Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 2 ára.
Rúmlega þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands og starfsmenn eru um 150 talsins. Fjölmennasta brautskráning í sögu skólans var í lok maí en þá útskrifuðust um 170 nemendur frá skólanum.
Rúmlega þúsund nemendur eru í Fjölbrautaskóla Suðurlands og starfsmenn eru um 150 talsins. Fjölmennasta brautskráning í sögu skólans var í lok maí en þá útskrifuðust um 170 nemendur frá skólanum.
Mynd / mhh
Fréttir 24. júní 2024

Fyrrverandi nemandi verður skólameistari

Höfundur: Magnús Hlynur Hreiðarsson

Soffía Sveinsdóttir tekur við embætti skólameistara Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi þann 1. ágúst næstkomandi.

Soffía Sveinsdóttir.

„Ég varð auðvitað kampakát en jafnframt auðmjúk og þakklát fyrir traust ráðherra. Umsækjendur voru fáir og því átti ég ágætis möguleika á stöðunni líkt og hinir en reyndi að hugsa lítið um það,“ segir Soffía aðspurð um viðbrögð hennar þegar hún fékk símtalið um ráðninguna. Sex sóttu um starfið.

„Ég er fyrrverandi nemandi skólans og þykir mjög vænt um skólann. Ég stefndi alltaf að stjórnunarstarfi í Menntaskólanum í Hamrahlíð (MH) þegar ég vann þar en síðan flutti ég á Selfoss og söðlaði um með því að hefja störf hjá Matvælastofnun. Þegar ég sá stöðu skólameistara auglýsta þá ákvað ég að láta slag standa, enda tækifæri sem kemur kannski einu sinni á starfsævinni,“ bætir Soffía við en skipunin nær til fimm ára.

Soffía fæddist í Reykjavík en er alin upp á Selfossi. Faðir hennar er Sveinn Sigurmundsson og er framkvæmdastjóri Búnaðarsambands Suðurlands og móðir hennar heitin hét Anna Atladóttir og var bankastarfsmaður. Soffía á þrjá bræður, þá Knút, Bjarna og Sölva. Maðurinn hennar er Elmar Viðarsson grunnskólakennari og eiga þau tvær dætur, Ernu Huld og Vigdísi Önnu.

Kveður Matvælastofnun

Soffía tekur við embættinu af Olgu Lísu Garðarsdóttur, sem hefur gegnt starfinu síðustu ár. Soffía vann í tæplega 19 ár í MH og hefur því góða þekkingu á starfsemi framhaldsskóla. „En ég hef núna verið tæp tvö ár hjá Matvælastofnun á Selfossi og sú reynsla mun nýtast mér gríðarlega vel, enda flókin og umfangsmikil stofnun. Ég á eftir að sakna Matvælastofnunar og starfsfólksins þar og kveð með trega. En svona er lífið, getur tekið óvænta stefnu og ég er full tilhlökkunar að takast á við ný verkefni. Skólinn er vinnustaður, sem gott orð fer af og ég tek við góðu búi af fráfarandi skólameistara,“ segir Soffía.

Veðurfréttakona á Stöð 2

Nýr skólameistari útskrifaðist með masterspróf í efnafræði 2003 og hóf strax störf sem efnafræðikennari við MH. „Ég lauk diplóma í kennsluréttindum samhliða kennslunni fyrsta árið og bætti við mig MA í mannauðsstjórnun nokkrum árum síðar. Ég var lengst af deildarstjóri alþjóðlegrar námsbrautar í MH, sem heitir IB braut. Ég flutti til baka á Selfoss árið 2017, lauk diplómu í opinberri stjórnsýslu árið 2022 og það haust hóf ég störf hjá Matvælastofnun, sem sviðsstjóri vettvangseftirlits. Síðan hef ég sinnt ýmsum aukastörfum gegnum tíðina, t.d. verið ritari og þulur á kynbótasýningum í mörg ár, var fararstjóri í hestaferðum í nokkur sumur og vann sem veðurfréttakona á Stöð 2 í níu ár svo eitthvað sé nefnt,“ segir Soffía.

