026

Þór hf. hættir með DEUTZ-FAHR dráttarvélar

Þór hf. og SDF hafa komist að sameiginlegri niðurstöðu um að ljúka samstarfi um ...

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni
Fréttir 27. október 2026

Samræmdar aðferðir þróaðar við vöktun á rusli í vatni

Matís stýrir stóru evrópsku verkefni sem felst í að þróa samræmdar og hagkvæmar ...

Áform um matvælakjarna  og votlendissetur
Fréttir 27. október 2026

Áform um matvælakjarna og votlendissetur

Hjá Landbúnaðarháskóla Íslands (LbhÍ) er í undirbúningi verkefni sem felst í að ...

Skinka úr íslensku svínakjöti
Fréttir 26. október 2026

Skinka úr íslensku svínakjöti

Stjörnugrís er eini framleiðandinn sem framleiðir skinku aðeins úr íslensku svín...