Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 7 mánaða.
Hlutfall úrvalsmjólkur á síðasta ári var 40% af allri innlagðri mjólk.
Hlutfall úrvalsmjólkur á síðasta ári var 40% af allri innlagðri mjólk.
Mynd / Úr safni
Fréttir 12. mars 2026

Framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði

Höfundur: Sigurður Már Harðarson

Alls uppfylltu 47 kúabú skilyrði Auðhumlu um framleiðslu á úrvalsmjólk alla mánuði síðasta árs.

Allir framleiðendur sem uppfylla skilyrðin úrvalsmjólkur fá greitt tveggja prósenta álag ofan á afurðastöðvaverð í þeim mánuði sem úrvalsmjólk er lögð inn.

Sömu framleiðendur ár eftir ár

Að sögn Jóhannesar Hr. Símonarsonar, framkvæmda- stjóra Auðhumlu, verða þessir 47 framleiðendur heiðraðir sérstaklega á næstu vikum fyrir stöðug- leika í gæðaframleiðslu, líkt og hefð sé fyrir.

Jóhannes segir að framleiðendur úrvalsmjólkur séu oft sömu framleiðendurnir ár eftir ár. Flestir eru framleiðendurnir sem framleiddu úrvalsmjólk alla mánuði síðasta árs í Norðausturdeild, eða 16 talsins.

Hlutfall úrvalsmjólkur hækkar

Á síðasta ári hafi innlögð mjólk í þessum úrvalsmjólkur- gæðum verið um 62,2 milljónir lítra, eða um 40% af allri innlagðri mjólk. Hlutfall úrvalsmjólkur af heildarinnvigtun mjólkur þokast upp á við ár frá ári.

Skilyrðin fyrir verðlaunaveitingu fyrir úrvalsmjólk eru þau að hámark frumutölu í mánuðinum sé 200 þúsund frumur á millilítra eða lægra mælt og reiknað sem faldmeðaltal. Að hámark líftölu í mánuðinum sé 20.000 einingar á millilítra, mælt og reiknað sem beint meðaltal mánaðarins. Að hámark frírra fitusýra sé 0,9 mmol/l reiknað sem faldmeðaltal mánaðar.

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Fengju reikning fyrir skemmdum með nýju frumvarpi

Stjórnvöld fengju auknar heimildir til að bregðast við ólögmætum utanvegaakstri ...

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna
Fréttir 23. október 2026

Ákall um að verja landbúnaðarstefnuna

Stokkhólmsyfirlýsing evrópskra bænda er afdráttarlaus og hvetur ráðamenn ríkja E...

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár
Fréttir 23. október 2026

Sýknuð vegna ágangs sauðfjár

Héraðsdómur Austurlands hefur sýknað Fjarðabyggð af kröfu Hrefnu Dagbjartar Arna...

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum
Fréttir 23. október 2026

Fuglavernd mótmælir harðlega skotveiðum á bjargdúfum í Vestmannaeyjum

Stjórn Fuglaverndar sendi nýlega bréf á umhverfis- orku og loftlagsráðuneytinið ...

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði
Fréttir 23. október 2026

Óánægja vegna gjalds á þrjá ferðamannastaði

Mikil óánægja í Bláskógabyggð með gjald á þrjá ferðamannastaði. Íbúar Bláskógaby...

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat
Fréttir 23. október 2026

Terraforming LIFE á leið í umhverfismat

Áburðar- og lífgasverksmiðja Terraforming LIFE, sem fyrirhugað er að reisa í Þor...

Halla tekur á móti viðurkenningunni
Fréttir 23. október 2026

Halla tekur á móti viðurkenningunni

Sólskins-garðyrkjubóndinn Halla Sif Svansdóttir Hölludóttir tók á dögunum á móti...

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi
Fréttir 23. október 2026

Vilja fella tollabreytingar úr frumvarpi

Bændasamtök Íslands gera verulegar athugasemdir við frumvarpsdrög fjármála- og e...