Vinsamlegast athugið að þetta efni er eldra en 1 árs.
Flétta
Hannyrðahornið 28. maí 2025

Flétta

Höfundur: Hönnun: Margrét Jónsdóttir

Stærðir: XS S M L XL

Brjóstummál í sm: 88 95 105 114 124

Efni:
Þingborgarlopi.
500-600 g lopi í aðallit.
50-100 g af tveimur litum í mynstur
Ef notaður er lopi frá Ístex verður að gæta að prjónafestu, ekki er sami grófleiki á honum og á Þingborgarlopanum.
Sokkaprjónar nr 3.5 og 5
Hringprjónar nr 3.5 40 og 80 cm langir
Hringprjónar nr 5, 40, 60 og 80 cm langir
Heklunál nr. 3.5.
Rennilás eða 8-9 tölur.

Prjónafesta: 14 l og 21 umf í sléttu prjóni = 10 x 10 cm.

Önnur prjónastærð getur hentað, allt eftir því hvort prjónað er fast eða laust, finnið það út með því að prjóna prufu og mælið.

Prjónað er úr plötulopanum tvöföldum. Bolur og ermar eru prjónuð í hring.

Bolur: Fitjið upp 124-134-148-160-176 l á 80 sm hringprjón nr 3.5, prj. í hring 8-10 sm brugðningu, sjá mynsturblað. Stroffið er prjónað fram og til baka. Í byrjun og enda á stroffi eru 3 sl l, ein l hvoru megin fer undir hneppulista. Að loknu stroffi er skipt yfir á 80 sm hringprjón nr. 5, tengt saman í hring. Fitjaðar eru upp 2 aukalykkjur í upphafi umf sem eru prj brugðnar upp að stroffi í hálsmáli. Prjónað sl uns bolur mælist 38-46 sm. (Lengd á bol er smekksatriði, mælið ykkur sjálf og metið hvað þið viljið hafa bolinn síðan.)

Á dömupeysu er fallegt að gera ,,mitti“ á peysuna með því að taka úr á bol. Setjið merki í hliðar, takið úr 2 l hvoru megin, *prj 2 l saman, prj 1 l prj 2 l saman*. Fyrst er tekið úr er bolur mælist 8-12 sm og síðan 2x aftur með 5 sm á milli. Alls eru teknar úr 12 l. Prj 5 sm, þá er aukið út aftur samsvarandi og með sama millibili og tekið var úr og endað með sama lykkjufjölda. Mælið ykkur og metið hvað þið viljið hafa bolinn síðan og hvar þið viljið að úrtaka byrji.

Ermar:
Fitjið upp 32-36-36-40-40 l á sokkap. nr. 3.5, prjónið í hring. Gerið eins og neðan á peysu. Skiptið yfir á sokkap. nr. 5 þegar stroffi er lokið. Aukið út um 2 l, (1 l eftir fyrstu lykkju og 1 lykkju fyrir síðustu l í umf). Endurtakið aukningu 8-8-8-8-8 x upp ermi, með u.þ.b. 7-8 umf á milli þar til 50-54-54- 58-58 l eru á prjóninum. Skiptið yfir á stutta hringprjóninn nr. 5 á u.þ.b. miðri ermi. Gott er að nota prjónamerki til að merkja þar sem aukið er út. Prjónið uns ermi mælist 44-52 sm. (Mælið handlegg og metið hve ermin á að vera löng)

Axlastykki:
Sameinið nú bol og ermar á 80 sm hringprjóninn nr 5. Setjið 5-5-5-5- 6- síðustu l og 5-5-5-6-6- fyrstu l af ermum á prjónanælu. Prj 26-28- 32-34-38 l af bol að framan, prjónið fyrri ermina við 40-44-44-47-46 l, setjið næstu 10-10-10-11-12 l af bol á hjálparprjón. Prjónið næstu 52-58-64- 70-76 l af bol og setjið næstu 10-10-10- 11-12 l á hjálparprjón. Prjónið seinni ermina við og gerið eins og með hina og að síðustu 26-28-32-34-38 l af bol. Þá eru 184-202-216-232-244 l á prjóninum. Í st XS, M og L er fjölgað um 2 l áður en byrjað er á mynstri og í st XL eru teknar úr 2 l. Prjónið alltaf eina l í byrjun og lok umf í aðallit, þegar teknar verða upp l fyrir hneppulista, fara þær þar undir. Prj mynstur eftir teikningu. Notið styttri hringprjóna eftir því sem lykkjum fækkar. Þegar mynstri lýkur er tekið úr aukalega þar til 72-76 l eru eftir á prjóninum. Fellið af aukal 2 sem prj voru brugðnar upp. Þá er skipt á 40 cm hringprjón nr 3.5 og prj 10-12 sm stroff fram og til baka. Gerið eins og á stroffi neðan á peysu, prj 3 sl l í upphafi og enda umf, þar sem ein l hvoru megin fer undir hneppulista. Fellið laust af. Gangið vel frá öllum endum og lykkjið saman undir höndum.

