Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Það má með sanni segja að í öllum hornum, skúmaskotum og á hillum leynist lifandi gróður, en hér teygja rifblaðka og gúmmítré makindalega úr sér.
Það má með sanni segja að í öllum hornum, skúmaskotum og á hillum leynist lifandi gróður, en hér teygja rifblaðka og gúmmítré makindalega úr sér.
Mynd / sp
Líf og starf 8. apríl 2024

Fræ í frjóa jörð

Höfundur: Sigrún Pétursdóttir

Fræbankar hafa á síðustu árum skotið upp kollinum hér og þar, en Svanhildur Halla Haraldsdóttir hjá bókasafni Gerðubergs í Breiðholti telur samfélagið æ áhugasamara varðandi skref í átt að sjálfbærni.

„Þetta er allt í áttina,“ segir hún. „Martyna Karolina Daniel heitir sú sem hefur umsjón yfir verkefni fræbankanna í heild sinni, en við hjá bókasafni Gerðubergs höfum auk þess mikinn áhuga á öllu sem viðkemur hringrásarkerfinu.

Við höfum staðið fyrir ýmsum uppákomum, meðal annars tilraunaræktun af ýmsu tagi og höfum kallað eftir því að fá að ættleiða plöntur. Oft á fólk úr sér vaxnar og allt of háar stofuplöntur sem fá nægt rými hér í Gerðubergi, enda hátt til lofts og vítt til veggja.“

Þessi kommóða hefur fengið nýtt hlutverk og hýsir nú fræbanka Gerðubergs.

Fræbanki er nú staðsettur í bókasafninu og segir Svanhildur frá því að falleg kommóða, merkt fræbankanum, sé úr geymslu safnsins, áður ætluð undir skjöl, en tilvalið að geyma þar ýmislegt smálegt.

Í skúffum hennar leynast því haganlega brotin fræumslög úr blöðum sem starfsmenn hafa, til gamans, gert úr úr sér gengnum plöntubókum. Nýtt þannig blað

síðurnar, enda hringrásin þeim ávallt ofarlega í huga.

Framtíðarsýn grænna málefna

Deildarstjóri Gerðubergs, Ilmur Dögg Gísladóttir, segir hugmyndina að fræsafni hafa komið frá fræbönkum almenningsbókasafna í Osló. Starfsfólk bókasafnanna hér hafi verið afar duglegt við að sækja sér endurmenntun og fræðslu á norrænum ráðstefnum bókasafna þar sem gegnumgangandi áhersla á græn málefni er dæmi um framtíðarsýn.

„Við höfum velt fyrir okkur hvernig við getum stutt grænan lífsstíl og þar innan, til dæmis, hvernig við getum auðveldað fólki að hefja ræktun. Við í Gerðubergi erum í samstarfi við Seljagarð, grenndargarð og gróðurhús við Jaðarsel í Seljahverfi, en þau útvega okkur fræ frá sér auk þess sem við kaupum fræpoka og deilum út. Einn fræpoki getur þannig nýst mörgum. Þetta er einfalt verkefni sem gefur samt svo mikið, enda sterk sýn um sjálfbært og sjálfbjarga samfélag,“ segir Ilmur.

Haganlega brotin fræumslög, gerð úr blaðsíðum annars ónýtanlegra bóka safnsins.

Fræsöfn sem þessi má einnig finna á amtmannsbókasafninu á Akureyri, og nú í fjórum söfnum Borgarbókasafnsins; í Gerðubergi, Grófinni, Sólheimum og Úlfarsárdal. Öllum er frjálst að ná sér í fræ án endurgjalds en einnig má koma með afgangsfræ og gefa í fræsöfnin.

„Við lítum annars á þetta sem hluta af stærra þema hjá okkur, og það er Græna bókasafnið,“ heldur Ilmur áfram. „Hugmyndin er einnig innblásin frá Norðurlöndunum þar sem áherslan er lögð á græn málefni, hvernig hægt er að vinna með heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna í gegnum grænar áherslur og upplifunin, þegar fólk heimsækir bókasöfn, að það fái vísbendingar um lífsstíl. Við í Gerðubergi sýnum til dæmis gestum að hægt er að rækta plöntu af avókadósteini og svo settum við í mold poppbaun sem spíraði, við vinnum með afleggjara af hinu og þessu og erum með plöntuskiptamarkað. Einnig höfum við verið með viðburði tengda því að planta fræjum, endurnýtum mjólkurfernur í pottana sem fræin fara í, við höfum kynnt gestum okkar hversu mikilvægir ormar eru við gerð moltu og fengið í heimsókn sérfræðing þess efnis.“

Markaðir og fræðsla

Ilmur segir að til viðbótar hafi þau verið með ýmiss konar skiptimarkaði og nú, eftir fyrstu vikuna í apríl, er stefnt á að halda skiptimarkað þar sem óskað er eftir eldhúsáhöldum, bollum, pottum eða þvíumlíku.

