Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 4 mánaða.
Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025
Fréttir 12. júní 2026

Framleiðsluvirði landbúnaðarins 100 milljarðar árið 2025

Höfundur: Þröstur Helgason

Heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins árið 2025 er áætlað 100 milljarðar sem er 7% aukning frá árinu 2024 eftir því sem fram kemur í frétt frá Hagstofu Íslands. Áætlað er að 64% framleiðsluvirðisins teljist til búfjárræktar en 27% til nytjaplönturæktar.

Virði nytjaplönturæktar jókst um 14% frá árinu 2024, sem má að mestu rekja til aukinnar uppskeru þar sem veðurfar sumar og haust 2025 var mun betra en árið áður.

Gert er ráð fyrir að kostnaður við aðfanganotkun verði 68 milljarðar króna árið 2025 sem er 10% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn, 67% af heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins, sem er svipað og það var á fyrra ári. Rétt er að benda á að mat á aðfanganotkun er háð nokkurri óvissu og þar með verður mat á hlutdeild annarra útgjaldaliða einnig óvisst. Áætlunin byggir á lokaúttekt fyrir árið 2024 og svo fyrirliggjandi upplýsingum um magn- og verðbreytingar á landbúnaðarvörum árið 2025, segir í frétt Hagstofunnar.

Árið 2024 var heildarframleiðsluvirði landbúnaðarins metið 94 milljarðar króna. Virði afurða búfjárræktar, þ.e. framleiðsla dýra og dýraafurða, vegur þar langþyngst eða um 66% en virði afurða nytjaplönturæktar vegur um 26%. Tekjur af landbúnaðarþjónustu eru innan við 1% af heildarframleiðsluvirðinu og tekjur af óaðskiljanlegri aukastarfsemi eru 8%.

Heildaraðfanganotkun árið 2024 nam 61 milljarði króna sem er 4% aukning frá fyrra ári. Aðfanganotkun er stærsti útgjaldaliðurinn og vegur 66% af framleiðsluvirðinu.

Skylt efni: Landbúnaður

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...