Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 6 ára.
Framtíð í mjólkur- framleiðslu
Skoðun 20. janúar 2020

Framtíð í mjólkur- framleiðslu

Höfundur: Lilja Rafney Magnúsdóttir - formaður atvinnuveganefndar
Stuttu fyrir jól voru gerðar lagabreytingar sem sneru að samningi stjórnvalda og kúabænda samþykktar á Alþingi. Því munu viðskipti með greiðslumark hefjast á nýjan leik á árinu. Er það orðið tímabært eftir mikla óvissu um hvernig stuðningi við nautgriparækt yrði háttað til frambúðar sem olli því að nær engin hreyfing varð á greiðslumarki á síðasta ári. 
 
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
Þó að lítil hreyfing hafi verið á greiðslu­marki þá hefur nautgripa­ræktin sjálf ekki setið auðum höndum. Veruleg fjár­festing hefur orðið í greininni og íslenskir kúabændur reisa myndarlegar byggingar þar sem allur aðbúnaður og vinnuaðstaða er til fyrir­myndar. Mjaltaþjónar verða æ algengari en sá böggull fylgir skammrifi að því tæknivæddari sem greinin er því mikilvægara er að innviðir á borð við flutningskerfi raforku þoli álag á borð við það sem birtist í óveðrinu fyrir jól. 
 
Að sama skapi hefur greinin fjárfest með kraftmiklum hætti í rannsóknum og þróun á síðustu árum eins og verkefni um innleiðingu erfðamarkaræktar í nautgriparækt ber vitni um. Mér er sagt að stytting ættliðabils um helming muni gjörbreyta allri ræktun til hins betra. Þá styttist í að innflutningur á nýju erfðaefni í nautakjötsframleiðslu fari að skila árangri með lækkuðum framleiðslukostnaði og bættum gæðum. Allt þetta sýnir djörfung og framsækni íslenskra bænda sem ætla sér að vera með á boðstólnum fyrsta flokks vöru í harðnandi samkeppni og keppa á gæðum og hreinleika matvæla, neytendum til góða.
 
Þá hafa kúabændur mikinn metnað í loftslagsmálum eins og nýi nautgriparæktar samningurinn ber vitni um, en þar er stefnt að kolefnishlutleysi árið 2040. Ljóst er að bæði þarf að draga verulega úr losun og auka bindingu til að það megi verða raunin. Þróun í vinnslu á íblöndunarefnum í fóður úr þara í þessum tilgangi á vonandi eftir að skila árangri. Kúabændur hafa aukið framleiðni sína gríðarmikið síðustu áratugi og ekkert bendir til að dragi úr þeirri þróun nema síður sé með bættri tækni við ræktun.
 
Stjórnvöld þurfa að setja sér stefnu í landbúnaðarmálum til lengri tíma en sem nemur einum búvörusamning. Þannig verði komist hjá því að undirstöðu­atvinnugrein í dreifbýli líkt og mjólkurframleiðsla þurfi að búa við óvissu í rekstrarumhverfi sínu líkt og verið hefur. Sú hugsun var á bakvið samþykkta aðgerðaráætlun til verndar matvælaöryggi um mitt síðasta ár. Þar var kveðið á um að móta matvælastefnu til lengri tíma sem nú er unnið að og ég tel vera mjög mikilvægt fyrir íslenskan landbúnað, neytendur og matvælaöryggi landsins.
 
Ég trúi því og treysti að með mótun slíkrar stefnu séum við að hefja metnaðarfulla sókn og framþróun í takt við vilja og metnað bænda – um framleiðslu á heilnæmum vörum í sátt við samfélagið og náttúruna.
 
Lilja Rafney Magnúsdóttir.
formaður atvinnuveganefndar
Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum
Fréttir 16. október 2026

Skæð fuglainflúensa greinst í villtum fuglum

Skæð fuglainflúensa hefur greinst í sýnum sem tekin voru úr villtum fuglum á Nor...

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir
Fréttir 16. október 2026

Staðbundið hráefni og hefðbundnar vinnsluaðferðir

Undanfarin fimm ár hefur Bjarki Þór Sólmundsson, matreiðslumeistari og myndlista...

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni
Fréttir 16. október 2026

Þriðji ættliðurinn tekur við Hveratúni

Kynslóðaskipti hafa orðið á garðyrkjustöðinni Hveratúni í Laugarási. Skúli Magnú...

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða
Fréttir 15. október 2026

Hagvöxtur ekki alltaf af hinu góða

„Hagvöxtur trompar allt annað í áherslum stjórnvalda. En er hann besti mælikvarð...

Fékk nafnið Vafi
Fréttir 15. október 2026

Fékk nafnið Vafi

Eins og allir vita þá kasta hryssur á vorin og eitthvað fram eftir sumri en að þ...

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn
Fréttir 15. október 2026

Reiðhestakostir staðfestir í alþjóðlegri rannsókn

Í reiðhæfni, öryggi og hugrekki fær íslenski hesturinn hæstu einkunn allra kynja...

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra
Fréttir 14. október 2026

Reykjagarður stækkar um 4.000 fermetra

Það er mikið um að vera hjá Reykjagarði á Hellu því þar er verið að byggja fjögu...

Kornskemman hefur tæplega undan
Fréttir 14. október 2026

Kornskemman hefur tæplega undan

Kornskemman, félag bænda í Eyjafirði, auglýsti móttöku á korni öðru sinni. „Við ...