Listar:
Saumið í vél með beinu þéttu spori og samlitum tvinna í brugðningu að framan sitt hvoru megin, sem næst slétta prjóninu. Gott er að sauma tvisvar hvoru megin. Klippið upp á milli saumanna. Snúið réttunni á peysunni að ykkur og notið heklunálina til að taka upp lykkjur í hneppulista þvert á prjónið. Krækið í bandið með heklunálinni í gegnum lykkjurnar, en sleppið alltaf fjórðu hverri umferð, það er ágætis þumalputtaregla, þá er listinn passlega langur. Færið lykkjurnar jafnóðum yfir á hringprjón nr 3.5 80 sm langan. Prjónið stroff, 2-3 umf ef það á að setja rennilás en 5-6 umf. ef setja á tölur og gerið þá hnappagöt með jöfnu millibili á annan boðunginn. Passið að affellingin sé mátulega strekkt. Til að fela sárið innan á eftir saumaskapinn, er gott að hekla eina umf af fastahekli yfir það og varpa því svo niður með einföldu spori. Saumið kragann niður að innanverðu, en lokið ekki endum, þar kemur rennilásinn inn í ef hann er settur, en mælt er fyrir honum eftir þvott og hafður 3-4 sm styttri en boðungurinn mælist. Þræðið hann á og passið að mynstur standist á. Ef hann er saumaður á í saumavél er gott að sauma hann í sömu átt beggja megin og byrja þar sem mynstur byrjar og sauma að hálsmáli og eins þegar saumað er niður. Með þessari aðferð gengur betur að láta mynstur stemma en ef saumað væri sitt í hvora áttina.

Þvottur:
Þvoið flíkina í volgu vatni með góðri ullarsápu eða sjampói. Skolið vel og vindið svo í hálfa mínútu í þvottavél. Mikilvægt er að vélin fari strax að vinda, (þær eru misjafnar að þessu leyti) en sé ekki að veltast með flíkina fyrst, þá getur hún þófnað. Leggið peysuna á handklæði til þerris.

Mótið 2026 fer vel af stað!
Fréttir 9. júlí 2026

Mótið 2026 fer vel af stað!

Margt var í brekkunni á fyrsta degi Landsmóts hestamanna og sólin skein á Hólum ...

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST
Fréttir 3. júlí 2026

Villa á sér heimildir sem eftirlitsmenn MAST

Matvælastofnun vekur athygli á að aðili villti á sér heimildir sem eftirlitsmaðu...

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum
Fréttir 2. júlí 2026

Styrkir til aðlögunar á lífrænum framleiðsluháttum

Atvinnuvegaráðuneytið auglýsir til umsóknar styrki til lífrænnar aðlögunar í lan...

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar
Fréttir 1. júlí 2026

Leggja áherslu á veitingastarfsemi og afþreyingu við hleðslustöðvar

Orkusalar leggja sífellt meiri metnað við að gera „hleðslustopp“ rafbílaeigenda ...

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn
Fréttir 30. júní 2026

Velja íslenskt, lífrænt heilhveiti í baksturinn

Fleiri bakarar landsins velja lífræna heilhveitið frá Vallanesi í bakaríin sín. ...

67,5 milljónum úthlutað
Fréttir 29. júní 2026

67,5 milljónum úthlutað

Alls hlutu 25 verkefni styrki úr Þróunarfé búgreina upp á 67,5 milljónir króna. ...

Fuglum og fiðrildum fækkar
Fréttir 29. júní 2026

Fuglum og fiðrildum fækkar

Stofnar fugla og fiðrilda hafa farið hnignandi frá árinu 2000. Þetta kemur fram ...

Efla samstarf um fæðuöryggi
Fréttir 29. júní 2026

Efla samstarf um fæðuöryggi

Norðurlöndin hafa ákveðið að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óv...