„Fólk á oft yfrið meira en það þarf á að halda, á meðan suma vantar ýmislegt og því upplagt að líta við og koma á markaðinn. Við höfum nægt húsrými í Gerðubergi og því vel hægt að setja upp ýmiss konar markaði enda eru þeir undantekningarlaust vel sóttir, endurgjaldslausir og öllum ætlaðir. Sólheimasafnið hefur einnig verið mjög virkt hvað varðar markaði og upplagt að kynna sér þessa starfsemi okkar safnanna betur.
Af öðrum viðburðum má nefna upplýsingar um gámadýfingar, sem fara nú misvel í fólk, en þetta var innlegg í þágu þess að sporna við matarsóun. Þetta er tiltölulega viðkvæmt málefni, en kemur að mismunandi lífsstíl hvers og eins og við sem bókasafn viljum veita innblástur, enda deilihagkerfi, ræktun og fræðsla okkur hugleikin og gámadýfingar eiga þar vel við. Sjálf fáum við hvata frá öðrum söfnum, fyrir hvað þau standa og hver þeirra sýn er. Við viljum vera hjartað í hverfinu og höfða til ólíkra hópa á meðan við höfum samt okkar grunngildi eða rauðan þráð sem er græn stefna,“ segir Ilmur.

Gott er að hafa í huga jákvæða þætti hringrásar og nýta sér markaðsdaga bókasafnanna. Fræðslu og frekari upplýsingar má finna á vefsíðu þeirra.
Mynd / Borgarbókasafnið Gerðubergi - S.H.H.

Margþætt munasafn

Munasafn má einnig finna innan veggja bókasafns Gerðubergs, en áskrift þar er hægt að samnýta í munasöfn annarra bókasafna og eru afar vel sótt. Það segir Ilmur annan vinkil, enda upplagt að geta náð sér í vöfflujárn, snjóskóflu eða annað þegar þess þarfnast.

Þarna séu munir sem eru ekki notaðir dagsdaglega og því óþarfi að að eiga. Bókasöfn höfuðborgarsvæðisins bjóði öll upp á nytsamlega þjónustu af ýmsu tagi og þótt munasafn sé ekki að finna í safni Árbæjar er þar aðstaða til að taka upp snið og sauma enda í boði tvær saumavélar auk einnar overlock- vélar fyrir þá sem vilja.

Ráðgjöf og kennsla á vélarnar er svo einu sinni í mánuði, auglýst í viðburðardagskrá safnsins. Á vefsíðu bókasafnanna er ýmislegt nytsamlegt í boði, hvort sem eru markaðir, fræðsla eða annað og um að gera að leita eftir því sem áhugi er fyrir eða þörf er á.

„Svo er rétt að geta þess að margir hafa sjálfsagt tekið eftir bókaskiptistöðunum okkar þar sem má ná sér í ókeypis bækur. Þær er að finna víða núorðið, ekki bara á söfnunum heldur oft í grennd við sundlaugar eða matvöruverslanir sem styðja við hringrásarkerfið.

Við erum bókaþjóð og dýrmætt að halda í það. Með tilliti til þess verður að benda á bókasafnið sem stofnun, sem dæmi um hringrás, enda mikil og góð nýting bóka og ársgjald bókasafnskorts jafnvirði einnar skáldsögu í raun,“ segir Ilmur að lokum.

Skylt efni: fræbankar | Gerðuberg

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni
Fréttir 5. desember 2025

Jarðakaup frumkvöðla á landsbyggðinni

Þingsályktunartillaga um nýtt fyrirkomulag jarðakaupa frumkvöðla á landsbyggðinn...

Nýtt verkefni um vottaðar endurheimtaraðgerðir
Fréttir 5. desember 2025

Nýtt verkefni um vottaðar endurheimtaraðgerðir

Mýrkol er heiti nýs verkefnis um vottaðar aðgerðir í endurheimt votlendis.

Mikil aukning í notkun lífrænna áburðargjafa
Fréttir 5. desember 2025

Mikil aukning í notkun lífrænna áburðargjafa

Frá 2009 hefur hlutfall þess niturs sem kemur úr lífrænum úrgangi í öllum landgr...

Fimm loðdýrabú leggjast af og eitt stendur eftir
Fréttir 5. desember 2025

Fimm loðdýrabú leggjast af og eitt stendur eftir

Fimm loðdýrabú á Suðurlandi eru nú hætt starfsemi og búið er að loka sameiginleg...

Góður árangur náðst
Fréttir 4. desember 2025

Góður árangur náðst

Hluti af áburðarráðgjöf Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML) til bænda hefur...

Ávinningur felist í því að lækka rekstrarkostnað
Fréttir 4. desember 2025

Ávinningur felist í því að lækka rekstrarkostnað

Stjórnir Frjálsa lífeyrissjóðsins og Lífeyrissjóðs bænda hafa undirritað viljayf...

Heilbrigð mold í frískum borgum
Fréttir 4. desember 2025

Heilbrigð mold í frískum borgum

Alþjóðlegur dagur jarðvegs er haldinn 5. desember ár hvert til að vekja athygli ...

Kúabændur andvígir breytingum á búvörulögum
Fréttir 4. desember 2025

Kúabændur andvígir breytingum á búvörulögum

Á föstudaginn í síðustu viku hélt hópur kúabænda á fund ráðherra þar sem mótmælt...