Náttúrubarn

Soffía hefur verið á kafi í hestamennsku frá því að hún man eftir sér og þá elskar hún að vera á fjöllum, hvort sem það er gangandi eða í hestaferð enda segist hún vera fyrst og fremst náttúrubarn.

„Ég hef verið með tvo til þrjá hesta á húsi á félagssvæði Sleipnis og er dugleg að ríða út og þjálfa. Við pabbi erum mikið saman í hestunum, sem er dýrmætt. Ég hef verið talsvert í keppnisstússi svo hestamennskan snýst mikið um þjálfun fyrir keppni. Það gerir þjálfunina markvissari að hafa markmið. Svo hef ég verið í liði Hvolpasveitarinnar í áhugamannadeildinni síðustu fjögur ár, sem er frábær félagsskapur,“ segir Soffía.

Soffía er á kafi í hestamennsku og tekur þátt í mótum og ríður mikið út með pabba sínum. Hér er hún á keppnishestinum sínum, Skuggaprinsi frá Hömrum, í B-úrslitum í tölti í keppni á síðasta ári. Myndir / Aðsendar

Ætlaði að verða kokkur

Soffía á sér mörg áhugamál, hún er til dæmis í hlaupahópnum Frískum Flóamönnum og svo hefur hún mikla ánægju af eldamennsku og bakstri.

„Sem unglingur langaði mig að verða kokkur en vinur minn, sem þá var kokkur, ráðlagði mér að eiga eldamennskuna sem áhugamál frekar en að leggja það fyrir mig, það var gott ráð,“ segir hún hlæjandi.

Danmörk í sumar

Nýi skólameistarinn segir að sumarið leggist mjög vel í sig og fjölskylduna. „Við erum á leiðinni til Danmerkur um miðjan júní, það er mikil tilhlökkun hjá öllum fyrir þeirri ferð. Annað hefur ekki verið planað í sumar, við ætlum bara að njóta góða veðursins í júlí, fara í útilegur, ríða út og kannski keppi ég á einu hestamóti. Maður á alltaf að líta á björtu hliðarnar, eða eins og Monty Python sungu um árið: „Always look on the bright side of life“,“ segir Soffía full tilhlökkunar.

Mikill áhugi á garðyrkjunámi
Fréttir 11. september 2026

Mikill áhugi á garðyrkjunámi

Garðyrkjuskólinn á Reykjum, sem nú heyrir undir Fjölbrautaskóla Suðurlands, teku...

Fálkum fjölgar en eggjum rænt
Fréttir 11. september 2026

Fálkum fjölgar en eggjum rænt

Fálkum fjölgaði um þriðjung milli áranna 2025 og 2026 á rannsóknarsvæði Náttúruf...

Brennsluofn fyrir dýrahræ
Fréttir 11. september 2026

Brennsluofn fyrir dýrahræ

Í Árnesi í Skeiða- og Gnúpverja- hreppi hefur verið settur upp brennsluofn fyrir...

Stóraukin eftirspurn eftir mjólkurkvóta
Fréttir 11. september 2026

Stóraukin eftirspurn eftir mjólkurkvóta

Á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur 1. september var eftirspurn eftir mjól...

Annað innbrot í svínabúið
Fréttir 10. september 2026

Annað innbrot í svínabúið

Aftur var brotist inn á Svínabú Stjörnugríss 2. september síðastliðinn. Líkt og ...

Lífrænar áburðarvörur í reglugerð
Fréttir 10. september 2026

Lífrænar áburðarvörur í reglugerð

Í drögum að reglugerð um áburðarvörur eru í fyrsta sinn settar heildstæðar reglu...

Áfram búist við fækkun sláturfjár á milli ára
Fréttir 10. september 2026

Áfram búist við fækkun sláturfjár á milli ára

Sláturtíð er nýhafin og búist er við að áfram fækki sláturfé sem kemur til slátr...

Kílóverð lambalæris talið mun hærra en ýsuflaks
Fréttir 10. september 2026

Kílóverð lambalæris talið mun hærra en ýsuflaks

Í nýlegri könnun sem Prósent gerði fyrir Icelandic Lamb kemur í ljós að neytendu...