Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 5 mánaða.
Angus nautkálfurinn hjá Nautís sem kom nýlega í heiminn.
Angus nautkálfurinn hjá Nautís sem kom nýlega í heiminn.
Mynd / Aðsend
Fréttir 21. apríl 2026

Fyrsti Angus-holdakálfur hjá Nautís í vor

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Nýlega kom fyrsti kálfur vorsins í heiminn hjá Nautís á Stóra-Ármóti í Flóahreppi. Um er að ræða Angus nautkálf, sem hefur fengið nafnið Toppur en hann er undan norska ungnautinu Topp Xxl.

„Toppur braggast vel og er fallegur. Nautís er einangrunarstöð fyrir holdagripi af Aberdeen Angus kyni en erfðaefnið er flutt inn frá Noregi. Við höfum aðgang að besta erfðaefni Norðmanna en þeir sækja erfðaefnið um allan heim, Ástralíu, Kanda, USA, Bretland og víðar en sóttvarnarreglur eru strangar,“ segir Sveinn Sigurmundsson, framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands, en Nautís er rekið af sambandinu, Landssambandi kúabænda og NBÍ, sem er nautastöð Bændasamtaka Íslands.

„Stöðin var byggð 2016-2017. Fluttir voru inn fósturvísar 2017 og fæddust fyrstu gripirnir 2018. Síðan þá hafa verið seld lífdýr frá stöðinni og sæði úr Angus nautum dreift. Kálfurinn sem fæddist núna var númer 125. Nú eru 23 Angus kýr til og eru þær í kúafjósi og eru að bera þessa dagana,“ bætir Sveinn við.

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...